Vikan


Vikan - 06.07.1999, Blaðsíða 6

Vikan - 06.07.1999, Blaðsíða 6
Texti: Margrét V. Helgadóttir Myndir: Úr einkasafni Guðrún Árnadóttir er 36 ára gömul, viðskiptafræðingur að mennt, þriggja barna móðir og rekur eigin fasteignasölu ásamt eiginmanni sínum, Brynjari Harðarsyni. Hún hafði í nógu að snúast fyrir en í febrúarmánuði tók hún að sér enn eitt verkefnið þegar hún var kjörin formaður Félags fasteignasala. Guðrún er glæsileg kona og kemur ákaflega vel fyrir. Fallegt og hlýlega innréttað fyrirtæki hennar ber vott um smekkvísi eigenda en Guðrún og Brynjar hafa rekið fasteignasöluna Húsakaup frá árinu 1989. Þau eru bæði viðskiptafræð- ingar að mennt en Guðrún er að auki löggiltur fasteignasali, en nám til löggildingar tekur tæp tvö ár. Tilviljun réð því að tveir kornungir viðskiptafræð- ingar fóru út í rekstur fasteigna- sölu á krepputíma. „Brynjar hafði unnið á fast- eignasölu áður en hann fór í viðskiptafræðinám en ég hafði aldrei komið komið nálægt fast- eignasölu þegar ég útskrifaðist sem viðskiptafræðingur. Félagar mínir í viðskiptafræðinni ætl- uðu margir í störf tengd verð- bréfaviðskiptum eða fara út í markaðstengd störf. Ég hugsaði upphaflega á sama hátt. Fast- eignasala var eitthvað sem ég ekki þekkti enda ekki margir viðskiptafræðingar sem hafa starfað á þessum vettvangi. Margir hafa sjálfsagt stofnsett fyrirtæki við auðveldari mark- aðsaðstæður. Við þóttum ung og markaðurinn var erfiður en það kom ekki að sök og okkur ann minn vel og ég eyði t.d. litl- um tíma fyrir framan sjónvarp- ið. Annars finn ég ekki sérstaka þörf til þess að hafa tíma fyrir sjálfa mig enda er ég sífeltl að vinna að verkefnum sem ég vel mér og eyði tíma mínum með þeim sem ég vil. Meira er ekki hægt að fara fram á.“ Þótti ung í starfi Hefur þú einhvern tíma fund- ið fyrir vantrausti í þinn garð, kona í dæmigerðu karlastarfi? „Nei, aldrei. Þegar við vorum að byrja í fasteignasölu skynjaði ég helst að okkur væri ekki treyst af því við værum svo ung. Aldrei vegna þess að ég væri kona. Ef fólk ætlar sér að finna eitthvað til að setja út á þá er það alltaf hægt. Ef maður er ekki of ungur þá er maður orð- inn of gamall, ef ekki karl þá kona. Ég hugsaði á sínum tíma að kyn eða aldur skipti ekki öllu máli heldur það hugarfar sem hver og einn hefur til starfsins og ég reyni ávallt að gera mitt besta. Það var aðalat- riðið í mínum huga.“ Fasteignasalan Húsakaup hefur ætíð þótt vera opin fyrir nýjungum og skrefi á undan sinni samtíð. Tölvutæknin var mikið notuð þar á bæ áður en hún var orðin eins almenn og hún er í dag. Húsakaup er nú orðin rótgró- in fasteignasala og hefur náð að skapa sér gott orðspor. Var ekki erfitt að hefja rekst- ur fasteignasölu á krepputíma þegar allir héldu höndurn að sér í viðskiptum? „Já og nei. Við byrjuðum smátt og gerðum í rauninni hefur gengið mjög vel allt frá fyrsta degi. A fyrstu árunum vorum við í húsnæði í Borgar- túni en fluttum hingað að Suð- urlandsbraut 52 árið 1992. Hjá okkur eru 8 starfsmenn og óhætt að kalla þetta kvennaríki, hér starfa 6 konur og 2 karl- menn.“ Hvernig gengur að samræma fjölskyldulífið og fyrirtækið? „Það gengur bara mjög vel. Yngsta barnið er stelpa sem er Við áttum sumarbústað sem við notuðum gjarnan í fríum í nokkur ár en seldum hann í fyrra. I staðinn stundar fjöl- skyldan nú golf í frítímum. Strákarnir eru duglegir að fara með okkur, enda hefðum við ekki farið að spila golf annars. Yngsti fjölskyldumeðlimurinn er ekki ennþá farinn að slá golf- kúlur en það styttist í það.“ Guðrún á greinilega annríkt og er með mörg járn í eldinum. 3ja ára en strákarnir eru 8 og 13 ára. Við höfum verið heppin því þau hafa verið hraust. Við fáum ekki fimm vikna frí eins og hefðbundnir launþegar en reynum þess heldur að nýta frí- tímann vel. Við höfum reynt að taka okkur frí vor og haust og það hefur okkar líkað mjög vel. Okkar helsti álagstími er sumarið þegar starfsmennirnir fara í frí og því erfitt fyrir okkur að stökkva í burtu þá. Yfir vetr- armánuðina erum við dugleg að fara á skíði og eins förum við töluvert í sund með krakkana. Hefur hún einhvern tíma fyrir sjálfa sig? „Já, já. Ég stunda líkams- rækt, fer reyndar alltaf í hádeg- inu því enginn annar tími er til þess. Ég er nýbyrjuð að spila golf og stefni að því að geta stundað það meira í framtíð- inni. Yfir vetrartímann er ég í kór, Valskórnum.“ Guðrún sér undrunarsvip blaðamannsins og flýtir sér að bæta við: „Reyndar eru ekki æfingar hjá kórnum nema einu sinni í viku. Líklega skipulegg ég tím- „Það skýtur skökku við að til skulu vera lög sem vernda neytendur ef þeir kaupa gallað smjör en engin ef þeir kaupa gallaða fasteign!“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.