Vikan - 06.07.1999, Page 13
n og vinnur saman
IIIIIMIIMIM
tv Miin
En hefur verið gaman að
vera saman í gegnum árin?
Sigurður hefur svarið: „Já,"
segir hann. „Þrátt fyrir það
að við séum eins ólík og við
getum orðið. Við erum bæði
alveg rosalega sauðþrá.
en hin." Það brýst út hlátur
hjá þeim báðum við þessu
svari Sigurðar sem heldur
áfram. „En við elskum hvort
annað mjög mikið og höng-
umáþví."
Erum aldrei sammála,
þannig að það er alveg ótrú-
legt hvernig þetta gengur
allt saman. Við virðum hins
vegar skoðanir hvorts ann-
ars og hlustum á þær en ég
lít svo á að það séu tvær
hliðar á öllum málum
...bara önnur aðeins réttari
kannski ekki kostina við það
að vinna með makanum.
Kostina sem Sigurður og
Halla telja að hafi gert úts-
lagið í því að þau vinni alltaf
saman. „Þetta eru forrétt-
indi," er mat Höllu. „Sér-
staklega varðandi börnin.
Mér finnst mín börn hafa
kemur svo margt annað í
staðinn sem er ekki til stað-
ar á öðrum heimilum." Þau
hafa ekki spáð mikið í það
hverjir kostirnir nákvæm-
lega séu en eru sammála um
að þeir séu nógu margir til
að þau vilji ekki hætta þessu
vinnufyrirkomulagi.
'imminili
ir okkar."
Guðrún Björg og Aðal-
steinn eiga einnig sameigin-
leg áhugamál fyrir utan
vinnuna þótt hún taki mik-
inn tíma. Þau tala um að við
matarborðið sé farið yfir
daginn og hvernig salan hafi
gengið; þau séu þá í raun
ennþá að vinna; tala um
hluti sem þau myndu ekki
ræða væru þau í sitt hvorri
vinnunni. „Þarna er þá verið
að fara yfir hluti sem við
höfum bæði áhuga á og okk-
ur þykja spennandi og
skemmtilegir," segir Guð-
rún. „Að því leyti styrkir
það sambandið að vinna
saman," bætir Aðalsteinn
við. „Við erum bæði að
hugsa um það sama."
Vinnan og áhugamálin
tengjast hjá Aðalsteini og
Guðrúnu Björgu, eins og hjá
öðrum hjónum og sambýlis-
fólki sem vinnur saman, og
þau nefna sem dæmi að
gaman sé að sameina inn-
kaupaferðir erlendis og
skemmtiferðir. „En fyrir
utan vinnuna þá eigum við
ýmis sameiginleg áhuga-
mál," segir Aðalsteinn. „Við
förum á skíði og í golf,"
hann hikar. „Vá! Þetta
hljómar hrikalega. Við erum
alltaf saman nema þegar ég
fer í rjúpur á haustin." Þau
hlæja að þessu og Guðrún
segist oft vera spurð að því
hvort þetta sé ekki ofsalega
erfitt. Aðallega séu það
konur sem nefni það við
hana. Konur sem
gætu ekki hugsað sér
að vera í sömu að-
stöðu og hún. „Ég
held samt frekar að
það séu konur sem líti
á það sem draumasamband-
ið að geta unnið með mann-
inum sínum," segir Aðal-
steinn. „Karlmenn líta öðru-
vísi á það." Þeir sjá þá
Aðalsteinn og Giiðnin Bjorg: V'io
t'öriini saman á skíði á veturna og í
goll'á suiiiriii. Vá! I’etta liljóniar
lirikalega. Vift eruiii alltaf sanian
nenia |iegar ég fer í rjiipur á
haustin."
það svo gott að eiga pabba
sem þau geta alltaf gengið
að. Þótt hann vinni ofsalega
langan vinnudag og við
séum oft þreytt á því, þá
Vikan 13