Vikan


Vikan - 06.07.1999, Síða 55

Vikan - 06.07.1999, Síða 55
minni bógur en ég og lét þetta yfir sig ganga, hún gerði alltaf eins og henni var sagt. Ég lagði algera fæð bæði á móður mína og systur, flutti að heiman fyrir tvítugt og fór að búa ein. Bróðir minn var sá eini í fjölskyldunni sem ég hafði eitthvert raun- verulegt samband við, við höfð- um alltaf verið góðir vinir. Hann hafði sem strákur fengið að lifa í friði fyrir mömmu og var sérstaklega frískur og fjör- ugur. Eftir að ég flutti að heim- an fór hann að sækja mikið til mín og við fórum að skemmta okkur saman. Hann var líka í skóla og oft gisti hann hjá mér um helgar og við hjálpuðum hvort öðru að læra. Ég fór að stillast eftir að ég flutti að heiman og fljótlega upp úr því kynntist ég mannin- um mínum. Samband okkar var mjög stormasamt og laust í reipunum framan af því ég átti erfitt með að bindast einhverj- um einum manni. Ég þurfti alltaf að vera að sanna fyrir sjálfri mér að ég ætti nógan „sjens". Það liðu meira en fjögur ár áður en við giftum okkur og samt urðu fyrstu ár hjónabands- ins mjög erfið fyrir okkur bæði. Ég var búin að koma mér upp sérstöku mynstri sem ég átti erfitt með að breyta, ég daðraði við alla þótt ég meinti ekkert með þvf annað en að fullvissa mig um að ég hefði áhrif á karl- menn. Það var ekki fyrr en að upp úr sauð eftir árshátíð eina að ég skildi sjálf hvað var að gerast. Við hjónin gerðum upp sakirn- ar, töluðum og grétum saman heila helgi og næstu vikur fylgdu margar andvökunætur þar sem við héldum áfram að kryfja málið til mergjar. Það var í rauninni maðurinn minn sem loks hjálpaði mér að stíga fyrstu skrefin í áttina frá minnimáttar- kenndinni. Hann skildi mig vel því hann hafði sjálfur verið kúgaður krakki, enda yngstur af átta systkinum á alkóhólista- heimili. Það var líka hann sem hvatti mig til að sinna systur minni meira, hann sá að henni leið ekki vel og honum fannst ég sýna henni lítilsvirðingu og kulda. Ég þoldi illa að heyra þetta frá honum, en ákvað samt að reyna að sættast við hana, bara fyrir hann. Það er skemmst frá því að segja að systir mín var bæði feimin og hrædd við mig! Ég kenni mömmu um það, því hún hafði líka eitrað fyrir systur minni. Hún hafði matað hana á því að ég væri „öll í föð- urættina"; ekkert nema frekjan og uppástöndugheitin. En ég hefði þó góða greind og það væri nú meira en Guð hefði gef- ið henni! Mamma hafði sem sagt notað mig sem grýlu á hana líka. Systir mín átti mjög erfitt með að byrja að tala því hún var mjög bæld. Hún fór undan í flæmingi fyrst, en sem betur fer náði ég til hennar um síðir. Hún sagði mér að sér hefði alltaf fundist hún mjög útundan og einmana í æsku og væri það enn gagnvart okkur systkinunum. Við hin hefðum verið svo góðir vinir, en hún hefði bara verið litla barnið og puntudúkkan. Hana hefði alltaf langað til að vera með okkur en aldrei fund- ist hún passa í hópinn. Við hefðum verið miklu duglegri að bjarga okkur og henni fannst við líta niður á sig. Hún hélt ekki áfram í námi en giftist hins vegar vel, eins og mamma hafði Við systurnar erum orðnar góðar vin- konur núna síðustu árin, en það er ekki mömmu að þakka. ætlað henni. Sem betur fer er maðurinn hennar ekki bara efn- aður heldur mikill indælismað- ur. Þau eiga fallegt heimili, hún vinnur úti hálfan daginn og er ánægð með lífið. Við systurnar erum ágætar vinkonur í dag og eigum meira sameiginlegt og erum líkari en við höfðum haldið. Við erum báðar mæður og munum örugg- lega gæta þess að etja börnun- um okkar ekki saman. Systir mín er miklu bljúgari en ég og heldur alltaf góðu sambandi við mömmu sem ég geri ekki. Ég skil núna að systir mín átti ekki sök á vanlíðan minni og minni- máttarkennd og er því löngu búin að sættast við hana. En ég get ekki sæst við mömmu enn- þá, kannski kemur að því seinna. lesandi segir Jóhönnu Harðardóttur sögu sína Vilt þú deila sögu þinni meó okkur? Er eitthvaö sem hefur haft mikil áhrif á þig, jafnvel breytt lífi þínu? Þér er velkomið aö skrifa eöa hringja til okk- ar. Vió gætum fyllstu nafnleyndar. I lrimilisl;mi!i() cr: Vikan - ,.LiTsrcvnslnsa}»a‘*, Scljavcgur 2, 101 Kcykjavík, Nctiang: vikaii@lrodi.is Vikan 55

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.