Vikan - 06.07.1999, Page 63
versluninni Dalíu í Faxafeni. Þaö er Svanfríður Siguröardóttir, listakona á Akur-
eyri, sem hannar bollana og prýðir þá með ýmsum gullmolum sem ylja
hjartaræturnar. Hjá Dalíu er hægt að panta áletranir að eigin ósk.
Gjafir í þessum dúr eru mikils metnar og henta við öll
möguleg tækifæri. Gjöf sem gefur meira. ,f"“”
...Proderm Sunscreen sólar-
VÖrnínní Hér er loks komin lausnin fyrir
hina hvítu og viðkvæmu íslensku húð sem
verður sjaldnast brún og í mesta lagi
frekknótt. Mælt var með þessari sólarvörn af
konu sem hefur ávallt verið eins og þurrkað
moldarbarð eftir sólböð og fengið sprungnar
varir í þokkabót. Hún komst í kynni við
Proderm sólvörnina og gat notið sólarinnar til
hins ýtrasta án nokkurra vandkvæða. Ólíkt
venjulegum sólkremum þá myndar
Proderm Sunscreen rakafyllta varnar-
himnu undir efsta lagi húðarinnar sem j
verndar húðina fyrir UVA- og UVB- geisl-
um sólarinnar og gegn rakatapi. Hún
veitir hámarksöryggi fyrir fólk með við-
kvæma húð, sólarexem og skort á litar- |
frumum. Proderm sólvörnin er viður-
kennd af fremstu húðsjúkdómasérfræð-
ingum og er fyrsta sólarvörnin sem skráð i
er sem læknisfræðileg sólarvörn.
Góð fyrir börnin.
Áttu uppáhaldskvik-
mynd?
Já það á ég svo sannarlega.
Það er myndin
Underground.
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera?
Mér þykir langskemmtilegast
að gleðjast í
góðra vina hópi.
Hafdis Gerður Gísladóttir er 25 ára háskóla-
nemi. Hún starfar sem stuðningsfulltrúi
fyrir fatlaða á meðan frí gefst frá lestri
námsbóka í sumar og hlé er á öðru sem tilheyrir
náminu. Henni finnst starfið mjög áhugavert enda
tengist það inn á námið, en Hafdís leggur stund á
félagsfræði sem er umsvifamikil fræðigrein er teygir
anga sína víða.
Hafdís er áhugamanneskja um útivist og íþróttir.
Hún er órög að reyna eitthvað nýtt í þeirn efnum og
hefur m.a. prófað fallhlífarstökk.
þú hefur fengic
Það er sú ást og umhyggja
sem fjölskyldan hefur
gefið mér í gegnum tíðina.
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn?
Nærvera ömmu minnar stenst engan
samanburð.
Hvernig ætiar þú að eyða sumarfríinu?
Þar sem ég er í skóla á veturna verð ég að vinna
á sumrin, en hef það jafnframt að markmiði að
ganga á Esjuna.
Hver er uppáhalds- bókin þín eða
rithöfundur?
Því er fljótsvarað; Hvundagshetjan eftir Auði
Haralds.
Hver er fallegasti karlmaðurinn sem þú
hefur séð?
Að öllum öðrum ólöstuðum þá eru það bræður
mínir þrír og leikarinn Ralph Fiennes.
Áttu framtíðardraum?
Já. Mig dreymir um að lukkan lýsi mér ávallt leið.
Amtsbókasafnið á Akureyri
03 591 156
L