Vikan


Vikan - 20.07.1999, Page 13

Vikan - 20.07.1999, Page 13
1111 miiiMt BFSTSEU.F.H "AFUNand^nny^: Ólíkt því sem yfirleitt gerist með íslenskar bækur er nafn höfundarins á bókarkápunni fyrirferðar- ineira en nafn bókarinnar sjálfrar. Bækur eftir Mary Higgins Clark ug (lóttur hennar Carol. (Ljósmynd: Gísli Egill Hrafnsson) clar mTH™wsmGfí£OAW upplifa ævintýrin sem verða á vegi sögupersónanna. Skrifaðu um það sem þú þekkir sjálf Prófessor við New York háskóla, sem eitt sinn leið- beindi Mary Higgins Clark á námskeiði í ritfærni, sagði henni að hún skyldi ævin- lega skrifa um eitthvað sem hún þekkti eða kannaðist við og þætti sjálfri gaman að lesa um. Fyrsta smásagan sem Mary seldi hét „Stowaway“ (Laumufarþeginn) og fjallaði í bland um reynslu Mary sjálfrar þegar hún var flugfreyja hjá Pan American Air- lines. Hún hafði verið í síðasta flug- inu frá Tékkóslóvakíu áður en járntjaldið féll. Sú ferð fléttast saman við skáld- skap sögunnar en Carol Higgins Cl- ark er ekki aðeins rithöfundur eins og mamnian held- ur líka leikari sem leikið hefur í sjónvarpi, kvik- myndum og á sviði. Mary hugsaði sem svo áður en hún hóf að skrifa söguna: „Hvað ef flugfreyjan hefði nú fundið 18 ára félaga úr tékknesku and- spyrnuhreyfingunni - laumufarþega í Pan Am vélinni?" Mary Higgins Clark er án efa einhver vinsælasti spennusagnahöfundur í Bandaríkjunum um þessar mundir. Bækur hennar eru svolítið flóknar í byrjun, sögupersón- urnar margar og söguþráðurinn margslunginn. Per- sónurnar eru oftar en ekki velmennt- aðar ungar konur í góðum stöðum og karlarnir eru ekki verr settir. Mary leggur mikið upp úr að lýsa fatnaði, sér- staklega kvennanna. Þær klæðast dýrum fötum og eru vel snyrtar. Sögusviðið er oft á tíðum New York og lík- lega mætti hafa kort við höndina og fylgjast með ferðum söguhetjanna upp og niður Manhattan, svo ná- kvæmlega er staðháttum lýst. í bókunum kemur einnig fram að Mary leitar til fagfólks til þess að tryggja að það sem um er fjallað sé trúverðugt og oft fjallar hún um málefni líðandi stundar. Sem dæmi má nefna að hug- myndin að bókinni The Cra- dle Will Fall (Víðsjál er vagga lífsins) kviknaði þegar fyrsta glasabarnið fæddist í Englandi. Rithöfundur- inn Mary er ekki jjS sú eina í fjöl- skyldunni sem skrifar bækur. Dóttir hennar, Carol Higgins Cark, er byrj- uð að skrifa spennusögur eins og móðirin. Carol er rithöfundur og leik- kona. Hún hefur leikið í sjónvarpi, kvikmyndum og á leiksviði en auk þess vinnur hún með móður sinni sem aðstoðarmaður við gagna- öflun og vinnur einnig marg- víslega aðra undirbúnings- vinnu fyrir hana þegar hún er að skrifa bækur sínar. Mæðgurnar vinna vel saman og jafnframt hafa þær báðar áunnið sér aðdáun bóka- orma, sem gaman hafa af spennusögum, jafnt í Banda- ríkjunum sem annars staðar í heiminum. Og svo má ekki gleyma því að nokkrar af bókum Mary hafa þegar verið kvikmyndaðar og meira að segja sýndar hér í sjónvarpi. Vikan 13

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.