Vikan


Vikan - 20.07.1999, Page 45

Vikan - 20.07.1999, Page 45
hún syfjulega. Hvað varstu að segja? Gleymdu því bara, sagði Barbara hressilega. Sofðu bara áfram. Ég ætla hins vegar að horfa á myndband- ið og velja mér fallegan mann. Tilbúnar? Viktoría hellti aftur í glösin þeirra og setti myndbandið í gang. Heimsóknin á lögreglu- stöðina bar ekki mikinn ár- angur. Þegar Rusty og Rae sögðu lögregluþjóninum að Bobby væri 25 ára ógiftur Hann sagði henni frá hringingunum og grunsemd- um hennar um að einhver hafi hrint henni á skauta- svellinu. Það er þá skýringin á því hvers vegna hún var í svona miklu uppnámi þegar hún kom á sjúkrahúsið, sagði Rae hugsi. En hver gæti hafa gert þetta? Kannski einhver sem finnst hún vera höfð út und- an? Rusty hugsaði upphátt. Carol er vinsæl í vinahópn- um ... Þetta hljómar eins og þú Hann stundi. Þetta er Viktoría Louise. Sú sem keypti húsið af Salino-fjöl- skyldunni. Viktoría tók strætó heirn þegar hún hafði ekið bíl Barböru heim til hennar. En núna, eftir að hafa komið bíl Roxanne á sinn stað, ákvað hún að ganga heim. Hún kom auga á bil Rustys fyrir utan kaffihúsið og ákvað að fara inn. Henni brá þegar hún sá konuna. Það var ekki Carol sem sat á móti honum. Það sagði hann án þess að horfa á hana. Við skulum bara gleyma þessu. Ef við hefðum þekkst bet- ur ... ég á við ... ég veit að þú hefur mikið að gera, en það hefði getað orðið gaman ... að kynnast hvort öðru betur. Rustý leit á hana. Ég held að það sé betra að við séum bara vinir. En hvers vegna getum við ekki...? Af því að ég vil það ekki. Hann einbeitti sér aftur að vinnunni. Ég skil, sagði hún og gekk listamaður brosti hann og sagði þeim að koma aftur eftir nokkra mánuði, ef hann hefði þá ekki skilað sér heim. Hann birtist örugglega fyrr en síðar. Ef þið fáið ein- hverjar sannanir fyrir því að eitthvað alvarlegt hafi gerst skulið þið auðvitað láta okk- ur vita, en... Við skulum koma okkur héðan, sagði Rusty. Þetta er ekkert annað en tímasóun. Þau komu við heima hjá Rusty til þess að athuga hvort allt væri í lagi með Carol og fóru síðan á kaffi- hús. Gleymum Bobby í smá- stund, sagði Rae. Segðu mér frá Carol. talir af eigin reynslu, sagði Rae. Hann brosti. Nei, en satt að segja man ég eftir stelpu sem var með mér í skólan- um. Hún átti svolítið bágt. Ég væri ekki hissa á því þótt hún bæri hefndarhug til okkar. Hver var það? Rósalía Salino. Hún var feit og óframfærin og var lögð einelti. Tókst þú þátt í því? Nei, en ég sagði ekkert þegar hinir krakkarnir gerðu það. Hann leit upp og brá þegar hann sá konuna sem sat fyrir aftan Rae. Er eitthvað að? Hún sneri sér við og kom auga á ljós- hærða konu. Hver er þetta? var kona sem hún ntundi eftir frá skólaárunum. Og þau héldust í hendur. Viktoría beið í kjallaran- um þegar Rusty kom morg- uninn eftir. Þetta verður al- veg eins og ég var búin að sjá það fyrir mér, sagði hún. Áttu mikið eftir? Rafvirkinn kemur í dag og ég ætla að vinna alla helg- ina. Ef allt gengur eftir áætl- un klára ég á miðvikudag- inn. Fínt. Hún horði á hann negla panelinn á vegginn. Skyndi- lega sagði hún: Ég vona að þú sért ekki reiður út af því sem gerðist í gær. Ég gerðist nú ekkert, út. Já, svo sannarlega skildi hún. En gæti Rósalía skilið að hann var ekkert betri en allir hinir. Guð minn góður, hvernig skyldi hún taka þessu? Rusty dró andann léttar. Guði sé lof, loksins var hann laus við hana. Hann hafði ekki ætlað að vera svona hvassyrtur, hann var nú einu sinni í vinnu hjá henni, en hann hafði ekki átt annarra kosta völ. Hún var ótrúlega uppáþrengjandi! Hann hryllti við þegar hann hugsaði til alls þess sem hann átti eftir að gera í húsinu. Hann vissi ekki hvernig hann gæti haldið Vikan 45

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.