Vikan


Vikan - 20.07.1999, Síða 46

Vikan - 20.07.1999, Síða 46
Framhaldssagan það út. Hvers vegna gat hún ekki látið hann í friði? Þessi kvenmaður var greinilega meira en lítið skrýtinn. Er þetta Gena McDermott? Já. Ég hringi fyrir hönd Broadgay. Það er útgáfufyr- irtæki sem sérhæfir sig í út- gáfu á barnabókum. Já, ég kannast við þetta fyrirtæki. Ég hringi til þess að segja þér að við erum þessa dag- ana með bókakynningu fyrir verðandi foreldra. Þú og maðurinn þinn hafið kannski áhuga á að koma á kynningu? Gestunum gefst kostur á því að kaupa bækur á niðursettu verði. Ég veit ekki, sagði Gena hikandi. Við höfum ekki ráð á neinu þessa dagana, þannig að ... Það er engin skylda að kaupa bækur og það verða margar góðar bókagjafir, sagði Viktoría lokkandi. Þetta gerði útslagið. Hvar og hvenær er kynn- ingin? spurði Gena. Rusty vann allan daginn, sleppti matar- og kaffitímum og og var kominn heim klukkan korter yfir átta. Halló, sagði Carol sem var á leið út úr dyrunum. Hvert ertu að fara? spurði hann. Út. Það vill svo til að það er föstudagur. Það er kjúklingur í ísskápnum ef þú ert svangur. Hann lagði sig á sófann og teygði úr sér. Hvert ertu að fara? I keiluhöllina. Með hverjum? Nokkrum vinum mínum. Hver ætlar að keyra ykk- ur? Pétur. Ég verð komin heim í síðasta lagi klukkan tólf. Pétur fær ekki að hafa bílinn lengur. Þögn. Segðu eitthvað, sagði hún. Ekki bara liggja þarna og horfa í gegnum mig. Hann nuddaði augun. Ég er dauðþreyttur, sagði hann. Hvar er Rae? Hún er að vinna. Af hverju spyrðu? Ég bara spurði. Þið hafið verið svo mikið saman und- anfarna daga, þannig að ... Það er vegna þess að við erum að reyna að hafa uppi á Bobby. Það er allt og sumt. Hafið þið haft heppnina með ykkur? Þögn. Rusty! Hún leit á hann og sá að hann var steinsofnað- ur. Venjulega voru helgarnar annasamar á sjúkahúsinu og það leit út fyrir að svo yrði einnig þessa helgi. Það voru ennþá tveir tímar þar til klukkan yrði ellefu og hún gæti farið heim. En það var gott að hafa nóg að gera. Þá hafði hún ekki of mikinn tíma til þess að brjóta heilann ... Hún fór inn í kaffistofuna, fékk sér kaffi í plastbolla og settist við gluggann. Kvöldið áður hafði lög- reglumaðurinn gert hana öskureiða en hún hafði reynt að leyna því fyrir Rusty á kaffihúsinu. Hann hafði nóg á sinni könnu; það var ekki nóg með það að hann hefði áhyggjur af Bobby, hann hafði líka áhyggjur að Carol. Hún rnundi hvernig hann hafði haldið um höndina á henni og hvernig hún hafði dregið hana að sér. Hvers vegna hafði hún gert það? Rusty hafði litið undrandi á hana en ekkert sagt. Og stuttu seinna hafði hann komið auga á konuna sem starði á þau. Rusty sagðist vinna fyrir hana, en var eitt- hvað á milli þeirra? Ef svo var, þá kom henni það ekkert við. Hún, sem vildi ekki einu sinni leyfa honum að halda í höndina á sér! Svo varð henni hugsað til bílsins, blárrar Hondu, sem hafði elt hana þegar hún var á leið í vinnuna. Eða var það bara ímyndun? Bíllinn ók áfram þegar hún beygði inn á bílastæðið við sjúkra- húsið. Hún hafði tekið eftir honum vegna þess að hún átti sjálf Hondu og í hvert sinn sem hún leit í baksýnis- spegilinn var bíllinn á eftir henni. Það var alla vega ekki ímyndun! Ja hérna, nú var hún aftur farin að mála skrattann á vegginn. Hún stundi, tæmdi plastbollann og henti hon- um í ruslakörfuna. Það var kominn tími til þess að láta sjá sig aftur á slysadeildinni. Rae var dauðþreytt þegar hún ók heim tveimur tímum seinna. Það var gott að vita til þess að hún átti frí þang- að til á sunnudaginn. Á gatnamótunum kom hún að rauðu ljósi og brems- aði. Ekkert gerðist. Bíllinn hægði ekki á sér. Hún reyndi aftur. Bremsurnar virkuðu ekki! Hún reyndi að hægja á sér með því að gíra bílinn niður. Annar gír, fyrsti gír ... Hrað- inn var áfram sá sarni og hún var að því komin að keyra aftan á næsta bíl. Hún horfði örvæntingarfull í kringum sig. Vinstra megin var önnur akrein, hægra megin var almenningsgarð- urinn. Hún beygði og bílinn rann eftir gangstéttinni, ók á miklum hraða inn í runna og staðnæmdist þar. Rae lagðist fram á stýrið. Hún skalf frá hvirfli til ilja. Viktoría lét leiðbeininga- bókina, sem fylgdi með Hondunni, inn í skápinn í borðstofunni. Síðan fór hún niður í leikherbergið og skil- aði verkfærunum aftur í verkfærakassann. Hún hafði ekkert vit á bílum en þetta hafði gengið eins og í sögu. Hún hafði aðeins þurft að stinga nokkur göt á kassa, það var allt og sumt. Hún fór upp í svefnher- bergið, tók brúðuna úr gluggakistunni og lagði hana á rúmið. Ekki vera hrædd Rósalía, sagði hún sefandi röddu. Rusty kemur í veisl- una, ég skal sjá til þess. Allt í einu skaut minningu upp í huga hennar, minn- ingu um öll boðin sem hún hafði næstum því rnisst af. Hvað skyldu þau hafa hugs- að ef þau hefðu vitað af henni? Hvert ertu að fara? spurði mamma hennar þegar hún fór í jakkann. I boð. Krakkarnir í klíkunni báðu mig að koma. Kemur enginn að sækja þig? Hvað er að þér mamma, þannig ganga hlutirnir ekki fyrir sig lengur. Ég er margoft búin að segja þér það. Við hittumst öll á ein- um stað og förum svo öll samferða. Hvar ætlið þið að hittast? 46 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.