Vikan


Vikan - 20.07.1999, Qupperneq 48

Vikan - 20.07.1999, Qupperneq 48
Við erum svo mikil Bókmennta þjóð! s Ui Höfundur: María Solveig Héðinsdóttir érhver íslendingur veit að við íslendingar erum svo mikil bókmenntaþjóð. Við erum bara alltaf lesandi og það engin smá bókmenntaverk. Nóbelsskáldið okkar, fleiri inn- lendir og erlendir höfundar liggja á náttborðinu hjá sér- hverju okkar, auk þess sem þar er að finna lesningu um okkar sérfag. Nýjustu bækurnar um gang himintunglanna, siglingar, eðlisfræði, rökhugsun, eða bara þau fræði sem við höfum mest- an áhuga á, liggja svo í nettum stafla við hliðina á fagurbók- menntunum. Já, við erum svo sannarlega bókmenntaþjóð. Og þeir sem hvorki hafa svona stafla á náttborðinu sínu né lesa svona merkilegar bækur hafa nú bara hljótt um sig. Það er nefnilega dálítið skammarlegt að vera íslendingur og lesa ekki neitt af svona góðum bókum. Við tölum reyndar ekki hátt um það að við lesum stundum bara svona „lélegar“ bækur, glæpasögur eða kannski ástarsögur. Það er nefnilega ekkert svo fínt og merkilegt að lesa þannig bækur og þess vegna tölum við ekkert um það. Svo eru það blessuð tímaritin. Það eru nú meiri ósköpin sem gefin eru út af svo- leiðis nokkru. Og það er varla nokkur maður sem les þetta - eða hvað? Svo virðist sem fæstir lesi tíma- ritin eða hafi nokkurn áhuga fyrir þeim. En „viti mýs“ (eins og segir í frægu bókmenntaverki) þegar innihald tímaritanna ber á góma finnst mér nú ansi margir vera vel viðræðuhæfir. Og þá gerist þetta skrýtna hjá mörgum. Þeir fara að afsaka það að þeir lesi svona „skráargatablöð“ eða „lágmenning- arblöð“ - það var bara algjör tilviljun að viðkom- andi sá eða frétti af innihaldi blaðsins. Ég verð að viðurkenna að mér finnst alveg svakalega gaman að lesa og glugga í tímarit. Fátt er eins notalegt og að setjast með gott (nú eða þá lélegt) tímarit (t.d. á bókakaffið hjá Máli og menningu) og fá sér einn góðan espresso. Svo er form tímaritanna einnig hentugt fyrir þá sem hafa lítinn tíma, maður getur lesið svona eina og eina grein í þeirri röð sem manni hentar og skutlað svo blaðinu til hliðar þegar önnur verkefni krefjast athyglinnar hjá okkur. „Lélegu bækurnar" rata líka á náttborðið mitt og mér finnst þær alveg þrælgóðar. Að mínu mati er lestur ekki svo merkilegur að maður verði að setja sig í ein- hverjar sérstakar hátíðar- eða fagstellingar til að taka sér bók í hönd. Það er fínt að lesa og ég er hlynnt því að fólk lesi bara hvað sem er og sé ekkert að afsaka það. Það er reyndar talsvert eftirsóknarvert í lífsins ólgu sjó að geta lesið hratt og vel, og ekki spillir fyr- ir ef maður nýtur lestrarins. Allt er þetta spurning um þjálfun. Samkvæmt nýjustu rannsóknum les bókmenntaþjóðin víst heldur lítið og fer þeim sífellt fjölgandi sem fara á mis við það að lesa góðar eða slæmar bækur sér til skemmtunar, fróðleiks og ynd- isauka. En það er alltaf hægt að taka þráðinn upp á nýjan leik, fara jafnvel á hraðlestrarnámskeið og hakka svo í sig allt lesefni sem maður kemst yfir. Rúsínan í pysluendanum gæti svo verið að lesa upp- hátt fyrir börnin okkar eða barnabörnin og á þeim lestri græða allir. 48 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.