Vikan


Vikan - 20.07.1999, Page 51

Vikan - 20.07.1999, Page 51
Hverju svarar lœknirinn ? Ör hjartsláttur Ágæti Þorsteinn, Ég er ung kona, nýkomin á þrítugsaldurinn. Ég hef verið í vandræðum með hjartsláttinn í mér undan- farna mánuði. Oft rýkur púlsinn upp í 100-110 slög á mínútu án nokkurrar áreynslu og stundum vakna ég svona. Eins finn ég oft einhvers konar titring í hjartanu við sláttinn (þetta kemur þó ekki þegar sláttur- inn er hraður, heldur eðli- legur eða um 65 á mínútu. Nú er ég í ágætu formi, geng mikið og stunda líkamsrækt. Ég hef gefið blóð án nokk- urra vandkvæða, en nú þori ég það ekki lengur. Hvað getur þetta verið og hvað á ég að gera? Blóðgjafi. skyndilega án fyrri sögu, mæli ég eindregið með því að leitað sé læknis. Læknir tekur hjartarit, til að skoða rafleiðni í hjartanu en það gefur til kynna hvort eitt- hvað sjúklegt sé að baki hraða hjartslættinum eða ekki, og síðan tekur læknir- inn blóðprufu til að skoða blóðmagn, þ.e. magn blóð- rauðans í blóðinu, skjald- kirtilshormón og blóðsöltin. Konur, og duglegir blóðgjaf- ar eins og þú, geta lent í því að vera blóðlitlar og þá örvandi á líkamann eða framkallar hjartsláttinn. Koffín er ein algengasta or- sökin fyrir hröðum hjartslætti. Auðvitað verður þú að hætta að reykja ef þú reykir. Þú átt síðan að hreyfa þig reglulega og stunda reglulega slökun. Slökun róar niður ósjálfráða taugakerfið sem aftur dreg- ur úr líkum á hjartsláttar- köstum. Mjög gott er að stunda jóga reglulega. Ég ræð reyndar öllum sem ætla að stunda jóga að fara á I Þorstcinn N jálsson liciniilislæknir sláttarkasta, sérstaklega ef köstin koma óþægilega oft og einstaklingurinn verður mjög óttasleginn. Það er e.t.v. umhugsunarvert fyrir þig og kannski lærdómsríkt að oft er jafnáhrifaríkt að taka róandi lyf og hjartalyf til að draga úr hjartsláttar- köstum. Hvers vegna þá ekki að draga úr spennu og fara að slaka svolítið á? Það er svo miklu skemmtilegra að lifa lífinu þannig. Sœl Hjartsláttartruflanir, óreglulegur hjartsláttur eða hjartsláttarköst eru algeng vandamál sem geta verið allt frá því að vera algjörlega skaðlaust fyrirbæri út í það að vera lífshættulegt ástand. Langalgengast er að um sak- laust fyrirbæri sé að ræða tengt álagi, innri spennu og vanlíðan. Þá færðu skyndi- lega hraðan hjartslátt sem getur staðið í sekúndur, mín- útur eða nokkrar klukku- stundir og hverfur jafnhratt og hann kom. Þetta er óþægilegt (mjög) en er langoftast góðkynja og þarfnast í sjálfu sér ekki meðferðar með lyfjum. Síð- an eru til hjartsláttaróregla sem tengist alvarlegum hjartasjúkdómum og margir hjartasjúklingar þurfa að vera undir læknishendi. Þegar einstaklingar eins og þú fá hjartsláttarköst færðu auðveldlega hraðan hjartslátt við álag eins og áreynslu eða spennu. Skjald- kirtilssjúkdómar geta líka valdið óreglu á hjartslætti og hjartsláttarköstum. Ef síðan allar rannsóknir eru eðlilegar þá er skynsam- legast að beita almennum lífsstílsráðleggingum til að draga úr einkennum og muna að þetta er ekki hættulegt. Það er hægt að gera heilmargt í málunum ef þú bara manst að orsökin er oftast álag og streita. Auð- vitað byrjar þú á því að losa þig við koffín s.s; kaffi, svart te, gosdrykki og annað sem þú verður vör við að virkar byrjendanámskeið sem margar jógastöðvar eru með, þannig lærið þið að gera æfingarnar, öndunina og slökunina rétt. Ein jóga- stöð á höfuðborgarsvæðinu hefur sérhæft sig í jóga sér- staklega fyrir einstaklinga sem haldnir eru kvíða og spennu og hef ég séð frá- bæran árangur af því. Sumum virðist gagnast að taka kalk- og magnesíum- bætiefni og þá á bilinu 1- 2000 milligrömm af hvoru á dag fyrir svefn. Einnig virð- ist mega prófa co-ensím Q og L-carnitin. Læknar ávísa oft lyfjum til að draga úr tíðni hjart- Það á hins vegar alltaf að sýna gætni, sérstaklega ef hraður eða óreglulegur hjartsláttur stendur lengur en nokkrar klukkustundir í senn og mæði eða brjóst- verkur fylgir, þá er sjálfsagt að leita læknis. Gangi þér vel Þorsteinn Spurningar má senda til „Hverju svarar læknirinn?“ Vikan, Seljavegi 2, 101 Reykjavík. Farið er með öll bréf sem trúnaðarmál og þau birt undir dulnefni. Netfang: vikan@frodi.is

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.