Vikan - 20.07.1999, Blaðsíða 61
EKKI SVO SLÆMUR
Gamanleikarinn Robin Williams
var skelfingu lostinn þegar hann
tók eftir að skuggalegur náungi
elti hann á hlaupum út úr banka
í Hollywood. Háðfuglinn fór í
snarhasti inn í bílinn sinn, lokaði
gluggum og læsti hurðum. Hann
var um það bil að þeysa í þurtu
þegar náunginn bankaði á
gluggann og kallaði á leikarann:
„Þú gleymdir bankakortinu þínu í
hraðbankanum!" Robin róaðist
niður og þakkaði manninum með
því að gefa honum 1500 krónur.
Eriq La Salle, sem leikur dr. Peter Benton i Bráðavaktinni,
fagnar 37 ára afmælinu hinn 23. júli. La Salle hefur mátt
sætta sig við ýmislegt síðan hann byrjaði að leika í þátt-
unum. Læknirinn sem hann leikur þykir ekki sá blíð-
^ asti í viðmóti og í kjölfarið hefur La Salle sjáfur
\ fengið slæmt orð á sig. Honum var þó nóg boðið
1 síðasta vetur þegar hann var sakaður um kyn-
1 þáttahatur eftir að framleiðendur þáttanna ákváðu
að binda endi á ástarsamband dr. Bentons og
hinnar rauðhærðu dr. Elizabeth Corday, sem Alex
Kingston leikur. Slúðurblöðin slógu þvi upp að La
Salle heföi heimtað að sambandinu yrði slitið því
hún stæli of mikilli athygli frá honum. „Eriq held-
ur að hann sé eina stjarna þáttanna," var haft
eftir vinkonu Kingston i einu slúðurblaðanna. La
Salle segir liins vegar að hann sé ekki eins
slæmur og allir halda en viðurkennir að hann
eigi í erfiðleikum með að fá fólk til að skilja á
I milli hans og persónunnar sem hann leikur.
David Spade leikur eitt af aðalhlutverkunum í gamanþáttunum Hér er ég (Just Shoot Me) á Stöð 2.
Hann kom sér í smá bobba á dögunum með ummælum sínum um samkynhneigð í karlaritinu Play-
boy. Hann var spurður hvort að persónan sem hann leikur, Finch, væri hommi. „Framleiðendur þátt-
anna reyna að gera mig hommalegan," segir Spade. „En ég fékk nóg af því og mótmælti. Það koma
alltaf uþp þessi hommalegu einkenni hjá Finch i hverjum þætti en þegar hann er orðinn of homma-
legur þá leyfa þeir honum að kela við einhverja gellu." Samtök samkynhneigðra í Bandarikjunum
sendu frá sér harðort kvörtunarbréf vegna þessara ummæla. Upplýsingafulltrúi leikarans sendi afsök-
unarbeiðni til samtakanna tveimur vikum siðar. „Hann var bara að reyna að vera fyndinn og þetta var
allt sagt í góðu grini. Honum þykir leitt ef liann hefur móðgað einhvern með þessum ummælum."