Vikan - 30.07.1999, Qupperneq 11
aroline Knapp,
bandarískur blaða-
maður, er ein þeirra
sem afsannar að alkóhólista
geti ekki verið að finna
meðal þeirra sem njóta mik-
illar velgengni. Hún skrifaði
fyrir nokkrum árum
sjálfsævisögulega bók sem
hún kallar Ástarsögu (A
Love Story). Sagan tengist
þó ekki neinum karlmanni
eða samskiptum við hann
heldur fjallar hún um ástar-
ævintýri Caroline og flösk-
unnar. Hún segir söguna
vera um ástríðu, ánægju,
djúpstæða þörf, losta, ótta,
þrá og tilfinningalegt hung-
ur, um það að kveðja það
sem maður getur ekki hugs-
að sér að vera án. Hún
bendir einnig á að líkt og í
öðrum ástríðufullum ástar-
samböndum sé ástin blind.
Gallana á sambandinu megi
auðveldlega leiða hjá sér.
Caroline var það sem hún
sjálf kallar mjög „vel aðlag-
aður alkóhólisti". Hún út-
skrifaðist úr háskóla með
láði, hlaut verðlaun fyrir
verkefni sem hún vann, varð
dálkahöfundur hjá virtum
tímaritum og dagblöðum og
skrifaði bók sem seldist vel.
Á meðan hún afrekaði allt
þetta var hún dagdrykkju-
kona. Dagdrykkjukona sem
leyndi drykkjunni svo vel að
aðeins sárafáir höfðu hug-
mynd um að hún drykki
ótæpilega. Þegar Caroline
fór í meðferð sagði hún
samstarfsmönnum sínum að
hún ætlaði að dvelja á hress-
ingarhæli í tvær vikur. Eng-
inn sá ástæðu til að rengja
hana.
Tjaldið látið falla
í bókinni segir Caroline
frá mörgum kunningjum og
vinum sem sömu sögu var af
að segja. Fólk sem sinnti
ábyrgðarmiklum störfum,
lauk erfiðu námi með glans
en drakk allan tímann í
laumi og vaknaði með
slæma timburmenn á hverj-
um morgni. Það kvaldi sig
gegnum vinnudaginn þrátt
fyrir slæman hausverk,
skjálfta í höndum og hræði-
lega vanlíðan. Þetta gat það
vegna þess að það lofaði
sjálfu sér drykk í lok vinnu-
dagsins. Caroline lýsir ágæt-
lega hvernig líf hennar sner-
ist að meira og minna leyti
um að leyna drykkjunni.
Hún drakk ekki til að gleðj-
ast með glöðum eða njóta
lífsins í góðra vina hópi.
Hennar fyrsta fyllerí var
stefnumót við flösku sem
hún stal frá foreldrum sínum
og naut ein uppi í herbergi
sínu. Flöskuna faldi hún og
kom undan í felum. Annar
blaðamaður, Nan Roberts-
son, skrifaði einnig bók um
reynslu sína af alkóhólisma
og hún lýsir þessu á líkan
hátt. Eiginmaður hennar
lýsti drykkju hennar svona:
„Þegar Nan drekkur fer hún
inn í einhverja litla kytru í
huga sínum og dregur fyrir
alla glugga."
Drykkjumynstur af þessu
tagi er ekki eingöngu bund-
ið við konur. Margir karl-
menn hafa sömu drykkjusiði
en staðreyndin er hins vegar
sú að yfirleitt fylgir meiri
þjóðfélagsleg fordæming
drykkju kvenna og þær
ganga oft mun lengra í að
leyna drykkjunni. Af þeim
sökum viðgengst drykkja
þeirra einnig lengur. Þetta
kallar Caroline að vera á
fyrsta stigi og miðstigi alkó-
hólisma. Caroline Knapp
lýsir því í Ástarsögu hvernig
vinnan og að standa sig þar
var henni svo mikilvægt að
hún vann hversu illa sem
hún var á sig komin eftir
drykkjunótt. Svo lengi sem
hún stóð sig í vinnunni var
hún tæplega alkóhólisti eða
hvað? Ástarsambönd henn-
ar við karlmenn og sam-
skipti við aðra voru yfirleitt
lituð af drykkjunni. Vinkon-
ur voru drykkjukonur sem
voru lengra komnar á sjúk-
dómsferlinum og yfirleitt
valdi hún að eiga í sam-
böndum við karlmenn sem
ekki voru tilbúnir til
að leggja á sig nema
takmarkaðar skuld-
bindingar gagnvart
öðrum.
Drykkjukonur á
lokastigi alkóhól-
isma hafa jafnt og
karlar gefið upp á
bátinn alla fordild.
Víman er það eina
sem skiptir máli og
hvort og hvenær
einhver sér þær láta
þær sér í léttu rúmi
liggja. George Mc-
Govern, fyrrum öld-
ungadeildarþing-
maður og forseta-
frambjóðandi í
Bandaríkjunum, lýs-
ir lífi Terryar dóttur
sinnar í samnefndri
bók. Terry var alkó-
hólisti og varð úti
vetrarkvöld eitt í
Madisonborg á leið
heim til sín eftir drykkju-
kvöld. Hún sofnaði út af í
snjónum og fannst helfrosin
daginn eftir ekki langt frá
staðnum þar sem vinur
hennar hafði mætt sömu ör-
lögum nokkrum árum áður.
Terry var aðeins fjörutíu og
fimm ára þegar hún dó. Ge-
orge segir frá þeirri undar-
legu tilviljun að nokkru áður
hafi þau hjónin farið með
þessari dóttur sinni að
staðnum þar sem vinur
hennar fannst og lagt þar
rósir í minningu hans.
Sektarkennd, iðrun og
umburðarlyndi
George reynir að gera upp
stormasamt líf þessa barns
síns í bókinni. Hann segist í
dag ásaka sjálfan sig fyrir að
hafa dregið sig mikið út úr
lífi hennar í þeim tilgangi að
neyða hana frekar til að
takast á við vandann. Hann
iðrast þess að hafa ekki sýnt
meira umburðarlyndi og
segist hafa viljað sýna henni
betur að hann hataði alkó-
hólismann en elskaði sjúk-
linginn (hate the alcoholism
- but love the victim). Þessi
orð eru hans eigin útgáfa af
gömlum enskum málshætti:
„Hataðu syndina en elskaðu
syndarann."
Hann segir athyglisverða
sögu af því þegar Terry bjó
eitt sinn hjá Susan eldri syst-
ur sinni. Mikill tími fór í það
hjá Terry að velta sér upp úr
æsku sinni og atburðum sem
höfðu sært hana illa sem
Caroline Knapp skrifaði bók um ást-
arævintýri sitt og tlöskunnar.
Vikan 11