Vikan - 30.07.1999, Page 15
Við restaurant REYKJAVÍK í Prag. Þórir eigandi og Þórunn
kórstjóri umvafin inettum kórkrökkuni.
Valkyrjur í v íking.
ir allan hópinn fyrir 2000 kr. ís-
lenskar. En jafnframt á Prag
sér skuggahliðar stórborgar þar
sem fátækt kaliar á glæpi og
vasaþjófnaðir á þéttsetnum göt-
um og torgum tóku sinn toll af
okkur eins og fjölmörgum öðr-
um ferðalöngum. En allt
gleymdist það á siglingu um
Moldá, gönguferðum um
Karlsbrúna og gömlu miðborg-
ina þar sem tugir höggmynda
prýða að því er virðist hvern
mögulegan stað.
Þau tíðindi bárust að úr hópi
þátttakenda hátíðarinnar yrði
valinn einn fulltrúi til að koma
fram í vinsælasta þætti tékk-
neska sjónvarpsins og varð
Skólakór Kársness fyrir valinu.
Var almenn hamingja með
þessa upphefð a.m.k. þar til í
ljós kom að um var að ræða
beina útsendingu í morgunþætti
sem hófst kl. 7.00. Með undir-
búning í huga, svo sem stillingu
ljósa, förðun, raddupphitun o.fl.
voru vekjaraklukkur stilltar á
fjögur og nú var flugan hissa,
því allir kórmeðlimir, 55 að tölu,
voru sofnaðir kl. 9.00 kvöldinu
áður til að vera vel upplagðir í
sjónvarpinu. Þetta var því líkast
að um atvinnumannakór væri
að ræða en ekki skólakór 10 -16
ára ungmenna. Það var stolt
fluga á vegg í anddyri hótelsins
óljóst hversu lengi það tæki
okkur að komast yfir landa-
mærin. Og ég sem fluga á vegg
verð ég að segja að tónleikarnir
tókust stórkostlega vel og er þá
ekkert verið að gefa afslátt eftir
8 tíma ferðalag. Það grétu að
vísu ekki eins margar gamlar
konur, en pennavinum kórsins
fjölgaði verulega. Sæl og glöð
lögðum við upp í lokaáfangann
til Prag með lögreglufylgd já, og
hóp veifandi unglinga, tvær löd-
ur, einn skódi og nærbuxnablár
Volga station leigubíll.
Til Prag var komið snemma
um nótt og farið á lítið hótel
með stóru nafni. Vestrænar
dekurdúfur gátu séð ýmislegt
að aðbúnaðinum þar á bæ, en
þó var það nokkuð hreinlegt og
eftir hryllingssögur annars kórs,
sem var í Prag um Iíkt leiti, þar
sem rottur iðkuðu gönguferðir
um gluggakistur herbergjanna,
þótti okkur vistin hin frambæri-
legasta. En nóg um það. í Prag
tók kórinn þátt í fjölþjóðlegu
móti ungmenna þar sem tónlist-
arfólk víða að úr heiminum
flutti list sinna heimalanda und-
ir heiti hátíðarinnar „Childrens
festival of tolerance", sem hef-
ur það að markmiði að auka
skilning milli barna ólíkra þjóð-
félagshópa.
Prag er annars eins og lista-
verkasafn sem lætur engan
ósnortinn og verðlag er með
ólíkindum lágt fyrir okkur ís-
lendinga sem keyptum brauð,
ávaxtasafa, pylsur og jógúrt fyr-
sem horfði á morgunþáttinn
ásamt innfæddum og mikið
varð hún hissa þegar kórstjór-
inn og stúlka úr kórnum svör-
uðu spurningum um land og
þjóð á tékknesku (hljóðsett).
Eftir eril morgunsins var
stefnan sett á Austurríki í
afslöppun við Zell am See sem
virtist kærkomin hvíld eftir tón-
leika daglega samfellt í viku.
Niðurstöðum ferðarinnar má
helst lýsa með setningu úr sjón-
varpsviðtalinu við stúlkuna úr
Kársnesskórnum. Setningu sem
greiptist í hugann eftir þessa
ferð „Við á íslandi erum svo
lánsöm að vera rík þjóð“ og
flugan bætir við „af kórum sem
þessum“ Kenningin er því sú að
„velheppnaðar söngferðir" hafi
þrátt fyrir allt fullt gildi.
Vikan 15