Vikan - 30.07.1999, Page 23
frameftir og þig lystir.
Pú getur borðað morgun-
matinn í Ijóta, margþvegna,
íþróttagallanum þínum sem
er fimm númerum of stór.
Enginn karlmaður myndi
þola þá sjón. Þú getur setið
eins lengi yfir morgunkaff-
inu og þér sýnist og lesið
dagblaðið án þess að þurfa
að deila því með öðrum.
Líf án tengdamömmu
Eitt af því allra besta við
einlífið er að því fylgir engin
tengdamamma. Heyrir þú
ekki í anda sykursæta, en
jafnframt ógnandi röddina
segja: Þú hugsar nú vel um
drenginn minn, er það ekki?
Auðvitað, segir þú brosandi
og undirgefin þótt þig langi
mest til þess að slá hana í
hausinn með pönninni sem
þú stendur kófsveitt yfir.
Það er ekkert grín að fá
tengdaforeldrana í heimsókn
og neyðast til þess að leika
hlutverk hinnar fullkomnu
húsmóður þegar þig dauð-
langar að vera með vinum
þínum uppi í sumarbústað.
Það er heldur ekki auðvelt
að kyngja athugasemdum
um litinn á veggjunum í stof-
unni og hvað það er leiðin-
legt að þið ætlið ekki að
verja jólunum með þeim í ár.
Einhleyp kona kemst hjá því
að hlusta á illa duldar at-
hugasemdir sem segja henni
hátt og skýrt að tengda-
mömmu finnist þú alls ekki
nógu góður kvenkostur fyrir
þennan einstaka son hennar.
Svo ekki sé talað um sögurn-
ar af fyrrverandi kærustunni
hans sem var greinilega gull
af manni.
Áhyggjulaust einlífi
Einhleyp kona kemst hjá
því að vera kennd við Pétur
eða Pál. Það er talað til
hennar í annarri persónu
eintölu. Hún getur haft sínar
eigin skoðanir í friði. Hún er
ekki sá aðili sem botnar
setningarnar fyrir hinn
Það er bláköld stað-
reynd að jafnvel ham-
ingjusömustu
hjónabönd geta
endað með ósköp
um. Konan sem
býr ein losnar við
alvarlegustu
áhyggjurnar: Að
vera skipt út
fyrir yngri
konu. Hún
situr ekki
heima með
hjartað í háls-
inum meðan
hann vinnur yf-
irvinnu með flotta,
unga einkaritaranum.
Einhleyp kona þarf
ekki að hafa ábyggjur af
því að börnin hans úr
fyrra hjónabandi ákveði
að flytja til hans.
Hún þarf ekki að hafa
áhyggjur af séreignum og
kaupmálum. Og satt að segja
hefur hún engar áhyggjur af
háum skilnaðartölum. Það
þýðir að fleiri karlmenn eru
á markaðnum og það er jú
stór kostur ef einhleypa kon-
an kemst að þeirri niður-
stöðu einn góðan veðurdag
að hjónaband
sé auð-
veldara en einlífi. Gott og
vel. Við erum alla vega bún-
ar að láta ykkur vita af öllu
því góða sem þið missið af ef
þið skylduð velja þann kost-
inn.