Vikan - 30.07.1999, Page 46
sem nágrannarnir sjá, því
betra. Ég er í mjög slæmum
málum, ég hef aldrei verið
svona hrædd á ævi minni.
Segðu mér nafnið þitt og
heimilisfangið, sagði Brad
róandi. Við björgum þessu.
Finnst þér verra að ég komi
í kvöld?
Þegar samtalinu lauk hall-
aði hann sér aftur í stólnum.
Fyrsta alvörumálið hans! Og
ef honum skjátlaðist ekki
var þetta hvorki meira né
minna en morðmál!
Bingó!!!
Viktoría var svo ánægð að
hún gat varla hamið sig.
Hún hljóp inn í herbergið og
að náttborðinu, tók fram
svörtu bókina, fann blaðsíð-
una sem var merkt Brad og
gerði kross við nafnið hans.
Okkur tókst það, Rósalía!
Hún leit sigri hrósandi á
brúðuna sem sat á glugga-
kistunni.
Hún hafði fundið þau öll.
Nema Elanie, en hún var
svo gott sem gengin í gildr-
una. Já, og Rusty. Hún hristi
höfuðið. Hún hafði haft
óþarfa áhyggjur. Carol var
þá systir hans eftir allt sam-
an! En hún hafði líka séð
hann með hinni konunni.
Jæja, það skipti ekki lengur
máli. Hún var búin að gera
nýja áætlun og Rusty skyldi
fá að borga eins og hinir.
Viktoría greip um hendur
brúðunnar, lokaði augunum
og sá fyrir sér leikherbergið.
Hvernig verður leikher-
bergið þegar það er tilbúið,
pabbi?
Pabbi hennar lagðist við
hliðina á henni í rúminu og
strauk yfir hárið á henni.
Stórt og fallegt og fullt af
leikföngum, sagði hann.
Má ég halda veislur þar?
Segðu já, pabbi, gerðu það!
Allt sem þú vilt, prinsessa,
sagði hann.
Og mamma og Agnes
frænka mega ekki koma inn
í leikherbergið mitt! Bara
við tvö! Við getum meira að
segja átt heima þar pabbi.
Bara við tvö!
Hann brosti blíðlega til
hennar. Þær mega nú kíkja
inn svona við og við.
Hún kinkaði kolli og hann
fór fram úr rúminu og
breiddi sængina yfir hana.
Góða nótt, prinsessa. Hann
kyssti hana á ennið.
Og nú var Rusty búinn að
gera upp leikherbergið, al-
veg eins og pabbi hennar
hefði gert hefði hann lifað.
Ég elska þig pabbi, hvíslaði
hún.
Klukkan var rúmlega
fimm þegar Brad skilaði
bókabunka á bókasafn lög-
mannsstofunnar.
Ég sé að Henry frændi
lætur þig ekki sitja aðgerð-
arlausan, sagði Sara, ritar-
inn, sem var að tygja sig til
heimferðar.
Brad gretti sig og hún fór
með honum inn á bókasafn-
ið. Hver var það sem vildi
ekki gefa upp nafnið sitt?
Skjólstæðingur sem var
ráðlagt að hafa samband við
mig. Það lítur út fyrir að það
sé eitthvað stórt.
Til hamingju! Viltu að ég
útbúi möppu fyrir málið?
Það má bíða til morguns.
Brad mundi allt í einu eftir
svolitlu. Sandra, viltu gera
mér greiða áður en þú ferð?
Finndu fyrir mig möppuna
með upplýsingum um Agn-
esi Mills.
Hún fór inn á skrifstofuna
sína og kom til baka með
möppuna. Gjörðu svo vel.
Passaðu þig nú að vinna
ekki of lengi, Brad.
Hann settist við fundar-
borðið og opnaði möppuna.
Stuttu seinna hristi hann
höfuðið. Agnes Mills hafði
verið skjólstæðingur Henrys
frænda fyrir átján árum.
Hann hafði verið verjandi
hennar og fengið hana sýkn-
aða. Af ákæru fyrir að hafa
myrt Alex Salino.
Brad hafði ekki hugmynd
um hvort þessi vitneskja
kæmi Rusty til góða en það
sakaði ekki að hringja í
hann og láta hann vita.
Hann gæti gert það þegar
hann kæmi heim í kvöld eft-
ir að hafa hitt skjólstæðing
sinn!
Rae grúfði sig yfir mat-
reiðslubókina. Svo rétti hún
úr sér og bætti oreganó og
osti á pönnuna.
Get ég aðstoðað? spurði
Rusty og tók utan um hana.
Hún hristi höfuðið. Það er
nú ekki svo mikill vandi að
elda spaghettísósu. Matur-
inn er alveg að verða tilbú-
inn.
Hann beit hana laust í
eyrnasnepilinn. Það er nú
reyndar ekki spaghettí sem
mig langar mest í, hvíslaði
hann.
Hættu þessu! sagði hún.
Sestu í sófann meðan þú
bíður eftir matnunr. Hún
stakk spaghettíinu út í sjóð-
andi vatnið.
Þú ert sammála mér varð-
andi Rósalíu Salino, ekki
satt? Rusty teygði úr sér í
sófanum og lokaði augun-
um.
Ég held það, sagði Rae.
Þrátt fyrir að Agnes Mills
hafi ekki sagt okkur sann-
leikann þarf það ekki að
þýða að Rósalía hafi rænt
öllum vinum þínum. Og það
sem kom fyrir Carol í
skautahöllinni, og þótt
bremsurnar á bílnum mín-
urn hafi ekki virkað ... Hún
þangaði. Nema einhver
haldi að bæði Carol og ég ...
nei, það er of galið. Allir
vita að Carol er systir þín,
ekki satt?
Ekkert svar.
Hún sneri sér við og leit á
Rusty sem lá í sófanum.
Hann var steinsofnaður.
Brad gekk upp tröppurnar
með nýju skjalatöskuna í
hendinni og hringdi dyra-
bjöllunni. Hann mundi eftir
afmælisboðinu um leið og
hann sá húsið. Skrýtin tilvilj-
un. I gær höfðu þeir Rusty
verið að tala um Rósalíu, í
dag hafði hann uppgötvað
að Agnes Mills hafði verið
ásökuð um að rnyrða pabba
hennar og nú var hann kom-
inn í heimsókn í Salino-hús-
ið.
Viktoría opnaði dyrnar.
Kagan lögmaður? Hann
kinkaði kolli. Guði sé lof.
Mikið er ég fegin að sjá þig!
Hann heilsaði henni með
handabandi. Glæsileg kona,
hugsaði hann með sér.
Það er best að við tölum
saman í eldhúsinu, sagði
hún. Ég var að hita te.
Andartaki síðar sat Brad
við eldhúsborðið og saup á
sjóðandi heitu ávaxtateinu.
Það var langt síðan honum
hafði liðið svona vel. Hugsa
sér að þessi glæsilega kona
væri væntanlegur skjólstæð-
ingur hans.
Ég verð að muna eftir því
að spyrja hana hver hafi
mælt með mér, hugsaði hann
með sér.
Mikið er að verða fínt
hérna, sagði Viktoría sem
var kornin til þess að fylgjast
með Rusty leggja lokahönd
á verkið.
46 Vikan