Vikan - 30.07.1999, Page 56
Fyrirtíðaspenna
margar konur. Þessar konur hægt að leiðrétta hormónaó-
Adögunum fékk ég
bréf frá 18 ára
konu sem hafði
áhyggjur og kvartaði undan
ýmsu, m.a. hafði hún
áhyggjur af útferð, miklum
blæðingum og tíðarverkjum.
Ræddi ég þessa hluti í svör-
um mínum til hennar. Ég get
hins vegar ekki látið hjá líða
að ræða um fyrirtíðaspennu
líka en hún fer illa með
finna td. fyrir þreytu, pirr-
ingi, æsingi, þunglyndi og
skorti á sjálfstrausti. Þær fá
gjarna höfuðverk og brjóstin
verða þrútin og aum. Þær
þyngjast líka oft, fá bjúg,
sumar finna fyrir kyndeyfð
og aðrar taka jafnvel upp á
alls konar furðulegri hegðun
svo sem glæfraakstri, svo
fátt eitt sé nefnt. Einkenni
geta byrjað 3-7 dögum fyrir
blæðingar en hverfa fljót-
lega eftir að blæðingar
byrja. Sennilega stafar fyrir-
tíðaspenna í flestum tilvik-
um af hormónabreytingum,
en spenna, streita og tilfinn-
ingalegir erfiðleikar gera
ástandið verra.
Ég vil benda konum á að
þetta ástand er ekki hættu-
legt þótt erfitt geti verið að
fást við afleiðingar þess. Við
vitum þó að fyrirtíðaspenna
getur verið umtalsvert
vandamál fyrir margar kon-
ur og þarf að meðhöndla
með nærgætni og taka alvar-
lega. Það er sjálfsagt að leita
læknis og fara yfir málin og
leita greiningar. Stundum er
jafnvægið sé, ef það er fyrir
hendi, en mjög algengt er að
nota lyfið Primolut,10 mg á
dag frá 19. degi til 26. dags
tíðarhrings. Áhrif þessa eru
mjög sláandi og hefur þetta
hjálpað mörgum konum.
Sumar konur kjósa að
leita annarra leiða en að
nota lyf til að leysa þetta
vandamál og er þá þar helst
að nefna samhliða lækning-
araðferðir eins og smá-
skammtalækningar, nál-
arstungur, grasalyf og þrýsti-
punktanudd. Einnig er ráð-
lagt að skoða vel matarvenj-
ur og margir telja að vítamín
og slökun geti hjálpað mik-
ið. Um þetta er fjallað í
ýmsum bókum sem hafa
komið út um samhliða lækn-
ingaaðferðir hér á landi,
m.a. Lækningabók heimil-
anna. Það er einstaklings-
bundið hvað gagnast hverj-
um. Ég hvet ykkur til að
lesa ykkur til, spyrjast fyrir
og prófa sjálfar.
Gangi ykkur vel,
Þorsteinn
Kæri Þorsteinn,
Ég þakka fyrir svörin sem þú hefur sent
frá þér. Ég tók eftir því um daginn að þú
nefndir áburð sem notaður er á æðahnúta;
hann hét Escine. Ég er búin að leita að hon-
um út um allt og finn hann ekki. Hvar er
hægt að fá þennan áburð?
Kristín
Sœl, Kristín,
Þakka þér fyrir þessa ábendingu. Heiti
lyfs er ekki alltaf það sama alls staðar en
áburður með þessu innihaldi ætti þó að vera
finnanlegur, þ.e.(hrossa-)kastínu (Aesculus
hippocastanum. Ef hann fæst ekki í heilsu-
búðum væri reynandi að hafa samband við
grasalæknana Kolbrúnu Björnsdóttur eða
Arnbjörgu Lindu Jóhannsdóttur.
Gangi þér vel,
Þorsteinn
Spurningar má
senda til „Hverju
svarar læknirinn?“
Vikan, Seljavegi 2,
101 Reykjavík.
Farið er með öll
bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
Netfang: vikan@frodi.is
56 Vikan