Vikan


Vikan - 17.08.1999, Qupperneq 54

Vikan - 17.08.1999, Qupperneq 54
Ég var ekki nema tæplega tveggja ára þegar mamma yfirgaf mig. Ég var lausaleiksbarn sem þótti ekki fínt í þá daga. Mamma bjó ein með mig í Reykjavík og mér skilst að hún hafi þótt nokkuð lauslát. Hún kynntist Am- eríkana af Vellinum, þau giftu sig hér og hún flutti með honum til Bandaríkj- anna. Mér var komið í fóstur hjá móðursystur minni, en þar átti ég víst upphaflega að vera í eitt ár rneðan þau væru að koma sér fyrir. En ég var aldrei sótt og móðir mín hafði aldrei beint samband við mig. Eg vissi alltaf að ég var tökubarn á heimilinu þótt ég væri eins og eitt af systkinunum. Tvö þeirra voru eldri en ég, en við urðum sjö, krakkarnir, og það var mikil fá- tækt á heimilinu. Ég var alltaf svolítið feimin og inn í mig þótt ég væri ákveðin og ég hafði mig ekki mikið í frammi í krakkaskaranum. Ég kallaði móðursystur mína ýmist mömmu eða „Ellumömmu" en ég held ég hafi alla tíð fundið fyrir því að vera ekki ein af syskinunum og ég var alltaf að vona að mamma kæmi að sækja mig þótt það gerðist aldrei. Þær systurnar skrifuðust á og þegar ég var smábarn sendi mamma mér bæði leikföng og fatnað frá Ameríku. Ég man enn eftir því þegar þessir pakk- ar komu, þeir höfðu verið óra- tíma á leiðinni og það var alltaf spennandi að kíkja í þá. Hinir krakkarnir fengu alltaf eitthvað líka og meðan ég var smá- krakki var þetta mjög skemmti- legt. En þegar ég fór að þroskast og skilja betur það sem fram fór hætti þetta að vera gaman. Mamma mín sendi pakkana stílaða á systur sína og í pakk- anum voru alltaf einhverjar smágjafir til allra og föt á mig sem stundum pössuðu ekki og voru oft alls ekki í stíl við það sem var í tísku hér. Við vorum samt látin ganga í fötunum því ekki veitti nú af einhverri hjálp með heimilishaldið. Ég fékk auðvitað það sem passaði á mig, en ef fötin voru of lítil fengu yngri systurnar þau. Mér fannst eins og þau væru að stela mömmu minni frá mér og stundum gerðu þessir pakkar mig mjög leiða í skapi þótt ég talaði aldrei um það. Þegar ég stálpaðist hættu leikföng að fylgja með í pakkanum, en í stað þess fóru að koma ritföng, snyrtivörur og fleira nytsamlegt sem ekki var nærri því eins gaman að fá. Ellamamma las aldrei fyrir mig bréfin sem fylgdu, þau hafa eflaust verið kvennatal milli þeirra, en hún sagði mér hvernig mamma hefði það og að hún hefði spurt um mig og beðið að heilsa mér. Meira var það nú ekki. Þegar ég var sex ára fékk ég fyrsta áfallið. Þá sagði Ellamamma mér að ég ætti von á litlu systkini í Ameríku. Ég var víst ekki mönnum sinn- andi lengi á eftir, ég man enn eftir sorginni og afbrýðiseminni sem ég fann fyrir gagnvart þessu barni sem enn var ófætt. Ég spurði ekkert um þetta, ég vildi ekkert um það vita og lok- aði sorgina inni. Það var ekki fyrr en löngu seinna, þegar amma sagði mér að ég ætti lítinn bróður í Amer- íku, að ég fór að verða forvitin um hvernig hann og mamma mín byggju og hvað þau væru að gera. Mig fór smám saman að þyrsta í samband við mömmu og hálfbróður minn sem ég hafði ekki einu sinni séð mynd af. Ég var strax mjög dugleg að læra og veturinn sem ég var níu ára bað ég Ellumömmu um heimilisfang mömmu svo ég gæti skrifað henni. Ég skrifaði mömmu fallegt bréf sem ég skreytti með myndum og sagð- ist sakna hennar. Ég beið milli vonar og ótta eftir svarinu. Stundum bjóst ég við að ég fengi ekkert svar heldurfengi Ellamamma bréf með kveðju til mín í staðinn. Stundum var ég þess fullviss að ég fengi langt bréf með myndum af henni og bróður mínum og að hún segði mér að hún ætlaði að koma að sækja mig þegar skólinn væri búinn. En hvorugt gerðist. Eftir óra- tíma fékk ég loksins svarið. Mamma þakkaði mér fyrir bréf- ið og sagði að henni finndist ég skrifa mjög vel og að hún væri stolt af þvf hvað ég væri dug- leg í skólanum. Hún sagði mér líka að það væri pakki á leið- inni með jólakjól og kápu á mig og ýmsu smádóti sem við krakkarnir ættum að skipta á milli okkar. Annað var ekki í þessu bréfi. Ég grét mig í svefn um kvöldið, las bréfið aftur um morguninn og brenndi það síð- an. Ég sá auðvitað eftir því strax, en ég var svo sár að ég gat ekki brugðist öðruvísi við þessu bréfi, ég hafði vonast eftir tilfinningalegu svari. Ein- hverjum viðbrögðum við mér persónulega og kannski ein- hverju loforði frá móður minni. En það kom ekki. Pakkinn skilaði sér hins veg- ar og ég varð fegin að sjá að kjóllinn passaði mér ekki, en kápuna fékk ég og notaði spari í tvö ár. Við stelpurnar fengum iíka mjög fínar snyrtitöskur með greiðu, hárbursta, skraut- sápu og tannbursta í og það besta af öllu í pakkanum var mjög fallegt bréfsefni með mynd af stelpu með blómvönd og það fékk ég til að ég gæti skrifað mömmu aftur. Hefði ég ekki fengið þetta bréfsefni hefði samskiptum mínum við mömmu lokið þarna, en ég jafnaði mig á áfallinu og um vorið skrifaði ég annað bréf þar sem ég sagði mömmu frá einkunnum mínum. Ég fékk álíka svar og áður, ekki stakt orð um hana né bróður minn og engar spurningar um mig. Ég skrifaði þó mömmu minni alltaf á nokkurra mánaða fresti og fékk bréf til baka, alltaf jafn ópersónuleg. Þegar ég var þrettán ára kom svo seinna áfallið. Mamma mín skrifaði Ellu- mömmu og sagði henni að hún ætlaði að koma til íslands til að vera við fermingu mína. Ég fylltist spennu; blöndu af til- hlökkun og kvíða. Mamma 54 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.