Vikan


Vikan - 17.08.1999, Síða 58

Vikan - 17.08.1999, Síða 58
! 4 InI Það eru þónokkuð mörg ár liðin frá því ég fjárfesti i alparósinni minni, sem ég ætti kannski að kalla lyngrós því það mun vera hennar íslenska nafn. Rósin var í blóma þegar ég keypti hana, með að minnsta kosti sjö blómhvirfingar eða -skipanir, eins og það er kallað í blómabókunum, en i hverri blómskipun eru um 10 blóm. Blómin stóðu alliengi og nú horfði ég með tilhlökkun fram til næsta sumars. Vikan Grœnt og vœnt Myndin er lckin suniarið sein Ivær blóinskipanir birtust á lyngrósinni niinni. Þser voru fal- legar, ekki síður en þær sein á henni voru suinarið sein ég keypti hana, en ég bíð cftir að þær verði fleiri. Vonandi verður sú bið ekki iniklu lengri en þegar er orðið. (Ljósmynd: Fríða Bjiirnsdóttir) sá þrýstnari hnappa en ég hafði áður séð á endum tveggja greina á rósinni. Og gleði mín reyndist ekki ástæðulaus því næsta sumar breyttust þessir hnappar í blóm en ekki ný blöð eins og áður hafði gerst. Því miður urðu blómskipanir aðeins tvær. Nú í sumar urðu þær þrjár og hver veit nema rósin verði jafnfalleg næsta sumar og hún var sumarið sem ég keypti hana. Venjulega er talað um að lyngrós þurfi súran jarðveg. Blöð rósarinnar minnar hafa verið heldur fölleit svona af og til en ég hef bætt henni upp lélegan jarðveg með því að gefa henni það sem kallast Blómakraftur - Súr. Utan á flöskunni er sagt að áburður- inn sé ætlaður plöntum sem þurfi súran jarðveg, til dæmis lyngrós, alparós, gardeníu og hortensíu. Ekki veit ég hvort meðhöndlun mín hefur verið rétt eður ei en að minnsta kosti hefur litur blaðanna orð- ið fallegri eftir nokkra áburð- argjöf. Annars sagði Ólafur Njálsson í Nátthaga í Ölfusi, þekktur garðyrkjumaður og sérfræðingur í alparósarækt, í viðtali í Morgunblaðinu síð- astliðið vor að hann hefði ein- faldað kenningarnar um súra jarðveginn og alparósirnar. Hann blandar jarðveginn til helminga með hænsnaskít og segir að þannig fáist mikið af lífrænum efnum sem rósirnar þurfi og með þessari blöndu súrni jarðvegurinn líka. Það er því ekki úr vegi að fara að ráðum Ólafs næst þegar alpa- eða lyngrós er gróðursett í garðinum. En viti menn. Vorið kom og ég fór að fylgj- ast með lyngrósinni. Mér sýndist að hún myndi bera fjöldann allan af blómum því alls staðar voru litlir blóm- hnappar eða það sem ég taldi vera hnappa. Það leið fram á sumarið og ég fylgdist daglega með gangi mála. Svo kom að því að mér varð ljóst að ég myndi verða fyrir hræðilegum vonbrigðum. Það sem ég hélt vera fyrirboða blóma reyndist boða komu nýrra blaða. Eng- in blóm komu á rósina þetta sumarið. Sígræn blöð rósarinnar höfðu látið töluvert á sjá yfir veturinn og líklega höfðu þau ekki þolað vetrarkuldann og þurrkinn sem honum fylgdi. Eg fór að glugga í blómabæk- ur og komst að raun um að hér á landi er ekki verra að skýla lyngrósum yfir veturinn. Heppilegt er að stinga niður spýtum í kringum rósina og strengja síðan striga utan um hana. Ekki á þó að byrgja hana alveg með striganum heldur leyfa henni að hafa tækifæri til þess að „sjá til himins", jafnvel yfir hávetur- 0g svo komu blóm Annað og þriðja sumar rós- arinnar í garðinum leið og nú var mér orðið ljóst að ætti ég að geta búist við blómum mætti sjá þess merki að haustinu því blómhnapparnir myndast í raun síðsumars. Eg varð því himinlifandi þegar ég f ' f Æ f)f Fríða Björnsdóttir ósin kemur

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.