Vikan - 31.08.1999, Page 30
Ertu meiriháttar með
Vaskurinn er stútfullur af óhrein-
um glösum, nmtarleifarnar eru
farnar að skríða um í ísskápnum
og það er búið að loka símanum.
En er að þér að kenna? Taktu eft-
irfarandi persónuleikapróf og
kannaðu málið.
Þú og kœrastinn eruö í
hörkukeleríi þegar sú
sem þú leigir með kemur
skyndilega heim. Hvað gerir
þú?
a) Heldur áfram en lætur
minna bera á þér?
b) Heldur áfram uppteknum
hætti; það er hennar
vandamál ef hún er eitt-
hvað feimin.
C) Hellir upp á kaffi og von-
ast til að geta tekið upp
þráðinn að nýju seinna?
Hvernig berðu þig að
L::.jþegarþarf að deila
símakostnaði?
a) Lætur hinn aðilann sjá um
málin og borgar uppsetta
fjárhæð?
b) Þrífur símareikninginn til
þín og reiknar sjálf vand-
lega út hver á að borga
hversu mikið því þú treyst-
ir engum öðrum til þess?
C) Lætur þig hverfa?
Hvað persónu úrsjón-
U varpsþáttunum „Fri-
ends“ líkist þú mest?
a) Monicu?
b) Phoebe?
C)Joey?
JMeðleigjandi þinn er
farin erlendis í frí og
hefur skilið nýja, œðislega
kjólinn sinn eftir á rúntinu
sínu. Þú átt spennandi stefnu-
mót og ekkert til að fara í.
Hvað gerir þú í stöðunni?
a) Stenst freistinguna.
b) Hengir kjólinn inn í skáp
fyrir hana?
C) Notar kjólinn og vonast til
að hún taki ekki eftir
blettinum sem kom í
hann?
FV Einhver hefur ekki
L . sturtað niður úr klósett-
inu. Hvernig bregstu við?
a) Boðar fund í snarheitum
og heimtar að fá að vita
hver sökudólgurinn er?
b) Sturtar niður og gleymir
þessu?
C) Hleypur öskrandi út af
baðherberginu og lætur
meðleigjandann sjá um
málið?
Pl Enn og aftur er engin
bJ mjólk til í ísskápnum og
þú keyptir mjólk síðast þegar
keypt var inn til heimilisins.
Hvað gera bœndur nú?
a) Lætur þig hafa það að
drekka svart kaffi?
b) Kaupir meiri mjólk en
gætir þess að allir sem búa
með þér viti hver keypti
hana?
C) Býrð til einfalt kerfi til að
notast við innkaup?
IKœrasti meðleigjanda
þíns gefur þér greinileg
merki um að hann sé spennt-
ur fyrir þér. Þú hefur sömu
tilfinningar til hans. Hvað
gerir þú?
a) Skellir þér út í ástarsam-
band með honum. Allt er
leyfilegt þegar ástin er
annars vegar?
b) Lætur hann vita að þú haf-
ir engan áhuga, þrátt fyrir
að þú sért spennt fyrir
honum?
C) Varar meðleigjanda þinn
við daðurgirni hans?
IHvað gerir þú þegar þú
pirrast á einhverju í
heimilishaldinu?
a) Skilur eftir ruddaleg skila-
boð til meðleigjenda þinna
um að þeir verði að taka
sig á?
b) Róar sjálfa þig niður og
ræðir við þá þegar þú ert
orðin rólegri?
C) Springur?
Hvað af eftirfarandi
hefur þú aldrei gerst sek
um?
a) Stela þúsundkalli úr veski
meðleigjenda þíns tii að
komast í vinnuna?
b) Klárað sjampóið hennar
eða súkkulaðið sem hún
gleymdi inni í skáp og falið
síðan öll vegsummerki?
C) Segja við meðleigjendur
þína: „Þessi íbúð er eins
og hótel.“
d) Mælt magnið í mjólkur-
fernunni með penna.
e) Orðið vandræðaleg þegar
símareikningurinn kemur
sneisafullur af dularfullum
símtölum til útlanda ( „ég
þekki engan í Úrúgvæ“)?
f) Ryksugað með látum
klukkan sjö á sunnudags-
morgni?
g) Boðið allri fjölskyldunni
þinni í kvöldmat án þess
að vara meðleigjendur
þína við?
h) Tekið traustataki ilmvatn,
snyrtivörur eða föt frá
samleigjendum þínum án
þess að spyrja leyfis?
Stofan er í rúst, eldhús-
1U vaskurinn stútfullur af
óhreinu leirtaui og einhver
hefur hellt rauðvíni á teppið.
Hvað gerir þú?
a) Andvarpar mæðulega og
vindur þér í að laga allt til
eftir hina sóðana?
b) Stingur upp á að þið farið
öll í hreingerningarstuð,
margar hendur vinna létt
verk og allt það?
C) Lætur draslið eiga sig?
FP| Hvar geymir þú geisla-
L__L diskana þína?
a) í stofunni svo að allir geti
notið þeirra?
b) Felur þá í svefnherberginu
þínu?
C) Á gólfinu?
pH Hugmynd þín að frá-
Ui bœru kvöldi er...
a) Kúra í sófanum með vin-
um þínum, panta pizzu og
horfa á góða vídeómynd?
b) Sofa.
C) Bjóða fullt af fólki heim í
partý?
PH Þú ert að borða pasta í
L_L kvöldmat þegar með-
leigjandi þinn kemur
sársvangur heim. Hvað gerir
þú?
a) Deilir matnum með
honum?
b) Skóflar í þig matnum á
methraða og forðast biðj-
andi augnaráð hans?
C) Ferð með matinn inn í
herbergið þitt svo þú getir
notið hans í friði?
Nýr gœi er búinn að
Li&i bjóða þér á stefnumót.
a) Ferðu fram á að hann sæki
þig heim til þín svo vinir
þínir geti mælt hann út?
b) Heldur honum fjarri þeim
eins lengi og mögulegt er?
C) Kynnir hann fyrir liðinu
30 Vikan