Vikan


Vikan - 31.08.1999, Síða 36

Vikan - 31.08.1999, Síða 36
lambafWift enasósu Verði ykkur að góðu! 1 bolli vínber að eigin vali 1 bolli hvítvín, má sleppa. 5 dl rjómi maizenasósujafnari grænmetiskraftur hvítur pipar Sjóðið vínber í hvítvíni í u.þ.b. 2-3 mínútur eða hitið í smjöri ef ekki er notað hvítvín. Rjóma er bætt út í og soðið niður þangað til þykktin er orðin hæfileg. Einnig má þykkja með sósujafnara þegar sýður. Sósan er bragðbætt með grænmetiskrafti eftir smekk. Hægt að drýgja sósuna með mjólk eftir að hún hefur verið þykkt eða hvítvínið/rjóminn verið soðið niður. Krydd: Grænmetiskraftur, hvítur pipar. Viðauki: Vínberjasósa: Mikilvægt að vínberjabragðið komi fram í sósunni, bragðið af sósunni á vera milt og saman myndar réttur- inn frábæra bragðsamsetningu þar sem gráðaosturinn, lambafilletið og annað sem tilheyrir réttinum á að njóta sín hvað bragðið varðar Bakaðar kartöflur Að pakka kartöflum í álpappír og elda í ofni eða á grilli er líklega þekktasta aðferð við að baka kartöflur á íslandi. Önnur aðferð við að baka kartöflur er að strá grófu sjávarsalti í ofnskúffu, setja þvegnar, þurrar kart- öflur ofan á saltið, pensla þær með ólífuolíu og baka í ofni við 180-200 gráður í 40-60 mínútur (fer eftir ofn- um, hitastigi og stærð kartaflna). Fyrr í sumar ákváðum við að kaupa grill sem hefur reynst mjög vel. Um er að ræða sterkt og öflugt grill, sem skilar fínum bragðgæðum, ásamt hliðarhellu þar sem hægt er að elda sósur eða súpur, sjóða grænmeti o.fl.. Allt þetta eru atriði sem ber að hafa í huga þegar grill er valið. Til fróðleiks um myndir: Lambafiile frá kjötumboðinu Goða Grill frá Olís búðinni Ármúla. Diskur frá Silfurbúðinni. Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.