Vikan


Vikan - 14.09.1999, Blaðsíða 4

Vikan - 14.09.1999, Blaðsíða 4
lesandi... Verslum heima Þ að erfarið að hausta , og farfuglarnir eru að kveðja. Það er svo merkilegt að um það leyti sem farfuglarnir hefja sínar árlegu ferðir mót suð- lœgari heimkynnum hefja íslend- ingar líka sínar árlegu ferðir - til vershmarborga erlendis. Sem betur fer held ég að þessum ferðum sé að fcekka. Fólk er farið að sjá að þessháttar ferðalög borga sig engan veg- inn, hvernig sem það reiknar. Það liggur í augum uppi að það má versla ansi mikið til að spara upp í farmiðann, hót- elkostnað og allan annan kostnað sem leggst ofaná s.s. leigubíla, dýran mat og drykk ogfleira. Eg er viss um að allir lesendur Vikunnar hafa heyrt neyð- arlegar sögur af fólki sem komið hefur heim með margar töskur fullar af leikföngum ogfatnaði sem síðan ekki pössuðu eða engin not voru fyrir. 1 fyrra hitti ég örþreytta frœnku mína sem var að koma frá Edinborg. Þar hafði hún keypt reiðinnar býsn affötum á sjálfa sig sem hún nennti ekki að máta og þegar hún kom heim féll margt að því alls ekki að hennar smekk eða pass- aði ekki. Hún bjóst ekki við að nota nokkurn tíma dragt og tvœr blússur sem hún keypti, og tvenna skó segist hún sennilega aldrei nota heldur, því aðrir passa alls ekki veðráttunni hér heima, en smella á hinum hafði rifnað upp á leiðinni heim. Þessi sama kona hafði líka keypt gallabuxur og ann- an fatnað á tvo unglinga sem hún á og hún sagðist ekki bú- ast við tvennar gallabuxur og ein úlpa af unglingafötunum yrðu nokkurn tíma notuð. Það er staðreynd sem ekki verður hrakin, að þegar fólk fer í utanlandsferðir gagngert til að versla, þá kaupirþað miklu meira en það hefur þörffyrir eða mundi gera Iteima hjá sér. Auk þess kaupir það oft eitthvað sem ekki passar eða nýtist ekki aföðrum ástœðum. Og til hvers erum við að versla erlendis? Við þurfum þess alls ekki. Hér á landi eru glœsilegar versl- anir, fullar af fallegum vörum. Vöruverð hér hefur lœkkað mikið á síðustu árum og í mörgum tilfellum eru vörurnar lítið sem ekkert dýrari en erlendis og örugglega ekki svo að það borgi sig að borga fargjald til útlanda fyrir þann mis- mun. Auk þess er það okkar eigin hagur að versla heima. Hér höfum við nægan tíma til að skoða það sem við höfum áhuga á að kaupa og velja það á skynsamlegan hátt. Við höfum möguleika á að skipta vörunni efhún passar ekki, við njótum ábyrgð á því sem við kaupum og við byggjum upp okkar eigið efnahagslíf og ýtum undir enn betri þjón- ustu nœst þegar við þurfum á henni að halda. Ég er ekki þarmeð að leggja til að fólk hœtti að ferðast til útlanda, síður en svo. Það er bara svo margt annað að sjá í útlöndum en verslanir og því ekki að spara með því að versla skynsamlega heima á íslandi ogfara svo til útlanda til að njóta lífsins. Njóttu Vikunnar! Jóhanna Harðardóttir Ritstjóri Sigriður Arnardóttir Útgefandi Fróði Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599 Stjórnarformaður Magnús Hreggviðsson Aðal- ritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515 5515 Framkvæmdarstjóri Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515 5512 Ritstjórafulltrúi Jóhanna Harðardóttir Sími: 515 5582 Vikan@frodi.is Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Margrét V. Helgadóttir Auglýsingastjórar Kristín Guðmunds- dóttir og Anna B. Þorsteinsdóttir Vikanaugl@frodi.is Grafískur hönnuður Guðmundur Ragnar Stein- grímsson Verð í lausasölu Kr. 459,-. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti Kr. 344,-. Pr eintak . Ef greitt er með gíróseðli Kr. 389,-. Pr. eintak. Litgreining og myndvinnsla Fróði Unnið í Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir Áskriftarsími: 515 5555 Steingerður Hrund Margrét V. Kristín Steinars- Hauksdóttir Helgadóttir Guðmunds- dóttir blaðamaður blaðamaður blaðamaður dóttir Anna B. Þorsteins- dóttir auglýsinga- auglýsinga- Guðmundur Ragnar Steingrímsson Grafískur hönnuður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.