Vikan - 14.09.1999, Side 6
Úlfur Agnarsson barnalæknir ræðir um börn og heilsufar þeirra
BÖRN ÞJÁST LÍKA
ÍWAW
Úlfur Agnarsson barna-
læknir segir að streita sé
áberandi hjá mörgum ís-
lenskum börnum. Hann
segir að börn, sem eru
undir streituálagi, kvarti
meira um líkamlega verki
og ónot og líði oft illa. Úlf-
ur hefur stundað lækning-
ar í 21 ár. Hann nam
læknisfræði við Háskóia
íslands og fór siðan til
Bretlands í sérnám í
barnalækningum. í viðtali
við Vikuna ræðir hann um
heilsufar íslenskra barna
og lýsir því hvernig er að
vinna með þessum ungu
sjúklingum, sem margir
hverjir eru ekki enn
talandi.
99
Þegar ég var í læknis-
fræðinni blundaði
það alltaf í mér að
verða barnalæknir. Ég
hef alltaf átt gott með að
eiga við krakka og áhugi
minn var á þessu sviði. Um
tíma stefndi hugur minn til
heimilislækninga en eftir að
hafa starfað um hríð sem
heimilislæknir í Svíþjóð og
Noregi ákvað ég endanlega
að hefja sérnám í barna-
lækningum,“ segir Úlfur.
II
k 01
oi ro
-Q *■
>o m
tc >.
4* 3
J; 2 Hann er sjálfur fjögurra
n ™
'0 o
a j;
= 1
x E
í S
barna faðir og er kvæntur
Ástu Gunnlaugu Briem hús-
móður og BA í frönsku.
Er ekki erfitt að vinna
með og greina sjúklinga sem
margir hverjir eru ekki enn
talandi?
„Sjúklingahópur minn er
auðvitað mjög breiður, allt
frá kornabörnum, sem ekki
geta lýst sjúkdómseinkenn-
um sínum, til unglinga. En
hér hjálpar reynslan manni
mikið. Vissulega geta komið
upp erfið tilfelli en þau
koma upp alls staðar. Þetta
er yfirleitt ákveðið ferli og
maður passar sig á að spyrja
börnin ekki mjög leiðandi
spurninga því þá svara þau
auðvitað bara eftir því.
Maður reynir að hafa spurn-
ingarnar bæði opnar og fjöl-
breyttar. Þegar um korna-
börn er að ræða þá gefur
frásögn foreldra af hegðun
og einkennum barnsins oft-
ast mjög góðar vísbendingar
um hvað sé að. Maður spyr
þá til dæmis hversu lengi
ákveðin einkenni hafi verið
til staðar og hvort eitthvert
munstur sé í hegðun barns-
ins. Svo skoðar maður að
sjálfsögðu barnið til þess að
fá fullvissu sína og endan-
lega niðurstöðu. Oft er þá
um að ræða einhvers konar
sýkingu, eyrnabólgu eða
magakveisu."
Tungan föst aftan frá
Finnst þér á einhvern hátt
öðruvísi að vinna með börn-
um en fullorðnum?
„Já, það er það að mörgu
leyti. Fullorðið fólk hefur
auðvitað lifað lengur og
heilsufarssaga þeirra er bæði
lengri og yfirleitt flóknari.
Það síðarnefnda fer að vísu
eftir vandamálum. Ef þú
þekkir viðkomandi sjúkling
mjög vel og hefur annast
hann lengi þá tekur oft ekki
langan tíma að greina hvað
er að, ef hann er að koma
til þín í fyrsta sinn þá getur
verið dálítið tímafrekt að
greina flókin vandamál. Þá
eru krakkar á vissan hátt
opnari og jákvæðari og þau
bera vandamálin meira utan
á sér en fullorðið fólk. Mað-
ur finnur fljótlega hvort eitt-
hvað er að eða ekki. Oft er
bara nóg að horfa á barnið.
Það getur verið með hita en
það er kannski ekkert alvar-
lega veikt. Oft er hægt að
átta sig á því með því að at-
huga hvernig barnið kemur
fyrir. I þessu er starfsreynsl-
an auðvitað mjög mikilvæg.
Börn geta verið alveg yndis-
lega skemmtilegir sjúklingar
og koma oft með gullkorn.
Sem dæmi má nefna dreng-
inn sem kom í læknisskoðun
og var beðinn um að reka út
úr sér tunguna. Hann svar-
aði alvarlegur í bragði: Ég
get það ekki. Hún er föst
aftan frá.“
Hvernig telur þú heilsu ís-
lenskra barna almennt vera?
„ Almennt held ég að
heilsa íslenskra barna sé góð
en heilsufarsvandamál
þeirra fara auðvitað svolítið
eftir aldri. Fyrirburar eru
erfiður hópur og eiga þeir
oft við ýmis erfið heilsufars-
vandamál að stríða. Mikið
af þeim vandamálum, sem
læknar eru að glíma við hjá
börnum á fyrstu 18-24 mán-
uðunum, eru afleiðingar
vandamála sem hafa komið
upp strax við fæðingu og hjá
börnum sem fæðast fyrir
tímann. Vandamálin sem
fullburða og hraust börn
glíma við á fyrstu mánuðum
og árum ævi sinnar eru oft-
ast einhvers konar sýkingar,
t.d. RS-vírus, sem leggst á
öndunarfærin og kemur oft í
faröldrum. Þessi vírus kem-
ur upp á hverju ári, oft í jan-
úar, febrúar og mars, en
slæmir faraldrar koma á 3-5
ára fresti. Þá þurfa mun
fleiri börn að leggjast inn en
venjulega. RS-vírusinn lýsir
sér þannig að börnin fá kvef,
hósta og hita og mjög lítil
börn eiga erfitt með að
sjúga. Vírusinn getur því
verið hættulegur litlum
börnum.
Úlfur meðhöndlar fjölda
barna og unglinga. Hér er
hann ásamt ungum dreng
sem var að koma í læknis-
skoðun til hans á St. Jósefs-
spítala í Hafnarfirði.
6 Vikan