Vikan - 14.09.1999, Síða 25
Raibókin hcfur lialdift inn-
rcift sína á hljóftbúkaniark-
aftinn mcft Mohilcplaycr.
getur síðan minnkað og
stækkað letur, snúið textan-
um á skjánum ef hann vill
hafa breiðari síðu og kveikt
ljós bakvið textann ef það
hentar honum.
SoftBook bókin er byggð
upp á sama hátt og Rocket
eBook, en umbúnaðurinn er
þó líkari gömlu, góðu bók-
inni, enda með kápu úr
svörtu leðri eins og gömul
Biblía. SoftBook bókin
kostar nú um 299 dollara
eða u.þ.b. 15.000 krónur, en
þar er kaupum á lesefni
nokkuð öðruvísi háttað;
hver kaupandi er skuld-
bundinn til að gerast áskrif-
andi að lesefni fyrir tæpa 10
dollara á mánuði eða 700 kr.
Þessi bók er því líkari bóka-
klúbbi.
Everybook rafbókin er
svo enn eitt fyrirbærið á
þessum nýja markaði. Þessi
bók er kannski sú sem verð-
ur vinsælust í framtíðinni
vegna gæða skjásins. Ev-
erybook er hönnuð eins og
venjuleg bók eða með opnu.
Skjárinn er mjög fullkominn
og hefur fína upplausn
þannig að litir og myndir
njóta sín til fulls. Bókin hef-
ur svo stórt minni að hún
getur borið allt að 200 bæk-
ur með myndum og litsíð-
um.“ Við getum boðið les-
endum upp á allt sem þeir fá
á pappír,“ segir Daniel
Munyan eigandi fyrirtækis-
ins. „ Hér fá lesendur allt
sem hægt er að prenta og
meira en það, því þeir geta
stækkað letur og myndir“.
En Everybook er enn dýr og
það kostar um 1500 dollara
(u.þ.b. 110.000 kr.) að kaupa
bókina sjálfa og fyrirtækið
hefur hannað hana ein-
göngu fyrir þá sem reikna
með að eyða a.m.k. 1000
dollurum í kaup á efni í raf-
bókina á ári.
Líka hljóðbækur
Rafbókamarkaðurinn
hefur líka hafið innreið
sína á hljóðbókamark-
aðinn. Audiable Inc. í
Wayne, New Jersey,
hefur nú þegar selt
mikið af svokölluð-
um Mobileplayer, eins kon-
ar ferðaspilara sem hægt er
að hlaða á hljóði í stað texta
af tölvu. Nú þegar hefur ver-
ið sett á markaðinn 17.000
klukkustunda lesefni af
ýmsu tagi sem kaupendum
rafhljóðbókarinnar er
boðið til kaups. Hljóð-
bókin kostar 299 doll-
ara og í hana má hlaða
7 klukkustunda efni
hverju sinni. Hér gildir
það sama og með hin-
ar bækurnar, það er
ómögulegt að flytja
efnið milli spilara,
þannig að ekki er hægt
að lána bókina nema
lána tækjabúnaðinn
um leið. Þegar eigand-
inn er búinn að hlusta
á bókina sína verður
hann að velja hvort
hann vill eiga efnið á
spilaranum eða kaupa
nýtt og setja yfir það
gamla.
Þessi nýja bók, rafbókin,
er það sem koma skal. Hér
er ekki um venjuleg bóka-
kaup að ræða. Lesandinn
kaupir rafbókina og kaupir
síðan hverja bók (eða annað
rit-
„Eigcndur Everybook la iill þau gæfti scm liægt cr aft bjófta á prcnti
og mcira til þar sem hægt cr aft stækka og niinnka bæði lctur og
myndir“ Evcrybook cr dýrasta útgái'an af ralbókinni.
Vikan 25
Softliook cr mcft lcfturkápu. Hún cr líkari
hókaklúhbi en bókasafni þar sem kaupcndur
hcnnar skuldhinda sig til aft kaupa áskrift að
bókuin fyrir lo dollara á niánufti.
verk) til eignar í hana beint
frá útgáfunni. Höfundarétt-
ur er mjög vel varinn með
þessu móti, því ekki er hægt
að lána bókina til aflestrar
nema lána viðkomandi raf-
bókina með öllu saman.
Rafbækur hafa marga
mjög góða kosti; þær eru
léttar og liprar, þær er hægt
að lesa í myrkri, það má
henda úr þeim því sem ekki
fellur í kramið og kaupa
annað lesefni í staðinn, það
þarf ekki að þurrka af þeim
í bókahillunum og það er
auðvelt að taka með þær
með sér hvert sem er.