Vikan


Vikan - 14.09.1999, Page 26

Vikan - 14.09.1999, Page 26
Texti: Steingeróur Steinarsdóttir Hversu traustum fótum stendur hjónaband þitt? Flestir meta gott hjónaband ofar ríkidæmi og starfsframa og kjósa jafnvel fremur ham- ingjusamt ástarlíf en góða heilsu. Nýjar rannsóknir bandaríska mannfræðingsins Johns Gottmanns benda til að ekki sé jafn erfitt að viðhalda góðu sambandi við maka sinn og áður var haldið. Hann gaf nýlega út bók sem heitir Sjö lykilatriði í að viðhalda góðu hjónabandi (The Seven Principles for Making Marriage Work). Gottmann skoðaði 650 pör og komst að því að lykilat- riði í að byggja upp traust samband væri að parið væri góðir vinir. Það þýðir ekki að hjón sem einnig eru nánir vinir rífist aldrei. Þau gera það en þau sætta sig frekar við galla hvors annars og þau láta ekki neikvæðar hugsanir og pirring í hvors annars garð (öll pör fá sinn skammt af slíku) kæfa góðu hliðar sambandsins. Þess í stað sætta þau sig við sér- visku hvors annars og sýna á hverjum degi á einhvern hátt hversu vænt þeim þykir hvoru um annað og hversu mikils þau meta hinn aðilann. Hvernig skyldi þitt samband vera á vegi statt? Taktu þetta próf og þá kemstu að því. Þegar þú og félagi þinn rífist um fjármál hvað ger- ist venjulega? a) þið talið saman um ástandið þar til þið finnið málamiðlun sem bæði geta sætt sig við, b) sá sem æpir hærra og end- ist til að rífast lengur ræð- ur, C) annað ykkar gefur eftir 26 Vikan en bíður þess aðeins að fá tækifæri til að launa hinu lambið gráa, Skoðið saman myndirnar hér á síðunni og hugsið um ykkar eigið samband. Minnir þetta ykkur á að... a) þú og eiginmaður þinn getið hlegið saman jafn- vel á ykkar verstu stund- um, b) það er kominn tími til að þið tvö reynið að skemmta ykkur saman aftur, c) eitt sinn gátuð þið hlegið saman en það er orðið svo langt um liðið að þið munið tæplega þann tíma, Þér finnst maðurinn þinn taka ráðleggingum þínum... a) alltaf vel jafnvel þótt hann kjósi að fara ekki eftir þeim, b) stundum vel en yfirleitt sem leiðindaafskiptasemi, c) mjög sjaldan vel. Hann er mjög ákveðinn og líkar alls ekki að aðrir séu að stjórna hans málum, Þú elskar konu- og bóndadaginn af því... a) þá fáið þið hjónin virki- lega tækifæri til að sýna hvort öðru hversu rnikils þið metið hvort annað, b) þeir eru rneðal fárra daga á árinu sem bóndi þinn sýnir einhverjar tilfinn- ingar, c) þú færð blóm og um- hyggju frá börnunum þín- um en yfirleitt verður þú fyrir vonbrigðum með auma tilburði eigin- mannsins sem er flest bet- ur gefið en skilningur á rómantík, Ef annað hvort ykkar vœri beðið að taka að sér aukavinnu, sem þýddi fleiri ferðalög og meiri fjarvistir frá heimilinu, hvað myndir þú gera? a) ræða hversu gott tækifæri þetta er og taka sameig- inlega ákvörðun um hvernig leysa skuli vanda- mál þessu samfara, b) hugsa þig vel um með til- liti til þarfa annarra fjöl- skyldumeðlima en lokaá- kvörðunina tekur þú ein og sér, c) tekur ákvörðun upp á eig- in spýtur sem eingöngu tekur mið af kauphækk- uninni og vegtyllum sem þessari nýju ábyrgð fylgir, Þið eigið brúðkaupsaf- mœli og foreldrar þínir gefa ykkur utanlandsferð. Þú ert... a) óskaplega ánægð og glöð yfir að fá rómantískt frí með þínum heittelskaða, b) þakklát en finnst of mörg vandamál fylgja því að þið bæði reynið að fá frí frá vinnu fyrir svo utan að ganga frá öllum laus- um endum varðandi heimilið, c) ert hrædd um að svona langur tími þar sem þú ert alein með karlinum komi til með að gera ykk- ur bæði hálfvitlaus. Meiri þörf væri á að gefa ykkur

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.