Vikan


Vikan - 14.09.1999, Side 29

Vikan - 14.09.1999, Side 29
og þótt við hefðum hringt heim til hennar væri nóg að hún skammaði mig einu sinni. Þá byrjaði hún að herma eftir mér og gerði það mjög andstyggilega. Ég sagði þá við hana hvort henni kæmi eitthvað við hvernig ég væri og talaði. Hún hermdi bara eftir mér og sagði með ljótu röddinni: „Kemur þér eitt- hvað við hvernig ég er? Svaraði svo sjálf: „Já, mér kemur það við.“ Ég spurði þá hvort hún héldi að hún ætti mig og mætti ala mig upp, hvort ég ætti kannski að koma til hennar hér eftir og spyrja hvort ég mætti fara í sund. Hún svaraði og sagði nei að Þar öskraði hún á okkur hverja spurninguna á fætur annarri og barði stöðugt í borðið um leið og hún gargaði: „Svariði mér, ha!“ ég væri til allrar guðs lukku ekki hennar barn og hún þyrfti ekkert að hafa af upp- eldi mínu að segja. Ég væri alltaf að ögra sér og sinni fjölskyldu og það mætti hún skamma mig fyrir. Ég spurði þá hvenær ég hefði verið að ögra henni en hún sagði að ég þyrfti ekki að spyrja að því. Ég sagði henni að þetta segði hún bara af því að hún myndi ekki eftir neinu til að segja um mig og hún gæti bara farið og látið mig í friði. Síðasta orðið sem hún hreytti út úr sér var skíthæl- ar og því var beint að mér og annarri stelpu, vinkonu minni, sem stóð þarna hjá og átti engan hlut að þessu máli. Lesandi segirfrá ÍV<;'|fví:ö#’i' Þá byrjaði hún að herma eftir mér og gerði það mjög andstyggilega. . v i K Eftir þetta sagði ég pabba og mömmu frá öllu; ég dró ekkert undan og laug engu. Þau áttu ekki orð yfir hvern- ig manneskjan gat hegðað sér. Ég hef reynt eins og ég hef getað að forð- ast þessa manneskju og strákinn henn- ar og nú er komið rúmt ár síðan þetta gerðist og okk- ur hefur ekki lent saman síð- an. Ég hélt að nú væri þetta loks allt búið en síðan frétt- um við að hún væri að flytja úr hverfinu og hún bæri það út um allt að það væri vegna mín. Ég hefði ofsótt hana og son hennar þannig að þau neyddust til að flýja undan mér. Sumum finnst þetta kannski ekki svo hræðilegt en mér hefur liðið mjög illa út af þessu. Ég var dauðhrædd við hana og þorði varla út af ótta við að hitta hana einhvers stað- ar og svo finnst mér ljótt að segja svona um aðra mann- eskju sem ekki er satt. Ég veit að ég gerði ýmislegt sem ég átti ekki að gera eins og að gera símaat heima hjá henni, öskra á hana og „gefa henni putta“ en „pæliði“ bara í aldursmuninum. Hún er svona 30-40 árum eldri en ég og ætti að búa yfir meiri þroska. Hún ætti að hafa lært meiri sjálfsstjórn en ég. Lesandi segir Steingeroí Steinarsdóttur sögu sína Vilt þú deila sögu þinni með okkur? Er eitthvað sem hefur haft mikil áhrif á þig, Jafnvel breytt lifi þínu? Pér er velkomið að skrifa eða hringja til okk- ar. Við gætum fyllstu nafnleyndar. Ilciniilisfangið er: Vikan - „Lífsrcynsliisaga", Selja' reur 2, 101 Keykjavík, Netfang: vikan@fr»ili.is

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.