Vikan - 14.09.1999, Page 31
Ökklabuxur, há stígvél, fínn toppur og sportleg peysa. Eva er
frekar lágvaxin, meö grannt mitti og ber sig mjög vel. Þessi
klæðnaður er fínn dagklæðnaður í vinnuna, en hann mætti
líka nota þegar farið er í bíó eða á mannamót hversdags.
Hér er Eva komin í huggulega buxnadragt.
Innan undir dragtinni er hún klædd þunnri
skyrtu sem hentar bæöi sem dagklæðnaður
og einnig spari. Buxnadragtin er létt og fín
og passar vel við öll tækifæri, hvort sem Eva
er að fara í leikhúsið eða á fund. Dragtin er
sígild og kvenleg og fíngerð eins og Eva sjálf.
IVIeð þessari dragt væri einnig hægt að nota
fallega, létta kasmírullarpeysu eða fíngeröan
sléttan topp úr fallegu efni til að gera hana
að kvöldklæðnaði. Dragtina má reyndar nota
á mismunandi hátt.
Nú er Eva tilbúin til aö fara út á lífið og búiö er að faröa
hana fyrir kvöldið. Guðrún notar til þess silfraða, bleika og
fjólubláa liti. Hún er i skrjáfpilsi, bol og vesti utan yfir. Pilsið
er þröngt í mittið en vítt um miðjuna og rykkt saman að
neðan. Vestið gefur efri hluta líkamans fyllingu. Eva sýnist
öll stærri og kvenlegri í þessum búningi en fínlegum kjól.
Evu klæða ekki sterkir litir því hún er sjálf Ijós á húð og hár
svo Bogi hefur valið dempaða liti á hana.