Vikan


Vikan - 14.09.1999, Side 46

Vikan - 14.09.1999, Side 46
Framhaldssaga vind alla leiðina og það tók þau tuttugu mínútur að komast í land. Kaiser stýrði bátnum að smábátahöfninni en Francesca stoppaði hann. Leggðu bátnum við gömlu bryggjuna, sagði hún. En hún er gömul og fúin, sagði hann. Gerðu eins og ég segi! Aftur ætlaði hann að mót- mæla en ákvað að gera eins og hún sagði. Eins og þú vilt, sagði hann. Hún stökk í land um leið og báturinn lagðist upp að bryggju og dró börnin á eftir sér. Christian langaði að taka með sér veiðina en hún hristi höfuðið. Það er ekki hægt, vinur minn, sagði hún og reyndi að kreista fram bros. Við getum ekki tekið neitt með okkur þangað sem við erum að fara. Hafðu engar áhyggjur, sagði Kaiser. Ég lofa því að gæta fiskanna þinna. Hann horfði á eftir þeim hlaupa eftir bryggjunni. Allt í einu snarstönsuðu þau. Julian Ferrare stóð við enda bryggjunnar. Kaiser sýndist hún ætla að hlaupa til baka en svo sleppti hún börnun- um og gekk á móti eigin- manni sínum. Mikið er ég er fegin að sjá þig, heyrði Kaiser hana segja. Við héldum að þú hefðir stungið okkur af! Ekki satt, Hildy? An þess svo mikið sem að líta í áttina að Kaiser gengu þau saman upp á götuna þar sem Julian hafði lagt bílnum. Hann hristi höfuðið og horði undrandi á eftir þeim. Ferrare- fjölskyldan kom hon- um stöðugt meira á óvart eftir því sem hann kynntist þeim betur. Hvað í ósköp- unum hafði Francesca verið að gera á eyj- unni? Og hvers vegna lá henni svona mikið á að komast þaðan? Hann áttaði sig á að Julian var síðasti mað- urinn sem Francesca hafði átt von að að sjá þegar þau komu að landi. En hvers vegna? Hafði hún ver- ið að flýja undan honum? Einhvers staðar er að finna svörin við öllum þess- um spurningum, tautaði hann fyrir munni sér. Og ég er ákveðinn í því að finna þau, jafnvel þótt þetta komi mér ekkert við! Hildy lá á gólfinu í risher- berginu og horfði út um þakgluggann. Hún virti fyrir sér skýjaðan himininn og fylgdist með skýjunum breyta um lögun. Hún reyndi að útiloka allt annað til þess að þurfa ekki að hlusta á Christian spila sömu æfinguna aftur og aft- ur. Hún tók fyrir eyrun. Hann hafði verið að í marga klukkutíma, alveg síðan þau komu til baka frá eyjunni. Bara að Julian færi að sleppa honum! Hún þrýsti höndunum svo fast að eyrunum að hún heyrði ekki í honum fyrr en hann lagðist á gólfið við hliðina á henni. Christian, mikið er ég fegin að sjá þig, sagði hún. Ertu búinn með æfingarnar? Christian svaraði ekki. Var Julian reiður? spurði hún lágum rómi. Christian kinkaði kolli. Stór tár runnu niður kinnar honum og Hildy tók utan um hann og þrýsti honum að sér. Henni varð illt við til- hugsunina um Julian sitja við flygilinn og slá taktinn með gúmmíkylfu meðan aumingja Christian reyndi að slá á réttu nóturnar. Hún vissi að Julian sló kylfunni á fingur hans ef hann gerði minnstu skyssu. Eigum við að fara niður og skoða fjársjóðinn minn? spurði hún. Christian elskaði kassann sem geymdi fjársjóðinn. I honum geymdi hún uppáhaldshlutina sína; gamla knipplinga, fjólublátt glerbrot, fyrstu tönnina sem hún missti, hárlokk; allt sem var henni dýrmætt geymdi hún í gamla kassanum. í honum var líka gamalt sendibréf sem hún hafði fundið innan um mörg önn- ur í kassa uppi á háalofti. Hún hafði geymt það vegna þess að umslagið var svo fal- legt. Hildy brá þegar Christian hristi höfuðið. Hann hlaut að vera mjög miður sín ef hann vildi ekki skoða kass- ann. Hún reyndi aðra að- ferð: Hvernig var veiðiferð- in? Dökku augun fylltust tár- um. Ég fékk ekki að taka fiskana mína með mér heim. Ekki vera leiður. Kaiser sagðist ætla að passa þá fyrir þig og hann stendur við það sem hann segir. Ég er alveg viss um það! Hvað voruð þið mamma að gera á eyjunni? Við vorum í skógarferð. Við fórum til þess að fá okk- ur að borða. Svo sagði mamma allt í einu að henni væri kalt og Julian fór niður að bátnum til þess að ná í peysu handa henni. Þegar hann var kominn úr augsýn greip hún hönd mína og við hlupum niður á stöndina Vissuð þið af okkur þar? Hildy hristi höfuðið. Ekki ég, en mamma hlýtur að hafa gert það. Ég held að við ... Hún þagnaði og hugs- aði um það sem Julian hafði sagt þegar hann kom auga á þau. Ég vorkenni þér, Francesca. Hélstu virkilega að þú kæmist á undan mér í bæinn á þessu bátskríli? Og hvað ætlaðir þú svo að gera? Getur þú sagt mér það? Hildy skalf við tilhugsun- ina. Svo fann hún að Christi- an horfði á hana og hún reyndi að kreista upp hlátur. Hvað er ég að hugsa! sagði hún. Ég er næstum því jafn vitlaus og þú! Ég veit ekkert um hvað ég er að tala! En hún vissi að hún var ekki heimsk, bara mjög hrædd. Pabbi hennar spilaði á flygil- inn og tónlistin hljómaði upp í litla risherberið. í þetta sinn gerði tónlistin henni ekkert gott. Þvert á móti varð hún ennþá hrædd- ari. 46 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.