Vikan - 14.09.1999, Page 47
Svefntruflanir eru mun algengri en nokkurn gæti grunað. Þær
geta verið allt frá því að vera lengi að sofna og upp í það að
fólki verður vart svefnsamt lengst af næturinnar. Margir hafa
þurft að leita læknis vegna vandans og í verstu tilfellum hefur
það þurft á lyfjum að halda til að tryggja nætursvefninn. En
svefnlyf eru varasöm og sérstaklega til lengdar og því ætti fólk að reyna
allt annað áður. Hér eru nokkur góð ráð til að byrja með:
Hreyfðu þig reglulega. Hreyfingin heldur líkama og sál í formi og við
það aukast líkurnar á góðum svefni. Hreyfðu þig í dagsbirtunni ef þú
mögulega getur því það ruglar síður líkamsklukku þína.
Reyndu að slaka á fyrir svefninn. Til eru spólur með slökunartónlist og
þær auka á vellíðan og búa þig undir svefninn.
Varastu kaffi, te og áfengi seinni hluta dagsins og drekktu aldrei þessa
drykki á kvöldin þegar þú vilt sofa vel.
Horfðu ekki á sjónvarp síðasta klukkutímann áður en þú gengur til
hvílu og ekki hafa sjónvarpstæki inni í svefnherberginu. Sjónvarpið er
áreiti sem veldur uppnámi í huganum og kemur í veg fyrir slökun.
Borðaðu heilsusamlegt fæði. Allt sem stuðlar að líkamlegri heilsu
þinni gefur þér einnig betri möguleika á góðum svefni.
konan
Náttúru-
legir litir
gefa yfir-
leitt góða
raun sem
grunnlitir
í fatnaði
Slakaðu vel á fyrir svefninn
Klassíska konan, konan með tignarlega stílinn, er konan sem
við viljum allar vera inn við beinið. Þessi fallegi, klassíski
stíll eltist ekki við tísku, hann er ekki bundinn við sérstak-
an aldur eða smekk fyrir einhverri einni línu af fatnaði.
Hann er einfaldlega lífsstíll, vörumerki fágaðrar KONU.
Vikan hefur tekið saman einfaldar leiðbeiningar fyrir þær sem vilja
fikra sig í áttina að klassíkinni:
Einföld snið og vönduð efni eru lykillinn að því að fatnaður líti út fyrir
að vera dýr og klassískur. Forðist gróf mynstur og glannalega liti og sér-
staklega ef þetta tvennt fer saman. Veljið ykkur litalínu sem klæðir ykkur
og haldið ykkur við hana í flestöllum fötum sem þið kaupið. Þannig er
hægt að eignast samstæðan fatnað.
Grace Kelly hefði aldrei hrúgað á sig skartgripum. Hún hefði heldur
ekki notað skartgripi sem ekki pössuðu saman eða við það sem hún
klæddist. Notið fáa en vel valda skartgripi. Stundum er falleg slæða eða
ein glæsileg barmnæla allt sem þarf til að vera verulega fín í hvaða sam-
kvæmi sem er.
Þung, sleip efni sem falla vel klæða alla. Kaupið aldrei föt sem þrengja
að ykkur, verið viss um að fatnaðurinn falli frjálslega að líkamanum og
sitji hvergi fastur. Gætið þess að fötin sýnist aldrei þykk nema e.t.v. peys-
ur sem eiga að vera þykkar og hlýlegar.
Náttúrulegir, mildir litir, sem stinga ekki í stúf við hörundið og háralit,
gefa yfirleitt góða raun sem grunnlitir í fatnaði. Síðan má krydda fatnað-
inn með litskrúðugri blússu eða klút, einhverjum smáatriðum sem eru
samt áberandi.
Vikan 47