Vikan - 14.09.1999, Page 62
heimsókn til t/ngdamömmu.
Hún getur örugglega miðlaö til þín ýmsum hagnýtum upplýsingum um tilfinningalíf
sonar síns. Hún veit manna best hver uppáhaldskakan hans er og hvernig best er að
sinna honum þegar hann verður veikur, þessi elska. Þetta er eitt af boðorðum hjóna-
bandsins: Þú skalt ekki vanmeta tengdamóður þína!
Hér er loksins komin fra-
bær leið til þess að njóta
þess að sitja úti í fallegu
veðri þótt lofthitinn sé
ekki hár. Varmastandur er
tilvalinn til þess að hafa
við sumarbústaðinn, á
veröndinni eða úti i garði.
Standurinn gefur mikinn
yl og fallega, hlýlega
birtu. Að auki er hann
einfaldlega fallegur.
Varmastandurinn fæst hjá
heildsölunni Ögn og ertil
sýnis í versluninni I Gegn-
um Glerið Ármúla 10.
;
... Hatti og Fatti . Þetta er nýr íslenskur söngleikur fyrir
börn á öllum aldri sem er saminn af Ólafi Hauki Símonarsyni en hann er höfundur
fjölda skemmtilegra leikhúsverka. Fyrstu sögurnar um Hatt og Fatt urðu til fyrir 25
árum og slógu þeir félagar
þá rækilega í gegn. Hattur og
Fattur eru geimverur, sem
ferðast um á nokkurs konar
geimlandnemavagni. Sá er
fullur af spennandi dóti, sem
getur komið sér mjög vel á
löngum ferðalögum. Vinirnir
fara með áhorfendur í
ógleymaniega ævintýraför
um heiminn og því er leikritið
sambland af skemmtilegum
fróðleik og stórkostlegri
skemmtun. Nú fást lögin
þeirra á geisladiski sem ætti
að kæta börnin og eru þau
annars vegar sungin af glöð-
um og kátum leikurunum og hins vegar eru þau öll endurtekin án söngs svo að
allir geti sungið með í léttri karaókí-stemmningu! Hattur og Fattur bralla og sprella
í Loftkastalanum og geisladiskurinn fæst þar.
V