Vikan


Vikan - 05.10.1999, Qupperneq 24

Vikan - 05.10.1999, Qupperneq 24
Waris meö nióöur sinni. Waris í heini- sókn nieö BBC í þorp- inn sínn. Waris nieð nióöiir sinni og ætlingjinn. Nýlega fór Waris með BBC sjónvarpsstöðinni í ferð heim til þorpsins síns vegna heimildarmyndar sem þeir voru að gera um líf hennar. Waris hafði þá ekki komið heim í 15 ár. Vegna borgarastyrjaldarinnar í Sómalíu var of hættulegt fyrir hana að fara þangað ein. Hún varð ákaflega glöð yfir því að hitta móður sína og skyldmenni aftur en hún segir að hún sé með Afríku í blóðinu. „Fólk segir mér oft að ég sé falleg en það tók mig langan tíma að læra að segja takk fyrir þegar fólk sagði þetta við mig," segir Waris. „Þeir sem hrósa mér mest vita ekki hvað er undir yfir- borðinu. Móðir mín er fal- leg, hún er falleg hið innra. Hvað framtíðina varðar þá hef ég mjög rómantískar hugmyndir um hjónabandið og langar til að eignast börn. Kynlíf er mér ekki mikil- vægt en ég hef langt frá því misst tilfinningu alls staðar í líkamanum. Karlmenn eiga bágt með að skilja hvers vegna ég færist undan þegar þeir reyna að snerta mig. Þeir spyrja hvað sé að; hvort ég hafi andúð á kynlífi. Nú um stundir á ég mjög yndis- legan kærasta sem er mér góður. Ég á þó enn í miklum erfiðleikum með heilsuna vegna umskurðarins og því miður segja lækn- ar mér að ekkert sé hægt að gera. Um tíma gerði það mig mjög dapra en nú hef ég lært að lifa með því. Ég get hvort sem er ekkert gert til að breyta því sem gerðist. Það ætti að pynda þann sem átti upp- hafið að þessum andstyggi- lega sið. Umskurður kvenna er ruddafengin, ónauðsynleg og grimm misþyrming. Hún er mun verri en umskurður karla þar sem fjarlægður er örlítill húðsepi. Ég á mjög erfitt með að tala um þessa reynslu mína því þetta er ákaflega persónlegt vanda- mál en mér finnst ég verða að segja frá þessu ef það kynni að verða til að bjarga einhverjum stúlkum í Afr- íku frá sömu örlögum. Ég vil verða talsmaður þeirra og ef ég gæti bjargað þó ekki væri nema einni þeirra frá þessu kvalræði myndi ég fleygja öllu öðru frá mér og gera það." ustustúlku til að vinna í húsi sínu í London. Ég grátbað frænku mína að fá hann til að taka mig og það varð úr." Waris hafði aldrei komið í flugvél og hún lenti í verstu hremmingum þegar hún þurfti að fara á klósettið í vélinni; hún kunni ekki að sturta niður en hellti vatni úr litl- um bolla í skálina svo ekki sæjust ummerki um þvagið. Hún dvaldi um tíma hjá fjöl- skyldu frænda síns en ljós- myndari nokkur hafði margoft reynt að fá leyfi til að taka myndir af henni. Þegar frændi hennar var kallaður heim til Sómalíu aftur gróf hún niður vega- bréf sitt í garðinum og sagð- ist hafa týnt því til að þurfa ekki að fara með heim. Hún byrjaði á því að fá sér vinnu við skúringar hjá McDon- alds og herbergi hjá Hjálp- ræðishernum en fljótlega hafði hún samband við ljós- myndarann sem langaði enn til að mynda hana og síðan hefur leiðin legið upp á við. 24 Vikan Nokkrar staðreyndir um umskurð kvenna • Á hverju ári eru u.þ.b. 2 milljónir stúlkubarna umskornar í heimin- um. • í kringum 130 milljónir kvenna hafa þegar verið umskornar og lifa meö afleiðingu þess. • Fæstar stúlknanna vita hvað til stendur þegar þær eru vaktar upp um miðja nótt og leiddar út á vit örlaga sinna. Stór hluti þeirra deyr af völdum losts eða sýkinga. Umskurður kvenna er mismun- andi. Sums staðar tíðkast að klippa eða skera burtu snípinn og láta það duga, annars staðar eru innri skapabarmarnir og snípur- inn skornir burtu. Alversta teg- undin er þó þegar snípurinn og innri skapabarmarnir eru skornir burtu og stúlkubarnið saumað saman. Aðeins er skilið eftir ör- smátt gat til að þvagið komist frá barninu. Fætur stúlkunnar eru bundnir saman og hún þarf að liggja hreyfingarlaus í nokkrar vikur. (Sómalíu og Eþíópíu eru allt að 98% kvenna umskorin á þennan hátt. Stúlkurnar eru ekki deyfðar eða svæfðar áður en að- gerðirnar eru framkvæmdar. • Kynlíf er mjög sársaukafullt fyrir konu sem hefur verið umskorin. Þegar snípurinn er skorinn burtu verða taugaendar eftir og í hvert sinn sem karlmaðurinn þrýstir sér inn í konuna nuddast lífbein hans við þessa opnu taugaenda og veldur þaö ómælanlegum sárs- auka. Skurðlæknar á Vesturlönd- um hafa getað hjálpað konum með því að klæða örvefinn með fituvef annars staðar frá þannig að sársaukinn minnkar til muna. Séu konurnar saumaðar saman dregur það mjög úr teygjanleika húöarinnar við leggangaopið og í leggöngunum og því verða fæð- ingar einnig mjög erfiðar þessum konum. Sumar rifna mjög illa; svo illa reyndar að afskræming lík- ama þeirra á þessum stað verður enn meiri. • Blæðingar eru einnig mjög sárs- aukafullar fyrir umskornar konur og þær eru í stöðugri sýkingar- hættu. *' Samtökin Equality Now berjast fyrir því að umskurður kvenna verði bannaður alls staðar í heim- inum. Til að setja sig í samband við þau er best að skrifa Equality Now, P.O. Box 20646, Columbus Circle Station, New Vork, NY 10023.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.