Vikan


Vikan - 05.10.1999, Page 35

Vikan - 05.10.1999, Page 35
 300 g nautahakk 2 msk hvítlauksolía (sjá t.d. uppskríft er birtist í Vikunni í september sl.) eða ólívuolía 2-3 dl niðursoðnir tómatar úr dós 1 tsk. tómatmauk 3 stk. hvítlauksgeirar 1/2 stk. laukur meðalstór 1/4 stk. rauð paprika 1/4 stk. grœn paprika 8 stk. tacoskeljar t.dfrá Casa Fiesta 100 g. rifinn ostur 1/4 tsk. grófmalaður svartur pipar 100 g. tacosósa t.d. frá Casa Fiesta 1-2 msk. Tacoseasoning mix 1 msk. fersk steinselja Annað krydd: Hnífsoddur af þurrkuðu chílepipar. Aðferð: 1. Nautahakk ásamt fínsöxuðum lauk og papriku er steikt upp úr olíu og kryddað. 2. Niðursoðnum tómötum, tómat- mauki og tacosósu bætt út í. 3. Soðið niður í um 15-20 mínútur eða þar til sósan er hæfilega þykk. 4. Notið kryddið eftir smekk, ekki fara eingöngu eftir kryddhlut- föllum sem gefin eru upp held- ur eftir eigin smekk. 5. Hitið ofn í 200 gráður. 6. Setjið u.þ.b. 2 msk. af kjötfyll- ingu í hverja skel, má vera meira eða minna fer allt eftir því hvort í skeljarnar er bætt t.d. tómötum, avocado og káli. 7. Hér er gert er ráð fyrir að einungis sé kjötfylling í skelj- unum. Rifnum osti er stráð yfir fyllinguna og settinn i ofn í sa. 3-5 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður. 8. Ath. Þetta er einungis ein af fjöldamörgum aðferðum við að elda tacoskeljar. Sumir hita skeljarnar sér og setja svo t.d. kjötfyllingu neðst, síðan fínsaxaðan lauk, strimla af jöklasalati, tómatbita og í lokin rifinn ost. 9. Ég ætla að leyfa ykkur að ráða fram úr því hvor leiðin er valin eða jafnvel að prófa þær báðar. Einnig er hægt að þróa sína eigin uppskrift með þetta í huga. lO.Eitt hef ég ekki minst á, en það eru nýrnabaunirnar. Gott er að setja 1. dl. af soðnum nýrna- baunum úr dós út í kjötfyllingu. Ekki nauðsynlegt, en getur ver- ið góð tilbreyting. Meðlæti: Ýmiss konar brauð, melóna, ferskt salat og t.d. bráðið hvítlaukssmjör (sjá t.d. grunnupp- skrift, sem birtist ÍVikunni í ágúst sl.). Einnig er gott að bera fram avocado, sýrðan rjóma og tómat- salat. Vörur frá Casa Fiesta virðast hafa náð mikilli útbreiðslu hér á landi og hægt er að nálgast þær í flestum matvöruverslunum. Vikíin 35

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.