Vikan


Vikan - 02.11.1999, Blaðsíða 63

Vikan - 02.11.1999, Blaðsíða 63
N I C sem er komin út á myndbandi. Hér er um að ræða hörkuspenn- andi þriller með Nicolas Cage í aðalhlutverki. Þetta er nýjasta mynd leikstjórans Joels Schumachers sem gerði m.a. myndirnar Falling Down, A time To Kill og The Client. Söguþráðurinn er á þá leið að auðug ekkja hefur samband við einkaspæjarann Tom Welles og afhendir honum til rannsóknar 8mm filmu, sem hún fann í peningaskáp nýlátins eiginmanns síns. Á filmunni sést hvernig ungri stúlku er misþyrmt á hrottalegan hátt og hún síðan myrt. Rannsókn málsins leiðir Welles í undirheima Los Angeles og hann veit að afskipti hans af þessu geta kost- að hann lífið. ’*oricr. ,.Myopl.ex Lite næringar- arykknum. Drykk- urinn fæst með vanillu-, jarðarberja- og súkkulaði- bragði og er sérlega bragð- góður. Hann er sneisafullur af næringarefnum og hver skammtur inniheldur aðeins 190 kaloríur. Því er Myoplex Lite tilvalinn fyrir þá sem vilja létta sig en vera samt sem áður á heilsusamlegu nótun- um. Ráðlagt er að drekka einn hristing á dag og getur það komið í staðinn fyrir máltíð. Myoplex heilsuvörurnar fást hjá flest öllum heilsuræktar- stöðvum og í Heilsuhúsinu. Soá Vikunnar Hrúturinn 21. mars - 20. april Haustið sverfur að og vit- neskja sem þú hefur lúrt á nokkuð lengi verður nú sýnileg þótt þú hefðir viljað láta kjurt liggja. í tengslum við þessi umbrot er þér uppálagt að takast ferð á hendur. Þetta atvik og veörið síð- ustu vikur gerir þig eirðarlausan og pirraðan. Lausn á því er að fá góðan vin með sér í koddaslag. Nautið 21.apríl-21.mai Þegar rigning og slagveður er eins og hefur verið nú framan af hausti, eflist Nautsmerkingurinn og dafnar. Honum líður vel og allt leikur í höndunum á honum, samningar ganga vel, heimilislífið blómstrar, ástalífið er með eindæmum og vinir keppast um athyglina. Hefur þú ekki einmitt verið að velta þessu fyrir þér? Tvíburinn 22. maí - 21. júni Tunglið sveiflar sér inn í áhrifahring þinn þessa dagana og kyndir undir þá krafta sem eru þér hliðhollir, gríptu því gæsina og láttu drauma þína rætast. Nýir staðir, ný störf, ný ást, gleði og gæfa eru innan seilingar. Nýttu tímann vel því áhrifin vara ekki að eilífu. Krabbinn 22. júní - 23. júlí Sköpunargleðin er í fyrir- rúmi nú og Krabbar geta fundið sér vettvang til tekjulindar tengdan því. Heima - vinnandi Krabbi breytir bíl- skúrnum í verkstæði og sést varla í mat því það er svo mikið að gera. Komið er á samböndum sem leiða af sér ávæning beggja og þegar Krabbinn staldrar við er hann steinhissa á því hverju hann fær áorkað, en þú? Ljónið 24. júli - 23. ágúst Það er einhver ólga í loftinu og ekki frá því að upptökin séu innan fjölskyldunnar. Nú er þitt að hrista makkann og sýna hvað í þér býr, leystu málin, snúðu neikvæðu ferli í jákvæða þróun og þú munt uppskera nokkuð merkilegt. Neptúnus styður þig út þessa viku og hver veit nema hann lumi á sérstöku góðgæti. Meyjan 24. ágúst - 23. september Gamall vinurvekurupp kenndir sem þú taldir farnar, þetta hleypir auknum krafti í blóðrásina og þú ert tilbúinn til stórræða, hvort sem er í starfi, ástum eða leik. Framhaldið vekur hjá þér furðu en jafnframt gleði og þaö skilar sér í auknu öryggi og traustari framkomu. Úr stjörnunum má Wff lesa að hjá þér geti þetta tengst skóla eða ferðalagi. Uogin 24. september - 23. október Einhleypar Vogir eru á útkikki eftir vot- viðrasamt ástalíf framan af ári og nú virðist rétti tíminn til að leggja netin. Þótt pláneturnar hafi ekki verið þér hliðhollar framan af taka þær nú hönd- um saman um að rétta hag þinn og því má ætla að þér beri vel í veiði. XmC Sporðdrekinn 24. október - 22. nóvember Mars kemur þeysandi á fáki sínum inn í Steingeitarmerkið og sendir þér búnt af úrlausnum og orku. Þetta kemur sér sérstaklega vel einmitt nú og þú stígur stór skref fram á við. Gættu þín bara að láta ekki aðra næla sér í verk þin og gera þau að sínum til að hljóta umbun- ar sem er réttilega þín. 46 Bogamaðurinn 23. nóvember - 21. desember Einhver nákominn hefur verið óvenju úrillur og fúll að undanförnu og haft allt á hornum sér en fyrir smellna úrlausn þína snýr hann blaðinu við og verður stimamjúkur, gefandi og skemmtilegur. Njóttu augnabliksins út í ystu æsar meðan varir því hann gæti hrokkið í bakgír. Steingeitin 22. desember - 20. janúar Nú er það samvinna sem er lausnarorðið í flestum þínum málum þessa dagana. Gleymdar hugsjónir dúkka upp og setja þig í nýjar stelling- ar við framkvæmd mála. Vegferð þín vex þegar þú beitir snjöllum stílbrögð- um í starfi svo að umhverfið tekur kipp af athygli. Vatnsberinn 21. janúar- 19.febrúar Þrátt fyrir leiðinda nudd í hversdagslegum málum ertu meö húmorinn á hreinu og sérð það spaugi- lega í grámanum. Tunglið gægist óvænt fram og sendir þér sterka strauma svo þú verður allt í einu ægilega sjarmer- andi og ekkert í heiminum fær staðist lokkandi augnaráð þitt. Fiskarnir 20. febrúar - 20. mars Ýmislegt bendir til að utan- aðkomandi öfl reyni að hafa áhrif á þig þessa dagana og stjórna lífi þínu og ákvörðunum. En þú ert vel vopnum bú- inn eins og sagt er og veist fullvel hvað þL- wilf nn horft onno IniAonHi hnnH f\/rir þíi Amtsbókasafnið á Akureyri 03 591 1 73
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.