Vikan - 03.10.2000, Síða 52
Leysir vandann
Elsku Sigga Kling,
Mér finnst nú frekar skrýtið að
vera að skrifa svona og er eflaust
einn af fáum karlmönnum sem
skrifa þér. Ég er búinn að heyra
svo margt gott um þig svo að ég
ákvað að skrifa þér um vandamál
mitt. Ég er ráðalaus ungur mað-
ur en ég vil helst ekki segja til um
hvenær ég er fæddur. Ég veit nú
ekki hvernig ég á að byrja en er
ekki alltaf verið að segja að mað-
ur eigi að byrja á byrjuninni? Frá
barnsaldri hef ég alltaf fundið að
ég væri öðruvísi, ég veit reyndar
ekki hvort að það sé rétt að segja
öðruvísi en ég var allavega ekki
eins og þeir vinir mínir sem ég hef
alist upp með. í kringum ferming-
araldurinn þá viðurkenndi ég það
fyrir sjálfum mér að ég væri sam-
kynhneigður. Ég ákvað að segja
engum frá því en þetta var versti
tíminn í lífi mínu. Mér fannst ég
vera hræðilegur og hataði sjálf-
an mig fyrir það að hafa ekki
áhuga á kvenfólki eins og aðrir
strákar. Ég er í mjög stórum vina-
hóp og flestir vinir mínir eru
komnir með kærustur. Þeir sem
eru á lausu tala mikið um kven-
fólk og reyni ég að vera með í
samræðunum. Strákarnir vita
það að ég hef aldrei verið við
kvenmann kenndur og þrýsta
mjög mikið á mig til þess að sofa
hjá. Einhvern veginn hef ég kom-
ist hjá því. En fyrir stuttu kynnt-
ist ég stúlku sem virðist vera mjög
hrifin af mér. Þetta vita strákarnir
og eru að þrýsta ennþá meira á
mig. Síðustu helgi var svo haldið
partí sem þessi stúlka var stödd í
og strákar sem voru undir áhrif-
um áfengis voru að mana mig upp
í því að gera eitthvað með þessari
stúlku. Ég var orðinn svo rugl-
aður í hausnum að ég ákvað að
sýna þeim, og eflaust mér líka,
að ég gæti þetta alveg. Ég hugs-
aði þetta þannig að ef ég gæti
a.m.k. kysst hana þá gæti ég þóst
áfram. Svo að ég kyssti hana en
það var hræðilegt og mér leið al-
veg hryllilega illa. Ég vona að þú
misskiljir mig ekki, það er ekk-
ert út á þessa stúlku að setja, hún
er alveg yndisleg persóna og ef ég
væri fyrir stelpur þá myndi ég ef-
laust vilja vera með henni en ég
vil frekar kynnast henni sem vini.
Nú veit ég ekki hvað ég á að gera.
Ég get ekki verið að þykjast leng-
ur því að það er svo rangt og mér
líður svo illa af því ég er búinn
að búa til svo mikla sápuóperu í
kringum allt. Ég veit að ef að
strákanir komast að því að ég er
samkynhneigður þá hætta þeir að
tala við mig og ég veit ekki hvort
ég sé tilbúinn til þess. Þegar ég
hef farið út að skemmta mér þá
hef ég séð mikið af þekktum
hommum í samfélaginu og virð-
ist þeim líða vel svona og það
finnst mér alveg frábært en ég vil
ekki vera svona. Af hverju get ég
ekki borið kynferðislegar tilfinn-
ingar til kvenmanna? Af hverju
ég?
Þetta er alveg ótrúlegt en orð-
in virðast bara streyma frá mér, ég
gæti skrifað þér alveg endalaust
og mér líður aðeins betur en þeg-
ar ég byrjaði að skrifa. Þetta er
kannski orðið of langt svo að ég
kveð nú og vona að þú svarir mér.
Avallt Jón
Elsku Jón,
í gegnum lífið er maður sífellt að
velta fyrir sér hvað sé rétt og
rangt, hvað sé fallegt og hvað sé
ljótt og hverju maður eigi virki-
lega að trúa. Ég hef mikið velt
fyrir mér fordómum okkar fólks-
ins og reynt að setja mig í spor
þeirra sem verða fyrir þeim. Ég
myndi ekki verða himinlifandi ef
eitthvert af börnunum mínum
væri samkynhneigt. En ég myndi
samt ekki elska það neitt minna.
Það sem skiptir máli er ástin og
þú skalt bara bíða þangað til þú
verður ástfanginn af góðum
manni. Ég hef þá trú að þá mun-
ir þú vilja segja alheiminum frá
því. Ég tel að þú getir aldrei orð-
ið hamingjusamur með þetta
sem leyndarmál. Ég þekkti
stúlku sem giftist ung. Maðurinn
hennar var mjög þunglyndur og
reyndi oftar en einu sinni að fyr-
irfara sér. Enginn vissi hvers
vegna. Eftir tíu hörmuleg ár
sagði hann henni frá því að hann
væri samkynhneigður. Kannski
er betra að gera þetta upp við sig
strax og elska sjálfan sig eins og
maður er. Trúlega verða eitthvað
af vinurn þínum fyrir áfalli og láta
sig hverfa f einhvern tíma en ef
þeir eru raunverulegir vinir, þá
koma þeir aftur. Það er rosalega
mikilvægt að vera stoltur af því
sem maður er hvað svo sem mað-
ur er. Þessir þekktu hommar í
samfélaginu hafa ekkert að fela
oggetaþarafleiðandi látiðrigna
upp í nefið á sér sem er gott. Ég
skora á þig að elska sjálfan þig
svo þú getir blómstrað eins og þú
ert. Við erum það sem við hugs-
um.
Með vinsemd og virðingu,
Sigríður Klingenberg
p.s. Ég vil minna lesendur á að
það er hægt að senda mér bréf í
tölvupósti. siggakling@media.is
Ráðgjafasími minn er 908-
6500.
Lesendaleikur Vlkunnar og
Sjónvarpsmiðstöðvarinnar:
Glæsilegt 28“
Uníted sjonvarps-
tækl f ulnning! '
Það er ekkert rusl sem boðið er
upp á í lesendaleiknum bennan
mánuðinn:
28“ United sjónvarpstæki með
Black matríx myndlampa, 2X20
watta Nícam Stereo hljóðkerfi,
textauarpi með íslenskum stöfum,
tueim Scart tengjum, heyrnar-
tólstengí og fjarstýringu.
Þessi tæki kosta nú 36.900 krónur
í Sjónvarpsmiðstöðinni ehf., Síðu-
múia 2, Reykjavík.
Merkið umslagið:
Vikan,
Lesendaleikur
Seljavegí 2
121 Reykjauík
Svona farið Uið að:
Safnið þrem hornum framan af forsíðu Vikunnar.
Þegar þið hal'iö safnað þrem merktum forsíðuhorn-
um skulið þið senda okkur þau ásamt nalni, heim-
ilislangi, kennitölu og símanúmeri.
Dregið er úr innsendum umslögum um hver mán-
aðamót, hringl í vinningshafann og honuni senl
gjafabréf sent jafnframl er ávísun á vinninginn.
Siúnvarpsmiðstöðin
W -g SÍÐUMÚI
Vikan
SiÐUMULA 2 • SIMI 568 9090 • WWW.sm.is