Vikan


Vikan - 31.10.2000, Page 7

Vikan - 31.10.2000, Page 7
Hún Þorbjörg Hjartardóttir var ekki há í loftinu þegar hún fór að hafa áhuga á snyrtivörum. Hún var ekki nema fimm ára þeg- ar hún læsti sig inni á baðherbergi með snyrti- budduna hennar mömmu sinnar og málaði dúkk- urnar sínar og sjö ára þegar hún byrjaði að kaupa leikarablöð. Það er ólíklegt að þennan litla listamann hafi á þeim tíma órað fyrir því að í framtíðinni myndi hún framleiða eigin snyrtivörur og reka eigið fyrirtæki þar sem leikararnir sem birt- ust í leikarablöðunum eru fastakúnnar. = ið fslendingar þekkjum ~ ® Þorbjörgu best á því að .0= hún ferðaðist um heim- ^ ® inn með Vigdísi Finn- = 31 bogadóttur, fyrrum forseta ís- = lands, öll árin sem hún satáfor- £ ™ setastóli. Við sáum stundum c ._ myndiraf fallegu, fíngerðu kon- | » unni með rauða hárið, sem sá .0 “ um að greiða og snyrta Vigdísi u fyrir opinberar móttökur. ~ ^ Danir þekkja Þorbjörgu und- * £, ir nafninu Doddý, hið rammís- s lenska nafn hennar lætur illa í munni í Danmörku, þar sem Doddý hefur búið undanfarin tuttugu og sex ár. I dag rekur hún eigið fyrirtæki í Danmörku og er með tíu manns í vinnu. Doddý lærði hárgreiðslu á ís- landi ogfljótlega eftir að hún út- skrifaðist úr Iðnskólanum lagði hún land undirfótogfórtil Dan- merkur. „Ástæðan fyrir því var sú að mér leiddist á íslandi. Hér var svo mikil færibandavinna og mig langaði til þess að gera meira en starfið bauð upp á heima á íslandi. Ég hef alltaf haft mikla sköpunarþörf. Pabbi var listmálari, hann kenndi mér að elska náttúruna og skapa fal- lega hluti úr engu. Ég var alltaf með honum þegar hann fór út í náttúruna til þess að teikna skissur. Á meðan varð ég að drepa tímann á einhvern hátt og ég tók það sem hendi var næst, bjó til ýmsa hluti úr blómum og þess háttar. Litirnir í íslenskri náttúru eru engu líkir og þess- ar stundir með pabba þróuðu með mér sterka tilfinningu fyr- ir litum sem hefur komið mértil góða í starfi mínu.“ Duölín í Danmörku lengd- í Danmörku fékk Doddý starf hjá hárgreiðslufyrirtækinu Stu- hr, sem er vel þekkt t Danmörku og er með hundrað og sjötíu mannsívinnu. ,,Égætlaði upp- haflega að vera í þrjá mánuði en þeir mánuðir eru orðnir að tutt- ugu og sex árum. Málin þróuð- ust þannig að ég vann lítið sem hárgreiðslukona, oftast ekki nema einn dag í viku. Hina dag- ana kenndi ég við skólann sem fyrirtækið rak, vann sem stílisti, setti upp sýningar og ferðaðist mikið. Fyrir fjórtán árum stofn- aði ég fyrirtæki, Monsoon, ásamt dönskum starfsfélaga mínum. í dag rek ég fyrirtækið ein, ég keypti félaga minn út úr rekstrinum fyrir fjórum árum. Ég er með mikið af fastakúnn- um, bæði einstaklinga ogfyrir- tæki, til dæmis nokkur stórfyr- irtæki eins og L'Oreal. Ég rek skóla fyrir stílista og set upp sýningar í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Fyrirtækið mitt útveg- arfólk þegar vantar stílista, hár- greiðslufólk og förðunarfræð- inga. Við vinnum fyrir leikhús- in og líka mikið fyrir sjónvarp." Sjálf er Doddý á ferð og flugi og hefur nóg að gera. ,,Ég tek aðallega að mér að vera stílisti fyrir listamenn sem leita til mín. Ég er í þeirri aðstöðu að geta valið úr verkefnum ogeryfirleitt bókuð sex mánuði fram í tím- ann. Þessa dagana er ég að vinna með einum fastakúnnan- um, norsku söngkonunni Sissel Kirkeby. Hún er að fara að gefa út nýja plötu og undanfarið höf- um við verið á fullu í sambandi við plötuumslagið og kynning- armyndir fyrir blöð og tímarit. Þegar platan kemur út ferðast ég með henni á kynningarferð- um um heiminn og sé um að greiða henni og snyrta þegar hún kemur fram í sjónvarpsvið- tölum og blaðaviðtölum. Sem dæmi má geta þess að mynd af Sissel verður á forsíðu norska Elle sem kemur út í desember. Platan kemur fyrst út í Noregi, síðan í Danmörku og Svíþjóð og eftir það víðar í Evrópu og Bandaríkjunum og mun ég ferð- ast með henni til allra þessara staða. Það má segja að ég sé á stöðugu flakki og ég kann ágæt- lega við það þótt það geti orðið ansi mikill tætingur." Það hlýtur að vera borðleggj- andi að Doddý hafi kynnst aragrúa af spennandi fólki í gegnum starf sitt. ,,Já, bæði spenn- andi fólki og alveg yndislegu fólki. í mínum augum erum við öll eins, við lendum bara í mismunandi að- stæðum í lífinu. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að frægt fólk sé oft það fólk sem er mest niðri á jörðinni. Ég kynnist auðvitað mest því fólki sem ég ferðast með og éger í þeirri aðstöðu að geta val- ið og hafnað hverjir það eru. Fyrir mig skiptir miklu máli að ná góðu sam- bandi við kúnnana mína. Ég hef ferðast mikið með Sissel, einnig dönsku hljómsveitinni Dodo and the dodos og fleiri þekktum listamönnum sem ef til vill eru ekki svo þekktir á íslandi.“ Doddý þarf ekki að hugsa sig lengi um þegar hún er spurð að því hver sé eftirmi nni legastur þeirra sem hún hefur ferðast með. ,,Að öllum öðrum ólöst- uðum held ég mest upp á Vig- dísi forseta. Þegar hún kom í sína fyrstu opinberu heimsókn til Danmerkur vissi hún af ís- lenskri hárgreiðslukonu sem var að vinna hjá Stuhr. Það var hringt í mig og ég var beðin um að greiða henni. Þannig hófst sextán ára samstarf okkar sem aldrei bar skugga á. Með Vigdísi upplifði ég margt og við ferð- uðumst víða um heiminn. (mín- um augum er hún algjör perla, hún er einfaldlega stórkostleg manneskja, hún er svo hrein og „Ég hef það fyrir reglu að segja upphátt við sjálfa mig á hverjum morgni að þessi dagur eigi eftir að verða sá besti í lífi mínu.“

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.