Vikan - 31.10.2000, Qupperneq 10
Texti: U n n u r J ó h a n n s d ó 11 i r
Myndir: Hreinn Hreinsson
■ ■
Wku v'- .Lx ■1 f/W x áJÍP!
Hrli'is ■K; -v ÍHK w
Rfl I V % ' '•1
mf! '
R‘f Hii .. WH ;
. ksM
í iiffsBmíL/ S 1
•|C \ \ \ 1
r
..JH
Það er margt sem tengir Guðfríði Lilju Grétarsdóttur og Lenku Ptácníkova
saman þótt uppruninn sé ólíkur. í áraraðir hafa þær verið meðal fremstu skák-
kvenna í sínu heimalandi, Guðfríður Lilja hérá Islandi og Lenka íTékklandi.
Þær eru einnig mágkonur en Lenka er í sambúð með yngsta bróður Guðfríðar
Lilju, Helga Áss Grétarssyni, stórmeistara í skák, og eiga þau tæplega árs-
gamla dóttur sem heitir Lilja í höfuðið á frænku sinni. Guðfríður Lilja og Lenka
eru báðar að tefla fyrir sín heimalönd á Ólympíuskákmótinu sem fram fer
þessa dagana í Istanbúl ÍTyrklandi. Það er aldrei að vita nema mágkonurnar
mætist þar við taflborðið.
Guðfríður Lilja er 28 ára gamall Reykvíkingur og nífaldur íslandsmeistari
kvenna í skák en hún er fyrsta og eina íslenska konan sem hefur hlotið al-
þjóðlegan meistaratitil kvenna í skák. Hún hefur lokið BA-prófi í sagn- og
stjórnmálafræði frá Harvardháskóla í Bandaríkjunum og tók mastersgráðu í
sömu greinum frá Cambridgeháskóla í Englandi nú í vor.
Lenka er 24 ára og ólst upp í litlu þorpi sem heitir Mostkovice en það er
skammt frá borginni Prostejov í Tékklandi. Hún lauk mastersprófi í hagfræði
frá Hagfræðiháskólanum í Prag síðastliðið vor og fluttist hingað til lands í
haust ásamt Helga Áss og Lilju, dóttur þeirra. Vikan hitti þær stöllur að máli
fáeinum dögum fyrir Ólympíuskákmótið.
SKák er fyrir alia
„Amma mín og nafna, Guð-
fríður Lilja, kenndi mér mann-
ganginn þegar ég var 5 ára en
ég kem úr mikilli skákfjöl-
skyldu. Bræður mínir þrír eru
allir sterkir og virkir skákmenn,
faðir minn er gamall meistara-
flokksmaður og foreldrar mínir
hafa báðir veriðformenn Taflfé-
lags Reykjavíkur. Svo það er nú
kannski ekki skrýtið að ég gangi
með einhvers konar skákbakt-
eríu,“ segir Lilja glettnislega.
Lenka var einnig 5 ára þegar
hún lærði mannganginn. ,,Það
var reyndar ekki eins mikil hefð
fyrir taflmennsku í minni fjöl-
skyldu og hjá íslensku skáksyst-
ur minni, en mamma og pabbi
höfðu þó gaman af því að tefla.
10
Vikan