Vikan - 31.10.2000, Qupperneq 28
Hin konan
Ég var „hin konan“ í
líf mannsins míns í
meira en hálft ár áður
en við tókum upp
eðlilegt samband.
Það sem ég meina
með því þegar ég
segist hafa verið „hin
konan“ er einfaldlega
það að maðurinn sem
ég féll gjörsamlega
fyrir og varð ástfangin
upp fyrir haus af var í
sambúð og átti tvö
börn þegar við hitt-
umst.
r
g hitti Ásgeirfyrst þeg-
arég byrjaði aðvinnaá
sömu skrifstofu og
hann þegarég vartutt-
ugu og tveggja ára gömul. Ég
hafði nýlokið stúdentsprófi og
vissi ekki alveg hvað ég vildi
gera ogvar því himinlifandi þeg-
ar ég fékk gott starf hjá stóru
fyrirtæki þar sem margt ungt
og hæfileikaríkt fólk vann.
Ég var stressuð þegar ég
mætti fyrsta daginn í vinnuna
og hafði klætt mig í einhverja
kerlingarlega dragt til þess að
líta út fyrir að vera eldri og lífs-
reyndari en ég var.
Mér leið hins vegarfljótt mjög
vel í vinnunni þar sem and-
rúmsloftið var afslappað og
þægilegt og var fljót að henda
dragtinni í geymslu.
Félagslífið var gott og vinnu-
félagarnir duglegir að fara út
að borða saman, halda partí,
bjórkvöld, fara í útilegur o.s.frv.
Fyrsta sumarið í vinnunni leið
hratt, ég eignaðist góða vini og
gekk vel í starfi.
Um haustið var mér boðið á
færa mig yfir í aðra deild og ég
þáði boðið þar sem það starf
virtist skemmtilegra en núver-
andi starf mitt. Þar hitti ég Ás-
geir.
Flann var ákaflega myndar-
legur og hafði sterka útgeisl-
un. Ég áttaði mig á því að hann
var talsvert eldri en ég og auk
þess tók ég strax eftir því að
hann var með giftingarhring.
Samt sem áður hafði hann ótrú-
lega sterk áhrif á mig og ég fór
að hugsa sífellt meira um hann.
Þrátt fyrir að ég væri ung var
égallsekki nein saklaus ungpía
því ég átti rúmlega tveggja ára
gamalt barn með fyrrum sam-
býlismanni mínum og hafði átt
nokkuð marga kærasta í gegn-
um tíðina.
Ég get alveg viðurkennt það
núna að það sem ég fann í garð
Ásgeirs var sennilega ekkert
meira en sterkur losti en það
átti eftir að breytast.
HRIFNING í LAUMI
Rúmum mánuði eftir að ég
byrjaði að vinna í deildinni hans
Ásgeirs var haldið partí heima
hjá einum vinnufélaganum. Ég
vonaði hálft í hvoru að Ásgeir
kæmi svo ég gæti fylgst með
honum í laumi. Ég var nú þeg-
ar búin að komast að því að
hann var þrítugur og átti konu
og tvö börn. ,,Frekar vonlaus
staða“, hugsaði ég með mér en
ég gat alveg látið mig dreyma
um hann í laumi.
Ég mætti í partíið í mínu fín-
asta pússi og var í raun ákaflega
ánægðmeðsjálfa migogfannst
ég líta vel út. Mér til talsverðra
vonbrigða var Ásgeir ekki mætt-
ur og þegar ég spurði laumulega
að því hvort hann kæmi ekki
svaraði vinur hans því til að
hann kæmi örugglega ekki.
,,Jæja, þá er best að hætta
bara að hugsa um hann," hugs-
aði ég með mér og sneri mér
að vinnufélögum mínum. Ég
skemmti mér vel í partíinu og
var næstum búin að gleyma Ás-
geiri þegar hann birtist allt í
einu f partíinu, greinilega nokk-
uð drukkinn, ogsettist þétt upp
við mig. Mér svelgdist á
bjórnum þegar ég sá að hann
var ekki með giftingarhringinn
lengur.
Án þess að segja orð stóð
hann upp og leiddi mig fram í
eldhús. Flann romsaði þar út
úr sér að hann væri fluttur heim
til foreldra sinna frá konunni
sinni og að hann gæti ekki hætt
að hugsa um mig. Ég vissi ekki
hvernig ég átti að taka þessu. í
aðra röndina var ég glöð að
heyra þetta en ég óttaðist að Ás-
geir væri bara að leita sér að ból-
félaga fyrir nóttina eða öxl til
að gráta á.
Ég ákvað hins vegar að láta
slíkar áhyggjur lönd og leið og
bauð honum heim til mín. Ég
var alveg viss um að við mynd-
um enda saman uppi í rúmi en
mértil mikillar furðu sagðistÁs-
geir ekki vilja sofa hjá mér fyrr
en hann væri búinn aðganga frá
sambúðarslitum sínum.
Ég var dálítið hissa og svekkt
því mig langaði virkilega að eyða
nóttunni með þessum manni en
það sýndi mér þó að hann var
ekki að leita eftir einnar nætur
gamni.
Þess í stað hitaði ég kaffi og
viðspjölluðum saman alla nótt-
ina. Um morguninn fór hann
heim til sín og smellti léttum
kossi á munn minn í kveðju-
skyni.
Ég neita þvf ekki að ég var
ákaflega stressuð þegar ég
mætti í vinnuna á mánudegin-
um og vissi ekki við hverju var
að búast.
Ásgeir var hins vegar mjög af-
slappaður og elskulegur við mig
og bauð mér út að borða í há-
deginu.
Flann sagðist vilja hitta mig
í næstu viku þegar hann væri
búinn að ganga frá sínum mál-
um og fluttur í íbúðina sem
hann væri búinn að leigja sér
til að kynnast mér betur.
Mér leist vel á það en því mið-
ur var lífið ekki svona einfalt.
28
Vikan