Vikan


Vikan - 31.10.2000, Qupperneq 44

Vikan - 31.10.2000, Qupperneq 44
8. kafli etta þýðir ekkert, þú getur ekki svikist und- an merkjum og sagt upp vinnunni, sagði Charlotte þreytulega við sjálfa sig eftir að hafa farið hvað eft- ir annað í huganum yfir atburði helgarinnar. Hún hafði fengið yfirlit frá bankanum á föstu- dagsmorgninum og séð sér til mikillar skelfingar að skuldin lækkaði lítið þótt hún borgaði og borgaði vegna þess að vext- irnir voru svo háir. Það var úti- lokað að hún gæti hætt í vinn- unni, hvorki samvisku sinnar vegna né peningalega. Hún varð einfaldlega að bíta á jaxlinn og halda áfram. Hún var þreytuleg þegar hún ók í vinnuna á mánudagsmorg- uninn. Hún átti bágt með að þola svona mikla streitu ofan á allt það sem á undan var geng- ið. Taugar hennar voru þandar og tilfinningarnar eins og opið sár. Enn einu sinni virtist gæfan brosa við henni. Daniel var far- inn til London þar sem hann var í samstarfi við annan lögmann. „Þeireru að vinna að máli fyr- ir einn af skjólstæðingunum sem við fengum eftir fjölmiðla- fárið í kringum Vitalle málið," sagði Richard þegar hann kom inn á skrifstofuna hennar. ,,Er allt í lagi með þig?“ spurði hann svo. ,,Þú ert þreytuleg, ertu viss um að þú vinnir ekki of mik- ið?" Charlotte hristi höfuðið. [ hádeginu borðaði hún með Margaret sem kvartaði undan því að hún hefði litla stjórn á starfsfólkinu á „vöggustof- unni". ,,Satt að segja hvarflar það stundum að mér að þau séu ennþá börn en ekki fullorðið fólk.“ „Kannski hjálpar nafnið á skrifstofunni þeirra ekki upp á,“ sagði Charlotte. „Kannski þú hafir rétt fyrir þér. Kannski er ég að verða gömul. Hvenær kemur Daniel aftur?" ,,Ég veit það ekki,“ svaraði Charlotte stuttaralega. Margar- et hleypti brúnum og leit undr- andi á hana. Hún gat ekki sofið og hafði sama og enga matarlyst. Og ekki nóg með það, líkami henn- ar brást við eins og hún væri óvinurinn en ekki Daniel. Hún vaknaði upp á nóttunni með bragðið af kossum hans á vörunum og hana verkjaði af löngun eftir honum. Það þýddi ekkert fyrir hana að þylja yfir sjálfri sér ótai ástæður þess að það væri óhollt fyrir hana að hugsa þannig. Dagarnir voru ekki svo slæm- ir. Á daginn gat hún að minnsta kosti haft smá stjórn á sálu sinni og líkama með því að hugsa til Patriciu Winters. Á næturnar voru tilfinningar hennar aftur á móti berskjald- aðar. í svefni báru tilfinning- arnar skynsemina ofurliði og draumar hennar voru sambland minninga og þrár. Það var þess vegna ekkert skrýtið þótt starfs- félagar hennar væru farnir að koma með athugasemdir um að hún væri þreytuleg. Vandamál- ið var að hún gat einfaldlega ekki hætt að elska Daniel hvern- ig sem hún reyndi. Hann kom til baka í miðri vik- unni, degi fyrr en búist hafði verið við. Charlotte brá þegar hún sá hann. Honum leið greinilega ekkert beturen henni og brosið sem var honum svo tamt var víðsfjarri. „Ertu á bílnurn?" spurði hann um leið og hann kom inn á skrif- stofuna. Hún kinkaði kolli og hann sagði stuttur í spuna: ,,Það er gott, ég þarf bæði á bílnum og þér að halda.“ Hann fór fram áður en hún kom upporðiog ætlaðistgreini- lega til þess að hún elti hann. Bíllinn stóð við torgið. Hún leit spyrjandi á Daniel og rétti honum lyklana. ,,Nei, það er betraaðþú keyr- ir,“ sagði hann og bætti við: ,,John Balfour dó í gærkvöldi. Það var hringt í mig frá hjúkr- unarheimilinu í morgun. Ég lét vita áður en ég fór hvar hægt væri að ná í mig í síma vegna þess að hann var búinn að vera veikur í nokkra daga. Ég er skiptaráðandinn hans og ég verð að fara í gegnum eigur hans.“ Rödd hans var þreytuleg. Charlotte gerði sér grein fyrir því að hann hafði litið á John Balfo- ur sem vin ekki síður en skjól- stæðing. Hún settist þögul inn í bílinn. ,,Ég tók fyrstu lest til baka. Ég hefði getaðfarið heim og náð í bílinn en satt að segja held ég að ég sé ekki góður bílstjóri þessa stundina." ,,Þér þótti vænt um John,“ sagði Charlotte hikandi. ,,Já, það má segja að hann hafi verið síðasti tengiliður minn við Lydiu. Þau voru nánir vinir. Satt að segja grunar mig að þau hafi eitt sinn verið elskendur." Sem beturfór rataði Charlotte aftur á hjúkrunarheimilið. Hún var óþægilega meðvituð um ná- lægð Danielssem sat hljóðurvið hlið hennar. Það var greinilegt að hugur hans var allur hjá John Balfour. Samúðin varð reiðinni yfir- sterkari. Kannski var það rétt að hann elskaði hana ekki, kannski hafði hann það á samviskunni að hafa blekkt hana en það lék enginn vafi á tilfinningum hans til mannsins sem var nýlátinn. Um leið og þau komu á hjúkr- unarheimilið var þeim fylgt inn I herbergi John Balfours. Herbergið var tómlegt án hans. Ef mér líður svona eftir að hafa aðeins hitt hann einu sinni, hvernig skyldi þá Daniel líða? hugsaði Charlotte meðan hún fylgdist með Daniel ganga um gólf. „Hann skyldi ekki margt eft- ir sig,“ sagði forstöðukonan. „Bara það sem er í skrifborðs- skúffunum ogsvoauðvitað hús- gögnin. Við leyfum vistmönnun- um að koma með nokkra per- sónulega muni með sér til þess að þeim líði betur." Forstöðukonan skildi þau eft- ir ein og meðan Daniel fór í gegnum skúffurnar í gamla skrifborðinu velti Charlotte því fyrir sér hvers vegna hann hefði tekið hana með sér. „Átti John stóra fjölskyldu?" spurði hún varlega. Hún þoldi ekki þögnina sem var þrúguð af sorg og sársauka. „Einhverja fjarskylda ætt- ingja, það er allt og sumt. Hús- gögnin hansgeta farið í geymslu til þess að byrja með. Það er nóg geymslupláss heima hjá mér.“ Hann tók lykil úr einni skúff- unni, leit í kringum sig, teygði hendina undir rúmið og dró þaðan þungan trékistil. Ung stúlka færði þeim kaffi og Charlotte hellti í bollana þeirra. Svo mikil sorg lýsti sér í andliti Danielsaðöll reiði henn- ar gagnvart honum fauk út í veð- urogvind. Þaðvarekki hægtað komast hjá því að finna til með honum. Hún komst við þegar hún sá hvernig hann snerti hlut- ina og myndarammana. Ég vona að einhver eigi eftir að fara í gegnum það sem ég skil eftir mig svo nærgætnum höndum þegar þar að kemur, hugsaði Charlotte og kyngdi kekkinum í hálsinum. Allt í einu heyrði hún Daniel draga djúpt 44 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.