Vikan


Vikan - 31.10.2000, Page 46

Vikan - 31.10.2000, Page 46
sagði Daniel og benti á þröng- an, holóttan vegsem lá út af að- alveginum. Charlotte hafði ekki gert sér neinar hugmyndir um hvernig hann byggi. Helst hefði hún giskað á að hann byggi í ein- hverju af gömlu, nýuppgerðu húsunum í miðbænum, eða gömlu einbýlishúsi frá Viktoríu- tímanum. Hún hafði svo sann- arlega ekki átt von á því að hann byggi í gamalli hlöðu. ,,Ég keypti húsið án þess að hugsa mig um,“ sagði Daniel eins og hann sæi hvað hún var að hugsa. ,,Ég rakst á það fyrir þremur árum og féll kylliflatur fyrir því. Fyrri eigendur höfðu látið hanna breytingarnar en ákváðu að flytja úr landi áður en framkvæmdir hófust. Bakhlið- in, sem snýr í suður, er næst- um því eingöngu úr gleri og út- sýnið þaðan er stórkostlegt. Þetta hús er mjög sérstakt. Ég veitekkertfallegraen þegarsól- argeislarnir glampa á gömlum timburveggjunum." Framhlið hlöðunnar var hlaðin úr gulum múrsteini og gluggarnir voru blýlagðir. Hún ók upp að húsinu eftir þröngum stíg. Lágvaxinn runna- gróður umkringdi fallegan garð- inn. í honum voru grónar gras- flatir og óregluleg blómabeð. Hún gat ímyndað sér að á sumr- in væri garðurinn ævintýraheim- ur lita og lyktar. Hún stöðvaði bílinn og beið eftir því að Daniel færi út. Allt í einu sneri hann sér að henni ogsagði: „Viltu borða með mér, Charlotte?" Borða með honum. Hún starði á hann, steinhissa á boðinu, og hjartað sló hraðar í brjóstinu á henni. Þreytu- drættirnir í andliti hans bentu til þess að dagurinn hefði verið honum erfiður. Hann var sorg- mæddur og treysti sér greini- lega ekki til að vera einn. Hana langaði mesttil þessað afþakka boðið, segja honum að hún væri ekki sársaukastiIlandi lyf ætlað til þess að deyfa til- finningar sem honum þætti óþægilegt að fara í gegnum. En eins og alltaf, þegar hún var í návist hans, var heilbrigð skyn- semi víðsfjarri. Fingur hennar voru greinilega færir um að taka eigin ákvarð- anir. Þeir losuðu um öryggis- beltið og drápu á bílnum. Fæt- ur hennar virtust einnig hafa sjálfstæðan vilja. Hún stóð allt í einu fyrir utan bílinn án þess að hafa ætlað sér það. „Viðförum þessa leið.“ Dani- el stóð við hliðina á henni og leiddi hana á bak við húsið. Sólin var að ganga til viðar en birtan var nógtil þess aðhún gat séð hvað hann átti við. Arkitektinum hafði tekist vel upp. Öll bakhlið hússins var í raun og veru úr gleri, sem var brotið upp á stöku stað með upprunalega viðnum og múr- steinum. Þessi blanda gamall- ar og nýrrar hönnunar rann fal- lega saman. Daniel opnaði dyrnar. „Gakktu í bæinn," sagði hann og kveikti Ijósin. Charlotte gekk á eftir honum inn í rúm- gott eldhús. Hér höfðu gömlu loftbitarnir og múrsteinarnir verið látnir standa. Eldrauð, gömul elda- vél fyllti upp í gríðarstórt, gam- alt eldstæði. Eldhússkáparnir voru úr óbæsaðri, kalkborinni eik. Gólfið var lagt bónuðum steinflísum. Það hefði getað verið kuldalegt en var það alls ekki. Það var ekki erfitt að gera sér í hugarlund glaða og káta fjölskyldu una sér vel í þessu herbergi. Það er aftur á móti ekki auð- velt að sjá Patriciu Winters fyr- ir sér í þessu heimilislega og notalega umhverfi, hugsaði Charlotte með sér. „Jæja, hver er dómurinn?" Hún hrökk við þegar hún heyrði rödd Daniels. Hún gat hvorki hrært legg né lið og eld- roðnaði. Hverniggat hann vit- að um hvað hún hafði verið að hugsa? En svo uppgötvaði hún að hann var að tala um húsið en ekki Patriciu Winters. „Þetta er yndislegt, “ sagði hún. Hann brosti hlýlega. „Bíddu bara þangað til þú sérð útsýnið af efri hæðinni," sagði hann. „Það á engan sinn líka. Sérstaklega snemma á morgnana, við sólarupprás ..." Þau horfðust í augu og það var eins og hvorugt þeirra vildi verða fyrri til að líta undan. Charlotte uppgötvaði að hún var þurr í munninum. Hjartað hamaðist í brjóstinu á henni. Var það bara ímyndun, eða gat hún í raun og veru fundið lyktina af hörundi hans? „Það er ekki nóg að bjóða þér í mat. Það er eins gott að það sé til eitthvað að borða." Orðin voru hversdagsleg en röddin hafði sömu áhrif á hana og hann hefði snert hana. Hún horfði á hann opna ís- skápinn, minnast eitthvað á pasta, heyrði sig svara ein- hverju, horfði á hann taka mat úr (sskápnum, skápum og skúffum. Hún hreyfði sig ekki úrsporunum ... hún varekki fær um það. Hvað var eiginlega að henni? Hún hafði oft verið ein með hon- um án þess að bregðast svona við. Gottogvel, hún þráði hann, elskaði hann, en þetta var ein- um of mikið. Það var engu lík- ara en hver einasta fruma í lík- ama hennar væri ófær um ann- að en að virða hann fyrir sér og drekka hann í sig. Þetta var eitt- hvað sem hún réð ekki við. Henni fannst hún aldrei fyrr hafa fundið lyktina af tómötum, kryddi og kjöti og hún hélt áfram að virða Daniel fyrir sér meðan hann hellti víni í glös. Þegar hann rétti henni glasið var það heitt undan snertingu fingra hans. Hann var svolítið rjóður í kinnum, ef til vill frá hit- anum af eldavélinni... Hún lyfti glasinu að vörunum óstyrkum höndum. Vínið var bragðmikið og gott og hún þurfti ekki ann- að en að loka augunum til þess að sjá fyrir sér ítalska sveit, frjósama, rauða jörð, gamlar byggingar og dökkgræna skóga. Hvað var eiginlega að henni? Hvers vegna voru allar skynj- anir hennar svo ofurnæmar? Hún virti Daniel fyrir sér þeg- ar hann gekk til baka að elda- vélinni. Hann hafði ekki beðið hana um hjálp. Honum fórst elda- mennskan vel úr hendi eins og hún væri honum eðlileg. Hand- tökin voru sem beturfór laus við sýndarmennskuna sem hún hafði svo oft séð í vinahópi Bevans þegar þeir stærðu sig af hæfileikum sínum í eldhús- inu. Daniel var enginn „uppi“ sem sá ástæðu til þess að nota kunnáttu sína til þess að ganga í augun á kvenfólkinu. Hún hrökk upp úr þessum þönkum þegar hann leit við og horfði á hana eins og hann vissi um hvað hún væri að hugsa. „Get ég ekki hjálpað þér?“ spurði hún hikandi. „Égget lagt á borðið ..." Hann hristi höfuðið. „Við skulum borða inni í stofu. Ég ætla að kveikja upp í arninum. Viltu hafa auga með matnum á meðan?“ Hver einasta taug var spennt þegar hún gekk að eldavélinni. Það var eins og taugar hennar væru fínstillt tæki sem fram- kvæmdi undarlegustu hluti. Þegar hann var farinn fram reyndi hún að hrista af sérslen- ið. Hún minnti sjálfa sig á að hann þráði félagsskap hennar þessa stundina en hún væri bjáni ef hún ímyndaði sér að hún skipaði einhvern sérstak- an sess í tilveru hans. Hún skynjaði nærveru hans um leið og hann kom inn í eld- húsið aftur. „Þetta er næstum því tilbú- ið,“ sagði hann. Hún fann matarlyktina og vissi að hún ætti að vera svöng en tilfinningar hennar voru hungrinu yfirsterkari. Daniel lét matinn ogallttilheyrandi ástór- an hjólabakka. „Stofan er hérna," sagði hann. Hún gekk á eftir honum út úr eldhúsinu og inn í stórt hol sem skipti húsinu í tvennt. Veggirnir voru klæddir gulum panel og gömul, stífbónuð eik- arkista stóð upp við einn vegg- inn. Fyrir ofan hana hékk mál- verk af konu. „Þetta er Lydia,“ sagði Dani- 46 Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.