Vikan - 31.10.2000, Page 60
texti: Gunnhildur Lily M a g n ú s d ó 11 i r.
Leikkonan Brooke
Shields hefur verið
stjarna á meðal
hinna frægu og fal-
legu frá því að hún
var barn. Margir þeir
sem komnir eru til vits
og ára muna fyrst eftir
Brooke sem undur-
fagurri og saklausri
unglingsstúlku í
myndinni Bláa lóninu,
The Blue Lagoon,
sem hún lék í árið
1979, þá aðeins fjórt-
án ára gömul.
Brooke hefur ver-
ið í sviðsljósinu
frá unga aldri.
Hún hóf „feril"
sinn sem tísku-
sýningardama í
New York þar sem hún er borin
og barnfædd aðeins þriggja ára
gömul.
Hún er fædd 31. maí árið
1965 og er því tvíburi eins og
margir góðir listamenn.
Foreldrar hennar, sem skildu
þegar Brooke var barn, voru ekki
ókunnugskemmtanaiðnaðinum
því móðir hennar, Teri Shields,
er fyrrum fyrirsæta og faðir
hennar, Frank Revlon, er einn
af eigendum og yfirmönnum
Revlon snyrtivörufyrirtækisins.
Brooke starfaði jöfnum hönd-
um sem fyrirsæta og leikkona
á unglingsárunum og sat fyrir
hjá ekki ómerkari hönnuðum en
Calvin Klein en vakti fyrst at-
hygli fyrir leikhæfileika sína í
myndinni Pretty Baby árið
1977 þar sem hún lék barn-
unga vændiskonu enda aðeins
tólf ára gömul sjálf.
Ári síðar var var hún valin eitt
af tólf bestu ungstirnum Banda-
ríkjanna og árið þar á eftir,
1979, sló hún svo í gegn í Bláa
lóninu. Það má eiginlega segja
að fyrri hluti níunda áratugarins
hafi verið blómaskeið Brooke
Shields. Hún var valin andlit ní-
unda áratugarins af tímaritinu
Time, sat fyrir á ótal forsíðum
tímarita og gerði það gott sem
sýningarstúlka fyrir þekkta
bandaríska hönnuði. Hún lék í
ótal mörgum bíómyndum en
flestar verða þær að teljast í
slakari kantinum þótt inn á milli
séu ágætis myndir.
En Brooke virðist vera jarð-
bundin ogákveðin ung kona því
hún ákvað að fara í háskóla-
nám samhliða kvikmyndaferli
sínum. Hún fékk inngöngu í
hinn virta Princeton háskóla og
útskrifaðist þaðan með fyrstu
einkunn í frönskum bókmennt-
um árið 1987.
Hún fékk mikinn áhuga á
sviðsleik á háskólaárum sínum
og einbeitti sér að því að kom-
ast áfram í leikhúsinu næstu
árin. Hún lék þó áfram í ýms-
um sjónvarpskvikmyndum og
fékk gestahlutverk í þekktum
60 Vikan