Vikan


Vikan - 28.11.2000, Qupperneq 45

Vikan - 28.11.2000, Qupperneq 45
Varla hvarflaði það að henni að hann myndi yfirgefa Ingibjörgu fyrir hana. Og missa af öllum arfinum! Hún hlyti að sjá það, konan, að hún væri einungis stundargaman í hans huga. Þegar Jónatan stóð á tröpp- unum fyrir framan íbúð Evu nokkrum dögum síðar var hann harðákveðinn í að segja henni að þau myndu einungis verða vinir. Hún virtist líta öðrum aug- um á samband þeirra en hann og til að fyrirbyggja allan mis- skilning var best að Ijúka þessu af strax. Um leið og hún opn- aði dyrnar gleymdi hann Ingi- björgu og öllu sem tengdist henni. Fyrir framan hann stóð guðdómleg gyðja. Eva stóð fyr- irframan hann íklædd rauðum, kynæsandi og stuttum kjól og var með epli í hendinni. Þau eyddu deginum í svefnherbergi Evu en um kvöldið var kominn tími til að halda heim á leið. Hann sagði Evu að hún mætti aldrei hringja til hans á skrifstofuna eða heim til hans. Hún mætti yfirhöfuð ekki reyna að ná sam- bandi við hann. Hann ætlaði að hafa samband við hana. Hún kyssti hann og sagðist vona að hann væri hamingjusamur. Næstu daga á eftir komst ekkert annað að í huga hans en Eva og eftirmiðdagarnir sem þau áttu saman. Hún var það fyrsta sem hann hugsaði um þegar hann vaknaði og það síð- asta sem flaug í gegnum huga hans áður en hann lokaði aug- unum. ,,Um hvað ertu eiginlega að hugsa?“ spurði Ingibjörg í áhyggjufullum tón þegar hún lagðist við hliðina á honum eitt kvöldið. ,,Ekki neitt sérstakt," svar- aði Jónatan. „Það er bara svo mikið að gera á skrifstofunni og ég þarf að sinna mörgu á morgun. Góða nótt," sagði hann um leið og hann sneri baki í Ingibjörgu. „Góða nótt," sagði hún von- svikin. Um leið og hún var sofnuð sneri hann sér við og horfði á hana. Hann gat alls ekki sofnað heldur lá andvaka fram eftir nóttu og hugsaði um Evu. Hvað hann vildi að hún lægi hér við hliðina á honum í stað Ingi- bjargar. í fyrsta skipti í sinni tíu ára hjúskapartíð fór að hann að spyrja hún yrði sár og reið ef hann myndi fara fram á skilnað. Nei, hún yrði tryllt. Ekki það að hún myndi sakna hans. Hún þoldi bara afskaplega illa að fá ekki að taka allar ákvarðanir í þessu hjónabandi. Hún myndi koma því þannig fyrir að hann fengi hvergi vinnu í þessari atvinnu- grein. Hún þekkti það margra forstjóra og framkvæmdastjóra. Við hvað gæti hann starfað? Hann hafði litla menntun og auðvitað fékk hann starf sitt bara vegna þess að hann var giftur henni. Hann gæti orðið leigubílstjóri, það hefð verið rétt honum að giftast hinni ríku einkadóttur og erf- ingja þessara gífurlegu auðæfa, Ingibjörgu. Auðvitað hafði vit- neskjan um arfinn haft mikið að segja um þá ákvörðun aðgiftast henni. Lífið sem hún bauð upp á var afskaplega þægilegt. En veröldin sem snerist ekki bara um peninga og vellystingar bauð upp á aðra hluti. Kannski að ást, kynlíf og umhyggjusemi réðu þar ríkjum. Þetta voru tveir aðskildir heimar sem báðir höfðu sína kosti og galla. Áður en hann vissi af var hann farinn að geta hugsað sér að skilja við Ingibjörgu. Fyrir Evu og fyrir sjálfan sig. Hann horfði á andlit eiginkonu sinn- arþarsem hún lásofandi. Hvað greiðslumað- ur eða kannski gæti hann aftur fengið vinnu sem handlangari í bygginga- vinnu. Hann hafði verið starfa- andi í þeim geira þegar hann hitti Ingibjörgu. Allt í einu fór hann að hugsa um litlu íbúð- ina hennar Evu. Var hann til- búinn að fórna sex hundruð fer- metra einbýlishúsinu og flytja inn í íbúð sem var jafnlítil og forstofan í húsinu hans? Nei, nei, nei. Núna var tímabært að gleyma Evu og ástarfundum þeirra. Hann var ekki tilbúinn að fórna lífsstíl sínum. „Jónatan," hvíslaði einkarit- arinn hans þegar hann mætti á skrifstofuna næsta morgun, klukkan korter yfir níu. „Hing- að hringdi ung stúlka sem vildi ná tali af þér. Hún vildi ekki segja til nafns en vildi ólm fá að vita hvar þig væri að finna. Og það skrýtna við þetta sím- tal var að hún var alltaf að tala um einhverja paradís ..." Ritar- inn horfði sérkennilega á hann. „Paradís," hváði Jónatan. Hverniggat hún gert mér þetta? hugsaði hann með sér. Skyndilega brosti Jónatan. „Þetta hefur áreiðanlega verið einn af þessum ofstækisfullu trúboðum í sértrúarsöfnuði. Ef hún hringir aftur eða einhver annar sem þú heldur að sé með slíkt erindi segir þú þeim bara að ég sé ekki við." „Ég gæti þess að þeir nái ekki sambandi við þig," lofaði ritar- inn sem virtist sættasigviðskýr- ingu Jónatans á símtalinu. Jónatan gekk inn á skrifstofuna sína og átti erfitt með að koma reiðu á hugsan- ir sínar. Hvað var að gerast með Evu? Hún vissi um tengsl hans við fyrirtækið og að hún mætti alls ekki hafa samband við hann. Hún hafði sagt við hann að hún myndi aldrei koma hon- um í svo pínlega stöðu. Allt í einu mundi hann eftir því að hún hafði sagst ætla að þegja yfir sambandinu, a.m.k. í upp- hafi. En þetta gekk ekki svona. Upphafið var greinilega búið og við blöstu bara endalok sam- bandsins. Það reyndist meira en erfitt fyrir Jónatan að einbeita sér í vinnunni þennan dag. Hann ið- aði í skinninu eftir að heyra í Evu og binda enda á þessa vit- leysu. Allt í einu fann hann kvíðatilfinningu heltaka sig. Hann kom sjálfum sér reyndar á óvart því allt í einu var hann farinnaðsakna Ingibjargar. Eða öllu helduröryggisinssemsam- Vikan 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.