Vikan - 15.02.1973, Side 7
MIG DREYMDI
DANSAÐ VIÐ EYSTEIN
Heill og sæll draumráðningamaður!
Eg skrifa þér nú vegna draums, sem mig dreymdi í
ágúst í sumar, og langar mjög mikið að fá ráðningu á, vegna
þess hve hann var óvenjulega skýr. É'g hef ekki getað
gleymt honum.
Ég hef ekki skrifað ykkur fyrr, vegna þess að mig dreym-
ir sjaldan, og þegar það gerist, þá er það venjulega óskýrt
rugl, sem gleymist fljótt.
En draumurinn var á þessa leið:
Ég var stödd í Reykjavík í einhvers konar samkvæmi,
Inni var hálfdimmt. Fólk var að dansa á gólfinu. Til mín
kom lágvaxinn maður og bauð mér upp. Vegna dimmunn-
ar sá ég ekki hver hann var, en hann dansaði mjög vel.
Eftir dálitla stund leit hann upp. Þá sá ég, að þetta var
Eysteinn Jónssön alþingismaður, en hann leit ekki út eins
og hann lítur raunverulega út, heldur eins og Halldór Pét-
ursson listmálari teiknar af honum skopmyndir! Hann var
mjög glaðlegur á svipinn og fjörugur (í draumnum var ég
það líka). .
Við dönsuðum góða stund. Mér fannst að úr salnum lægi
stigi í hálfhring upp á loft. Við gengum upp stig-
hefði orðið af Eysteini, en ég brosti bara og vildi ekkert
ann og hélt hann utan um mig á leiðinni. Við komum í
bjartan sal, sem var tómur að öðru leyti en því, að gólfið
var þakið eins konar hólum eða litlum gígum, sem voru
um það bil hálf mannhæð á hæð. Ég vissi, að þeir voru
holir að innan. Fylgdarmaður minn iðaði svo af fjöri og
kátínu, að á endanum stakk hann sér á höfuðið í einn gíg-
inn.
Svo var ég allt í einu komin út fyrir húsið og gekk svo
inn í danssalinn aftur. Fólk fór þá að spyrja mig, hvað
hefði orðið að Eysteini, en ég brosti bara og vildi ekkert
um það tala.
Það var svo mikill léttleiki og kátína yfir þessum draumi.
Ef þið birtið þetta, læt ég ykkur ráða, hvort nafni þing-
mannsins verður haldið leyndu, en kallið mig bara
H.I.K. 32.
Es. Rétt er að geta þess, að ég þekki manninn ekki per-
sónulega og var sannarlega ekki að hugsa um hann daginn
áður en hánn birtist mér í draumi. Kveðjur og fyrirfram
þökk.
Við sjáum enga ástæðu til að leyna nafni Eysteins, enda
getur nafn þess, sem dreymt er skipt verulegu máli. Þetta
er allra skmmtilegasti draumur og sannarlega kúnstugur.
Nafnið Eysteinn merkir gleði, svo að draumurinn hlýtur
að spá góðu. Þig dreymir hann reyndar í ágúst í sumar, en
engu að síður teljum við gígana eindregið benda til þess,
að hann fjalli um eldgosið í Eyjum. Við ráðum drauminn
þannig, að miklu betur rætist úr málefnum Vestmannaey-
inga og þar með þjóðarinnar allrar en nokkur getur ímynd-
að sér á þessari stundu.
AUGU GUÐS - A BARNUM
Kæri draumráðandi!
Fyrir nokkru dreymdi mig draum, sem ég hef mikinn
hug á að fá ráðinn.
Mér fannst ég vera stödd á nokkurs konar bar, og við
endann á barborðinu sat eldri maður, sem var að ég held
barþjónn. Þá opnast dyrnar skyndilega og þar stendur hár
dökkhærður maður í bláum strigajakka. Vissi ég sam-
stundis, að þetta var Guð. Hann gekk til mín og settist
andspænis mér við borðið. Mér fannst sem ég horfði í augu
hans, og voru þau blá og einkar fögur. Allt í einu breytt-
ust þau í grænar yrjur, þannig að þau voru bæði græn og
blá. Þá sagði ég þessa skáldlegu setningu:
„Hví bera augu þín lit himins og jarðar?“
Þá svaraði hann:
„Vegna þess, að ég elska himin og jörð.“
Síðan varð draumurinn ekki lengri og ég vaknaði.
Ein berdreymin.
Það er jafnan talið boða frið og hamingju að dreyma
Guð. Og öll önnur tákn þessa draums eru sömuleiðis já-
kvæð: blá augu, himinn, jörð. Það er meira að segja fyrir
óvæntu happi að dreyma að maður sitji að drykkju. Við
getum ekki séð, að þessi draumur sé fyrir neinu sérstöku
atviki, heldur spá um, að þú lifir hamingjusömu lífi í fram-
tiðinni.
GLANSANDI HÁR
Kæri þáttur!
Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig tvo drauma,
sem mig dreymdi með stuttu millibili.
Sá fyrri var þannig, að mér fannst ég vera búin að lita
á mér hárið. Það var fjarska fallegt, gulbrúnt og mjög
glansandi. Ég var harðánægð með litinn.
Siðari draumurinn var þannig, að mér fannst ég vera að
spegla mig og greiða hárið. Þá dettur heilt stykki úr hár-
inu á mér. Mér fannst, að ég hefði verið búin að klippa
það, sem datt af. Vinkona mín var við hlið mér. Ég sýndi
henni þetta og dáðist að litnum, sem var nákvæmlega sá
sami og mig hafði dreymt í fyrri draumnum.
Mér fannst hárið á mér fara vel, þótt þetta stykki dytti
af því!
Ég vona fastlega að þú ráðir fyrir mig þessa drauma.
Með fyrirfram þakklæti.
Fjögurra barna móðir.
Þessi draumur hefur víst legið hjá okkur í tvo mánuði,
en við ætlum samt að gera honum skil. Vert er að taka
það fram, að svo mikið berst af draumum, að við komumst
ekki yfir að ráða nema örlítið brot af þeim, þótt þátturinn
sé nú helmingi lengri en áður. Hlýtur alltaf nokkur til-
viljun að ráða, hvaða draumar verða fyrir valinu. — Vel
greitt og fallegt hár táknar auðlegð og sæmdarlíf. Við
teljum ekki, að draumarnir standi í neinu sambandi við
núverandi ástand þitt, sem þú minntist á innan sviga. Hins
vegar verðurðu fyrir einhverju, ef til vill óvirðingu eða
skaða, sem kemur mjög illa við þig í fyrstu. Síðar sættirðu
þig fullkomlega við það, enda kemur í ljós, að það hefur í
för með sér kosti engu síður en galla.