Menntamál - 01.10.1933, Qupperneq 15

Menntamál - 01.10.1933, Qupperneq 15
MENNTAMÁL ] 11 uga og ódýra gerð húsanna og vekja áhuga og' skiln- ing á nauðsyn jiessari í héruðunum. Allvíða liagar svo lil, að tveir til þrír hreppar geta sameinast um stofn- un þessa, og er þá auðsær sparnaðurinn, ekki einungis í stofnkostnaði, heldur og livað allan rekstur snertir. Sá galli getur auðvitað verið á þessari sameiningu, að erfitt yrði að nota þennan stað sem starfsheimili allra félaga á svæðinu. Eg kalla þetta slarfs- og skólahcim- ili, vegna þess að eg vil láta það gefa nokkra bend- ingu um það, að allra liluta vegna þarf starfið að eiga þar lieima. Það þarf að komast mcira inn i alla fræðslu barnanna og unglinganna cn nú er, bæði í sjálfsstarfi Jjeirra i venjulegu bóknámi og i öllum áhrifum á hugsunarliátt þeirra. Annars skal ekki fjölyrl um liina venjulegu barna- fræðslu og nauðsynlegar breytingar á henni yfirleftt í skólum landsins, en kennurum er það full-ljóst, að fyrirkomulag kennslu, kennslubækur og val námsefn- is þarf að 1‘ærast í annað horf. Nema þarf burt hin þurru og tilgangslitlu fræðiatriði, lexíunámið og ])au próf, sem i raun og veru gefa næsta litla hugmynd um það, sem mestu máli skiptir, cn sníða nemandan- um of þröngan stakk, drepa námslöngun hans og á- huga. Setja i þess stað námsefni, sem nær liggur þörf- um og kröfum daglegs lifs, og breyta vinnuháttum þannig, að nemandinn fái að njóta þeirrar gleði og þjálfunar, sem fæst með ])ví, að starfa sjálfur á cigin áhyrgð að viðfangsefnum, er hann ræður við og und- ir leiðsögu kennarans, hlotið ])á leikni og þekkingu, sem lifið síðar krefst af honum. Með góðri samvinnu kennara og foreldra munu þessar nauðsynlegu breytingar koma smátt og smátt. Hér verða ])að að vera þarfir og kröfur hins síbrevti- lega lifs, scm visa leiðina á hverjum tíma, ásamt reynslu og þekkingu.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.