Menntamál - 01.12.1940, Blaðsíða 4
66
MENNTAMÁL
Hafliði M. Sæmundsson
Kveðja, flutt i kennarastofu Austurbœjarskólans.
Hafliði M. Sæmundsson,
vinur og starfsfélagi!
í þau tíu ár, sem liðin
eru síðan þessi skóli tók til
starfa, höfum við kennar-
arnir komið saman í þess-
ari stofu til hvíldar og
hressingar, eða til ráða-
gerða um vandamál starfs
okkar og stofnunar. Öll
þessi ár varst þú einn hinn
trúasti og áhrifamesti liðs-
maðurinn í hópi okkar. Við
mætumst því hér yfir lík-
börum þinum, í senn hrygg
og hrærð í huga yfir svip-
legu fráfalli þínu á bezta
aldri og glöð í minningunni um hinn ágætasta dreng og
frábæran starfsfélaga.
Mér er það minnisstætt, þegar við hittumst i fyrsta skipti
fyrir tíu árum, áður en skólinn tók til starfa. Okkur varð
þá lítilsháttar að ágreiningsefni, hvort þú ættir að hafa
aðalkennslu þína um veturinn í bekk, sem þú hafðir kennt
áður, eða í öðrum bekk, sem skyldi njóta kennslu á þeim
tíma dags, sem þér var stórum hentugri. Þú valdir hiklaust
þann kostinn, að kenna þínum börnum, eins og þú kallaðir
þau, enda þótt hitt væri þér að öðru leyti miklum mun
hagfelldara. Ég lét þig ráða að lokum, nauðugur þó. En
mér skildist brátt, er ég sá þig starfa með bekknum þínum,
að þaö var engin smámunaleg sérvizka, sem á bak við ósk