Menntamál - 01.12.1940, Blaðsíða 5

Menntamál - 01.12.1940, Blaðsíða 5
MENNTAMÁL 67 þína lá, heldur skilningur mikils kennara á helgu hlutverki. Ég dáðist strax þá að stjórn þinni á þessum bekk, ég dáðist að andrúmsloftinu í stofunni þinni, prúðmennsku og vinnu- gleði barnanna þinna. Og ég komst síðar æ betur og betur að raun um, að þessi heillandi bragur var ekki sérstaklega einkennandi fyrir þessi börn, heldur fyrir þín áhrif. Svona hefir hver barnahópurinn af öðrum komið fram og starfað hér í skólanum, undir þinni ástúðlegu og föstu stjórn. — En þú varst ekki nægjusamur í kröfunum til sjálfs þín, og hin auðveldu tök þín á börnunum drógu á engan hátt úr viðleitni þinni til endurbóta á kennsluaðferðum. Eitt helzta einkenni á viðhorfi þínu til starfsins var heit og alvarleg þrá eftir því, að gera betur og betur. Þú hafðir lagt á þig mikið erfiði og fært þunga fjárhagsfórn til að afl'a þér aukinnar þekkingar og starfstækni. Og þér hafði skilizt, sennilega betur en flestum okkar hinna, hvílíkir möguleikar felast í uppeldis- og kennslustarfinu, og hversu tilfinnan- lega skortir á aðstöðu okkar og mátt til þess að rækja það eins og bezt yrði á kosið. Vitundin um öll litlu börnin i þessum bæ og þessu landi, sem skortir æskilegustu uppeldisskilyrði, olli þér áhyggjum og sársauka, og þú hafðir ýmiskonar tillögur og ráðagerðir á reiðum höndum þeim til hagsbóta, sem þér því miður entist ekki aldur til að koma i framkvæmd. Þessi skóli hefir mikils misst við fráfall þitt. Börn þessa bæjar hafa mikils misst. En þyngstur er þó harmurinn kveðinn að nánustu ástvinunum, eiginkonunni og elsku- legu, litlu börnunum ykkar. Við flytjum þeim okkar dýpstu samúð og hluttekningu og biðjum þeim blessunar. Hafliði! í nafni starfsmanna þessa skóla og kennara landsins flyt ég þér hinztu kveðju og þakkir. Við þökkum allt, sem þú kenndir okkur, þökkuð það, sem þú varst okkur til fyrirmyndar. Við þökkum það, sem þú vannst fyrir mál- efni okkar og málefni barnanna. Við þökkum vináttu, sam- starf og viðkynningu.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.