Menntamál - 01.12.1940, Blaðsíða 35

Menntamál - 01.12.1940, Blaðsíða 35
MENNTAMÁL 97 vínnautnina, sem hefir valdið straumhvörfum í lífi ein- staklinga og þjóða. Og þegar hægt er að sýna og sanna með óyggjandi rökum, að vínnautnin hefir orðið þess vald- andi að heil þjóðfélög hafi liðazt sundur, að voldug heims- veldi hafi liðið undir lok fyrir áhrif hennar, þá mætti einstaklingurinn hugsa sig um tvisvar, áður en hann gefur sig á vald þessari tvíeggjuðu nautn. Menn komu fljótt auga á þessa hættu, sem stafaöi af vínnautninni, og frá elztu tímum getur maður víða heyrt um tilraunir til þess að sporna við áhrifum og útbreiðslu vínsins. í sumum æfagömlum trúarbrögðum, löngu fyrir Krist, eru sett ákvæði og boðorð, sem eiga að vega á móti ástríðunum og halda mönnum i skefjum. Þannig má minn- ast á hin persnesku trúarbrögö, kenningar Zoroasters, sem barðist móti hinu vaxandi nautnalífi þeirra tima. Þó kemur þetta fram á ennþá hærra stigi í kenningum Buddha. Af hinum 5 frumboðorðum, sem allir Buddhatrú- armenn (Búddistar) urðu að hlýða, þá hljóðaði 5. boðorðið: Þú skalt ekki drekka áfenga drykki. — Fyrir þeim, sem fengu hærri þroskaskilyrði, voru þessi boðorð ennþá meira skerpt og aukin. Áhangendur Búddhakenninga munu vera á vorum dögum a. m. k. 500—600 milljónir manna, og á- hangendur kristindómsins eru ekki mikið fleiri. Með hinni geisilegu útbreiðslu Búddhatrúarbragðanna hefir þetta boðorð haft þýðingarmikil áhrif, siðferðisleg og gagnleg í allri Suður-Asíu og Mið-Asíu, jafnvel einnig í Kína og Japan. Á Vesturlöndum hefir einnig staðið menningarleg bar- átta móti siðleysi vínnautnarinnar og á vorum dögum er baráttan háð í öllum menningarlöndum. Nú mætti í fljótu bragði virðast svo, að öll þessi barátta gegn hinum óstýri- látu hvötum, beri lítinn árangur, því að ljós dæmi séu fyrir hendi, er sýni, að sagan endurtaki sig í flestum myndum og einstaklingarnir virði ekki reynslu fyrri kynslóða. En ég held, að ástandið í heiminum væri enn verra í dag, ef kippt

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.