Menntamál - 01.12.1940, Síða 27
MENNTAMÁL
89
X. Niðurlag.
Hlutverk greindarprófanna er margþætt og margskonar
gagn má af beim hafa við kennslustarfið. Þau hafa þann
kost, að með mjög hægu móti er hægt að fá mikilvæga
vitneskju um sálarlíf nemandans, einkum námsgetu hans
eða það sem við köllum almenna skynsemi, og á þann hátt
er hægt að forðast ýms mistök í skólastarfinu. Aðalhlut-
verk greindarprófanna virðast mér í stuttu máli vera þessi:
Með Binet-prófunum er hægt að ákveða nokkurn veginn
andlegt þroskastig barnanna, hvort eitthvert barn er á
undan eða eftir, miðað við meðalþroska jafnaldra sinna —
og hve mikið það er á undan eða eftir. Binet-prófin eru sér-
staklega vel til þess fallin, að uppgötva þá nemendur, sem
eru andlega sljóir eða vanþroska. Má eftir niðurstöðum
prófanna vinsa þessa nemendur úr og setja þá sér í bekk.
Ennfremur benda Binet-prófin á þá bezt gefnu, en til þess
að vinsa þá úr, eru þau þó ekki eins góð og ýms önnur
gáfnapróf. Við röðun í bekkina koma þau þó að þessu
tvennu leyti að góðu haldi.
Gáfnaprófin hafa það hlutverk, að komast eftir sérhæfi-
leikum nemenda: skynjunum þeirra, hreyfifimi og lagni,
tilfinningalífi, hneigðum og persónuleika. Að þessu leyti
gefa Binet-prófin talsverðar upplýsingar, en aðallega koma
þarna til greina önnur próf. Það er varla á annarra færi en
sálfræðinga, að fara með hin ýmsu gáfnapróf og túlka þau,
enda þarf töluverðan útbúnað við þau og mikia vinnu. —
Margar þessara tilrauna eru ekki framkvæmanlegar nema
á sálrannsóknarstofu.
Þá hjálpa vitprófin kennaranum til þess að grafast fyrir
orsakir vanþroska nemendanna. Vanþroskinn getur stafað
af ýmsu: vanræktu uppeldi, gölluðum skynfærum, heyrnar-
sljóleika, nærsýni, sjóndepru, sjónskekkju. Einkum er
heyrnin mikilvæg fyrir námið. Margir afburða námsmenn
hafa gallaða sjón, eru t. d. nærsýnir, en það er mjög sjald-