Menntamál - 01.12.1940, Síða 50

Menntamál - 01.12.1940, Síða 50
112 MENNTAMÁL krökkunum illa við kennarana fyrir afskipti þeirra af hermannaboð- unum. Alls staðar sér þetta fólk djöfulinn málaðan á vegginn. — Haldið þið, að krakkarnir hafi ekki líka hlakkað til.“ Morgunblaðið: „Aftur á móti get ég ekki séð, að aðgerðir barnakennaranna hér um jólin séu nokkurn hlut uppalandi fyrir æskulýðinn, er þeir rausn- uðust til þess að lýsa vanþóknun sinni á því, aö flokkar hins brezka setuliðs héldu jólatréssamkomur fyrir fátæk börn. Þeim góðu kennurum væri nær að sýna mátt sinn til siðbætandi áhrifa á hina uppvaxandi kynslóð í stað þess að grípa til svo lítilmót- legra bannráðstafana, sem þarna var gert. Eða hvernig halda menn, að við íslendingar getum í framtíðinni sýnt okkur þess verðuga að vera sjálfstæð þjóð, ef okkur skortir sjálfstraust og metnað til þess að umgangast aðra eins og jafningjar. Barnakennararnir verða að undirbúa unglingana til umgengni við aðra á annan hátt en þann að hlaupa í felur.“ Blaðamaður Morgunblaðsins virðist telja það einkar rausnarlegan hugsunarhátt, að börnum í herteknu landi sé kennt að líta á her- mennina, sem hertaka þjóð þeirra, eins og jafningja og leikfélaga. Hannesi á Horninu mætti einnig segja það, að hann hefir ekki fundið ástæðu til að hafa orð á tilhlökkun fátæku barnanna, þótt barna- kennararnir, er hann telur að börnunum hljóti nú að vera illa við, hafi á hverju ári efnt til jólatrésskemmtana fyrir öll skólabörnin. Hefir honum oftar en einu sinni verið boðið að líta inn á jólatrés- skemmtanir kennaranna, en ekki er mér kunnugt um, að hann eða blað hans hafi fundið ástæðu til að geta um þær. Um jólatrésskemmt- anir erlendra hermanna gegnir öðru máli. Þær er rétt að hvetja börn til að sækja og foreldrana til að meta mikils, og það engu síður, þótt kennslumálaráðuneytið hafi bannað skólanemendum, barnaskóla sem annarra skóla, allt óþarfa samneyti við hið erlenda setulið. S. Th. Útkoma þessa heftis hefir dregizt af sérstökum ástæðum. 1. hefti 1941 mun eigi að síður koma í apríl. Útgefandi: Samband íslenzkra barnakennara. Útgáfustjórn: Sigurður Thorlacius og Guðjón Guðjónsson. Ritstjóri: Sigurður Thorlacius, Austurbæjarskólanum. Prentsmiðjan Edda h.f.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.