Menntamál - 01.02.1948, Blaðsíða 9
menntamál
3
Eftir að fulltrúar hvers lands höfðu haldið stuttar ræð-
ur, hélt prófessor Harald Schjelderup (Oslo) lokaræðu, en
hann hafði verið kosinn forseti mótsins.
Ræddi hann fyrst, hvernig sálfræðin hefði orðið að liði
í síðustu heimsstyrjöld. „En sálfræðin er ekki aðeins tæki
til að vinna styrjöld," sagði hann. „Hún er enn þá nauð-
synlegri til að vinna friðinn. Vandamál atvinnulífsins eru
fleiri en þau, sem snerta tækni og skipulag. Án viljans til
að vinna koma hinar beztu vélar ekki að neinum notum.
Það er sjálfsagt, að sérhver fái það starf, sem hann hefur
hæfileika til, og hljóti þá menntun, sem samsvarar áhuga
hans og hæfileikum, og það vandamál er ekki hægt að
leysa án aðstoðar sálfræðinnar. Menn eru nú farnir að
tala um uppeldið sem eina gagnlega ráðið gegn styrjöld.
Eisenhower lét svo um mælt fyrir nokkru, að skynsam-
legt uppeldi mundi verða til að gera menn af hans stétt
atvinnulausa. Eigi nokkur árangur að nást í þessa átt,
verður sálfræðin að vísa veginn. Hér stöndum við gagn-
vart vandamálinu um framtíð siðmenningar okkar. Hin
tæknilega þróun hefur verið miklu hraðari en hin félags-
lega og siðferðilega þróun, og nú ráðum við yfir eyðilegg-
ingartækjum, sem ógna tilveru mannkynsins. Það, sem
máli skiptir, er, að sálfræðingarnir geti hjálpað til að
stjórna hinum duldu öflum sálarlífsins, svo að hægt verði
að komast hjá óförum.“
Þennan sama dag var fundarmönnum gefinn kostur
á að sjá stofnanir þær, sem þeir höfðu áhuga á, svo sem
Sáltæknistofnun Osloborgar (Psykoteknisk Institutt), sál-
fræðideild og uppeldisfræðideild háskólans og geðsjúk-
dómadeild á Ulleválssjúkrahúsinu. Um kvöldið var setið
hóf í boði Oslóbæjar.
Miðvikudaginn 6. ágúst hófust hinir vísindalegu fyrir-
lestrar. Meðal þeirra má nefna fyrirlestur dr. Arvo Leht-
ovaara (Finnlandi), sem hann nefndi: Fyrsta viðhorfið.
Hann hefur gert athuganir í þeim tilgangi að komast að