Menntamál - 01.02.1948, Blaðsíða 30

Menntamál - 01.02.1948, Blaðsíða 30
24 MENNTAMÁL LÁRUS J. RIST: Viðhorf mitt til íþróttamála.} (Útvarpsrabb.) Það gleður mig, að þér hafið áhuga á því að heyra um afstöðu mína til þeirra mála, sem ég gerði að lífsstarfi mínu og mér hafa orðið hjartfólgnust, því að ég þykist vita, að þér hafið áhuga á málefninu vegna líkamlegs og andlegs þroskagildis þess, en ekki vegna íþróttanna sjálfra. En hið uppeldislega tel ég höfuðatriði þessara mála. Mér er ókleift að lýsa sjónarmiðum mínum í fá- um orðum, en verð að láta mér nægja hér að vísa til bókar, sem ég rauk í að skrifa um afstöðu mína og nefndi Synda eða sökkva. En bókarformið virtist mér eina leiðin til þess að koma skoðunum mínum á framfæri, svo að gagn yrði að. Bókina reyndi ég að gera svo úr garði, að hún yrði aðlaðandi, og að fleira mætti af henni læra en kennarafræði okkar fimleika- og íþrótta- kennara. Þessi mál eru svo vandasöm, margþætt og flókin ,að ég treysti mér ekki til þess að skrifa einhæft um þau, svo að ]) L. J. R. var spurður um þetta efni af hálfu útvarpsins.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.