Menntamál - 01.02.1948, Blaðsíða 37
MENNTAMÁL
31
sem öll eru uppkomin og skipa góðar og virðulegar stöður
í þjóðfélaginu.
Huggun er það harmi gegn að eiga fagrar og hugljúfar
minningar um þá, sem burtu kallast. Og það er ég viss
um að kona og börn Ágústar eiga og allir þeir, sem þekktu
hann og starfað hafa með honum á einn eða annan hátt.
Guðlaugur Jóhannesson.
SITT AF HVERJU TÆI
Slúðaskólinn á Seljalanclsdal við ísafjarðarkaupstað.
Þegar stríðið skall á 1939 og leiðir lokuðust til náms í Svíþjóð og
Noregi og ekki var hægt að fá skíðakennara utanlands frá, þá fóru
nokkrir áhugamenn um skíðaíþróttir á ísafirði að hugsa um að stofna
skíðaskóla.
Þessi ætlun þeirra varð að veruleika í þorralok 1943.
Skólanum var komið fyrir í skíðaskála skíðafélags ísafjarðar á Selja-
landsdal, sem er dalverpi á hjalla í 400—700 m. hæð fyrir sunnan
Eyrarfjall, en í vestur írá Skutulsfirði. — Landslag er þarna mjög
fjölbreytt og snjóalög fram á sumar.
Þeir, sem stóðu að þessari skólastofnun, réðust í vegagerð af þjóð-
veginum meðfram Skutulsfirði og hættu eigi þrátt fyrir torfærur og
bratta, fyrr en vegur var kominn upp á hjallann. Einnig endurbættu
þeir skálann.
Skólastjóri og kennari skólans var ráðinn hr. Guðmundur Hallgríms-
son frá Grafargili í Valþjófsdal við Onundarfjörð.
Guðmundur hafði ungur lært á skíðum og ávallt iðkað skíðaíþrótt-
ir. Hann hafði dvalið í Svíþjóð við skíðanám og hafði þegar fyrir
nokkra reynslu sem skíðakennari. Síðan hcfur Guðmundur.veitt skól-
anum forstöðu. Hann fór veturinn 1945 cnn á ný utan til Svfþjóðar og
kynnti sér nýjungar í skiðakennslu og rekstur skíðaskóla. Naut hann
lijá sænska skíðasambandinu sliks trausts, að honum var trúað fyrir
að kenna á skíðanámskeiði á vegum sambandsins.
Alls liafa dvalið við nám á skólanum 42 nemendur.
1943: 4 nemendur og luku allir skíðakennaraprófi.