Menntamál - 01.02.1948, Blaðsíða 38
32
MENNTAMÁL
1944: 7 nemendur, sem allir ljúka prófi.
1945: 11 nemendur, en 5 luku prófi.
1946: 11 nemendur, þar af 3 stúlkur, 4 nemendur ljúka prófi.
1947: 9 nemendur, þar af 3 stúlkur, 3 nemendur ljúka prófi.
Skólinn hefur starfað í U/2 mánuð árlega og venjulega hefur starfs-
tímanum verið þannig fyrir komið, að nemendur hafa verið þátttak-
endur í skíðavikunni um páskana. Áhrifa frá skólanum gætir þegar
víða. Nemendur frá honum hafa blásið áhuga í skíðaiðkanir t. d. í
Strandasýslu (Arngrímur Ingimundarson) á Austfjörðum (Stefán
Þorleifsson og Óskar Ágústsson, en Gunnar Ólafsson var þar fyrir).
Menn, sem eftir skóladvöl hafa vakið á sér athygli í skíðaíþróttum,
eru t. d. Stefán Kristjónsson í Reykjavík, Ásgeir Eyjólfsson í Reykjavík.
íþróttakennararnir, sem dvalið liafa við skólann, eru Vignir Andrés-
son í Reykjavík, Stelán Þorleifsson frá Neskaupstað, Óskar Ágústs-
son við Laugaskóla, Guttormur Sigurbjörnsson á ísafirði.
Nú hefur verið ákveðið, að skólinn taki til starfa í febrúar og starfi
í lt/2 mánuð.
Skálinn hefur verið endurbættur, t. d. hefur hann verið raflýstur,
olíukynntum ofnum komið fyrir í öllum herbergjum og sum her-
bergjanna verið einangruð betur.
Nógar birgðir af olíu og kolum eru þegar komnar til skólans.
Hvert íþrótta- og ungmennafélag á landinu ætti að kappkosta að
senda nemendur til náms í skólann, svo að á hverjum tíma eigi hvert
félag einhvern félagsntann, sem kann að leiðbeina um skíðaíþróttir.
Sum félög hafa þegar gert þetta og má þar til nefna glímufélagið
Ármann í Reykjavík og Iþróttafélag Reykjavíkur.
Kennurum við skóla var boðin þátttaka í skíðanámi í júnímánuði
1947, en úr þessu námsskeiði varð ekki, vegna ónógrar þátttöku. Mun
verða reynt að koma á slíku námsskeiði á komandi vori, og er þá
vonandi að kennarar og aðrir notfæri sér þetta námsskeið til Jress að
auka kunnáttu sína og getu á skíðum og eins til hressingar.
Dvöl við skólann í U/2 mánuð kostar um kr. 600.00 (fæði, viðlega
og kennsla). Frœðslumálaskrifstojan
Iþróttafulltrúi.
MOMO9Q9Q1O*Q9QM0»OWO»O90»OWO»O»OmO9O0O»O»OWO»0WOmO»O»OTfO»OWO»O»O9Q9OWQWQ
ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA BARNAKENNARA.
Útgáfustjórn:
Ármann Halldársson ritslj., Jón Kristgeirsson og Þórður J. Pálsson.
PRENTSMIÐJAN ODDI H.F.